General Roca
Bærinn sem ég bý í núna heitir General Roca og er nefnd eftir Julio Argentino Roca sem var argentínskur stjórnmálamaður og hermaður. Roca fæddist þann 17. júlí 1843 í Buenos Aires. Hann var kosinn forseti landsins tvisvar sinnum, 1880-1886 og 1898-1904. Á 100 pesóa seðlinum er mynd af Julio Argentino Roca. General Roca er 100.000 manna bær í Río Negro fylki. Að mínu mati er bærinn mjög fallegur og mjög þæginlegt að rata vegna þess að bærinn er eins og hnitakerfi (eins og ég sagði frá í seinasta bloggi). Fyrir utan húsið mitt er alveg rosalega fallegt vegna þess að beint fyrir framan það er eins konar á. Í kringum "ánna" er mjög fallegt svæði til þess að labba eða hlaupa. Ég er nú samt ekki búin að vera að notfæra mér það mikið en ég verð að fara að byrja á því núna. Mér líkar alveg rosalega vel við bæinn minn en Cervantes hefur marga kosti fram yfir þennan bæ. Þar sem Cervantes er bara lítið þorp þá hafa foreldrarnir ekki eins miklar áhyggjur og maður getur hitt meira vini sína. Hérna er allt miklu hættulegra og það er ekki eins mikið um að það sé verið að hitta vini sína.
Hérna í þessum bæ er risastórt epli vegna þess að hérna í kring er ræktað mikið af þeim. Í febrúar, einmitt þegar ég fór í ferðalagið suður, var risastór tónlistahátíð haldin hérna í bænum ,"fiesta de la manzana" (hátíð eplisins). Þá koma bæði Argentínskir söngvarar jafnt sem erlendir. Það var frekar leiðinlegt að missa af þessari hátíð en ég held að það hafi verið þess virði.
Julio Argentino Roca
Fiesta de la manzana
Eplið fræga
KONY 2012
Mér langði að tala um þetta myndband vegna þess að við vorum látin horfa á það í skólanum. Fyrst horfði ég á það heima hjá mér og var alveg hreyfð og fannst þetta alveg frábært myndband. Síðan horfðum við á það aftur í ensku í skólanum og ég var sú eina sem var enn þá að segja að þetta væri alveg frábært myndband. Svo byrjuðum við að tala um það og lesa gagnrýnir og þá komst ég að því að þetta er sloldið feik. Í fyrsta lagi vegna þess að við fáum ekki að vita um hvað myndbandið er fystu tvær mínúturnar fáum við ekki einu sinni að vita um hvað myndbandið er. Svo minnir myndbandið soldið mikið á auglýsingar fyrir kosningar vegna þess að þau eru joppandi þarna um í eins bolum og veifandi skyltum. Svo er maðurinn sem gerði myndbandið að tala niður til áhorfandans eins og við séum lítil börn. Og í enda myndbandsins þegar hann biður um pening fór verðmæti myndbandsins mikið niður. Svo skeit Russel (höfundurinn) algjörlega upp á bak þegar hann var handtekinn.
Campamento de AFS
Í gær fórum við skiptinemarnir á AFS námskeið í bæ í Neuquén. Kris gisti hjá mér vegna þess að við þurftum að mæta klukkan hálf átta um morguninn. Lögðum að stað og komum um klukkan 10. Svo komu líka skiptinemarnir frá Neuquén. Þetta var svona meira fyrir nýju skiptinemana sem komu í febrúar en þetta var líka mjög mikilvægt fyrir okkur "gömlu" skiptinemana. Við vorum að tala um það hvernig við höfðum breyst hvert og eitt og síðan vorum við að ræða það hvernig við ætlum að ná okkar markmiðum með þeim stutta tíma sem við eigum eftir hérna. Svo áttum við eldri skiptinemarnir að gefa þeim nýju ráð og svo var líka bara almennt spjallað saman. Þetta var alveg ótrúlega skemmtilegur dagur :)
Kristine og Sigri frá Noregi (Gaspard frá Belgíu)
Día de la memoria
Þann 24. mars fyrir 36 árum var mikil sorgardagur í sögu Argentínu. Ástæðan er sú að þennan dag tók her Argentínu til sín völdin gegn vilja fólksins. 30.000 manns hurfu og á meðal þeirra voru ófrískar konur. Börn ófrísku kvennana var síðan komið fyrir hjá "betri" fjölskyldum og enn í dag er verið að finna týndu börnin. Þetta tímabil (8 ár) einkenndist af ofbeldi, drápum og miklum skemmtum á menningarlegum hlutum Argentínu eins og bókum. Fólk mátti ekki tjá sig um sín sjónarmið. 24. mars "dagur minninganna" er nefndur þannig vegna þess að þau þurfa að minnast dagsins til þess að þetta gerist aldrei aftur. Í dag er mjög mikilvægt í Argentínu að vita hvaðan þú kemur og hafa frelsi til þess að tjá þig. AFS gaf okkur skiptinemunum nælu með Argentínska fánanum til að hafa yfir hjartanum til þess að minnast dagsins. Þess má nefna að margir af mönnunum sem gerðu þessa hluti eru komnir í fangelsi en það eru enn þá fjölmargir sem ekki hafa fengið það sem þeir eiga skilið!
Þetta er eitt af táknum dagsins
24. mars. Dagur minningarinnar í Argentínu
Vissir þú að...
...barnauðppeldi hæenra í Argentínu er allveg rosalega frábrugðið því á Íslandi?
...hérna er eðlilegt að byrja að fara á skemmtistaði eftir 15. ára afmælið þitt?
...það eru mikið af frídögum í Argentínu?
...hér fara börnin flest að búa sjálf þegar þau eru 18. ára og fara í háskóla?
...á Íslandi eru unglingar sjálfstæðari heldur en krakkarnir hérna?
Núna er stutt eftir af dvöl minni og ég finn að ég er alveg tilbúin að koma heim. Það eru samt nokkur takmörk sem mér langar að ná og ég vona að þessir 116 dagar muni duga.
Ég sakna ykkar allra alveg rosalega mikið og mér finnst rosalega skemmtilegt þegar þið skiljið eftir komment!
-Hrefna Björk





