Wednesday, June 22

Flugáætlun

Jæja! :)
Þá er flugáætlunin loksins komin :D
Flýg frá Keflavík 18. ágúst kl. 10:30 lendi í New York kl. 12:30.
Þarf svo að fljúga frá New York kl. 16:20 til Atlanta og lendi þar kl. 19:15. Þaðan kemst ég svo loksins til Buenos Aires og flýg kl. 20:50 frá Atlanta og lendi kl. 08:00 19. ágúst. Svo þetta verður svaka ferðalag :D en það er bara spennandi.

Nú eru bara 56 dagar þangað til að ég legg í hann og ég er orðin alveg rosalega spennt :D
Fer bráðum að setja inn heimilisfangið mitt þarna úti :)

Þangað til næst
-Hrefna Björk

Wednesday, June 15

Upphafið

Hola todos! :)
Ég heiti Hrefna Björk og ég er að fara sem skiptinemi til Argentínu í ágúst :)
Litli tíuþúsund manna bærinn sem ég mun búa í heitir Cervantes og er í Río Negro héraði í Argentínu.
Fjölskyldan mín samanstendur af:
Mömmu, Glenda


Systkini mín: Natalia(´86), Marcelo(´95) og Lucía (´01)



Skólinn minn heitir: Centro de Educacion Media Nro 62 (CEM 62), en eina sem ég veit um hann er að ég þarf að vera í skólabúning og hann byrjar kl: 7:20 á morgnanna.


Vonandi verða allir duglegir að kommenta og fylgjast með þessu ævintýri mínu ;)


-Hrefna Björk