Tuesday, December 27

Jólaveikindablogg

Núna er jólin liðin og ég vona að allir hafi átt yndisleg jól með vinum og fjölskyldu. Ég saknaði íslensku jólanna alveg rosalega mikið...þorláksmessu, fjölskyldunnar, jólaskrautsins og jólalyktarinnar. Argentínumenn eru ekki mikil jólabörn enda eru jólin hérna um mitt sumar. Þau kippa sér ekki mikið upp við jólin, þau eru frekar að pæla í því hvað eigi að gera skemmtilegt um sumarið. 


Jólaundirbúningurinn
Hérna byrjar jólaundirbúningurinn 8. desember þegar það er "día de la virgen" (dagur meyjarinnar). Þá er skreytt allt eins og ég held að ég hafi sagt í einhverju blogginu. Svo er eiginlega ekki gert neitt í sambandi við jólin bara notið sumarsins. 22. des fórum við að sjá jólahelgileikinn á torginu og það var smá jólalegt. Við skelltum okkur svo í jólainnkaupinn á þorláksmessumorgun klukkan hálfátta. Það var verslað alveg hellingur af jólamat enda eru Argar þekktir fyrir að borða mikið á jólunum. Þessi innkaup tóku hvorki meira né minna er sjö klukkustundir...Svo var haldið heim á leið og það vantaði alveg rosalega mikið ógeðslegu skötufýluna :( 


Jólin
Jólin mín byrjuðu með því að ég talaði við yndislegu fjölskylduna mína skype...og það var alveg æðislegt. Svo fór ég með argentínsku fjölskyldunni minni heim til "tíu" (gömul frænka) og ég skellti mér óvænt í jólamessu...með pólska prestinum sem talar svo skrýtna spænsku. Það var smá jólalegt sérstaklega þegar þau sungu "Heims um ból" ...reyndar á spænsku. Um klukkan ellefu borðuðum við jólamatinn. Og auðvitað var það "asado" sem sagt allskonar kjöt og kjúklingur sem eldaður er yfir eldi. Allir borðuðu eins og þeir gátu. Rétt fyrir tólf þá var opnaðar jólagjafirnar...ég fékk eina frá frænkunni, en líka eina frá jólasveininum/mömmunni. Svo klukkan tólf var skálað með kampavíni og allir fóru út að sprengja flugelda. Svo er hefðin að allir fara út að dansa með vinum sínum en ég gat ekki farið út af því að ég var veik :(


Þarna voru jólin haldin, sjáið "asado" in making þarna fyrir aftan

Ég og jólasveininn

JólaNammi




Veikindi
Daginn fyrir jól þá varð ég alveg rosalega veik í maganum. Þannig að bróðir minn fór með mig heim til konu sem "Curar" Þetta er mjög trúarleg athöfn. Það er þannig að konan notar rauðan borða og ég átti að þrýsta þessu á staðinn sem mér verkjaði og hún eins og færði sig alltaf nær og gerði krossmark. Það er svolítið erfitt að útskýra þetta þannig að ég set hérna inn myndband...frekar líkt því sem konan gerði við mig en svolítið öðruvísi. Maður þarf að fara þrisvar sinnum til þess að þetta virki. Eftir fyrsta skiptið varð ég meira veik og ég þurfti að fara upp a spítala og fá fjögur lyf í æð. Þurfti að bíða með það í 30-40 mínutur og ég var að verða klikkuð og ég hugsaði svo til mömmu og hugsaði hvernig hún fór eiginlega að þessu. Leið betur eftir það, en var svo aftur orðin slæm á jólunum og gat ekki borðað neitt. En var svo orðin betri á jóladag. Og í dag er ég eiginlega alveg búin að ná mér sem betur fer :)



Svo skelli ég inn nokkrum myndum úr daglegu lífi :)

´
Mamma mín að vera myndarleg í eldhúsinu. Geðveik kaka

Fór að heimsækja eina móðursysturina í sveitina

Ótrúlega fallegt

móðursystirin er múslimi

ég að horfa á jólahelgileikinn


Fórum svo annar í jólum og borðuðum asado hjá ánni

Núna þessa undanfarna daga er búið að vera alveg rosalega mikill hiti, fer ekki niður fyrir 30°C og hefur farið yfir 40°C. Maður er alveg að steikjast og vaknar eiginlega alltaf í svitabaði. Rosalega skrýtið að sjá svo myndirnar af Íslandi núna væri svo mikið til í snjó! Vona að það verða líka hvít jól á næsta ári...sem er btw eftir einn og hálfan sólahring. Ég skrifa svo blogg á næsta ári og segi ykkur frá áramótunum mínu :)

Vonandi áttuð þið gleðileg jól og vona að næsta ár verði alveg frábært fyrir alla. 

-Hrefna Björk


Monday, December 19

4 meses de aventura

Eins og titillinn gefur til kynna fyrir þá sem kunna eitthvað í spænsku eru fjórir mánuðir síðan ég settist upp í flugvélina á keflavíkurflugvelli til þess að halda á vit ævintýranna. Og síðan þá getið þið ekki ímyndað ykkur allt það sem ég hef upplifað og lært og hvað þetta ár á eftir að vera besta ár lífs míns. 


Síðan seinast og líka því sem ég gleymdi seinast...


Festival de Danzas
Ég á góða vinkonu hérna í Argentínu sem heitir Sheyla. Hún er alveg rosalega góður dansari og hefur verið að æfa dans í níu ár. Hún dansar margar tegundir af dans: Ballet, freestyle og  einhverja spænska dansa. Á sunnudaginn fyrir viku eftir að ég kom heim frá ströndinni var lokahátíð hjá dansskólanum hérna í Cervantes. Það voru stelpur alveg niður í þriggja ára og alveg upp í miðaldra sem sýndu listir sínar. Ekki einungis var þetta lokahátíð heldur var Sheyla að ná þeim áfanga að verða danskennari og getur kennt hvar sem er og getur einnig opnað sinni eigin dansskóla ef hún hefur áhuga á því. Þess vegna fékk hún líka að dansa sóló. Þetta var svo fallegt allt!


Sheyla að dansa Sóló


Litla frænka mín að dansa...alveg rosalega hæfileikarík!



Hópurinn hennar Sheylu að dansa freestyle
Að dansa einn af spænsku dönsunum

Eftir að hún var búin að taka við "diplonanum"


Útilega
Á fimmtudagskvöldið héldum við bekkurinn útilegu hjá ánni. Böðuðum okkur í ánni. Borðuðum asado. Fórum í göngutúr. Enduðum svo liggjandi á jörðinni til þess að horfa á stjörnurnar. Og ég sá mitt fyrsta stjörnuhrap...en gleymdi að óska mér. Fórum svo að sofa seint og um síðir en vöknuðum eldsnemma morguninn eftir og snerum heim til okkar.

+
Við að reyna að tjalda :)


Ég er alltaf hress og kát!

Asado

Það var bannað að kveikja varðeld...

...en við gerðum það samt!

Allir í stuði!




Útskriftaveisla
Elsta systir mín hún Naty var að útskrifast úr háskólanum núna á föstudaginn síðasta. Hún er búin að vera að læra kennarann í sex ár núna. Þetta var alveg rosalega falleg athöfn og mjög hátíðleg. Það voru 25 sem útskrifuðust sem er með því mesta undanfarin ár...

Fyrst voru allir útskrifaðir kallaðir upp með nafni og látnir labba inn í salinn

Mamma og Naty

Alvöru ostur!

Mamma og amma

Djamm
Örgum finnst mjög gaman að fara út að DANSA...það var í fréttunum hérna í Argentínu um daginn að Íslendingar drykkju alveg rosalega mikið af vodka og að við værum alltaf full. Veit ekki alveg hversu mikið er til í því. En hérna í Cervantes opnaði bar á laugardaginn og það var í fyrsta skiptið sem ég sá mikið af Argentínumönnum vel í glasi. Ég tók engar myndir...en á aðfangadag og um áramótin förum við aftur og þá verður tekið nóg af myndum ;)

Festival de Artes
Alltaf um viku fyrri jól er haldin listahátíð hérna í Cervantes. Þá koma allir listamennirnir saman og sýna það sem þeir eru búnir að vera að vinna að. Það var dansað, sýnt leikfimi og þess sem dans/klappstýru hópur sýndi lisitr sínar. Svo voru básar þar sem málarar sýndu sín verk og einn maður hérna í Cervantes gerir rosalega falleg Maté og hitabrúsa með myndum og nöfnum. Það verður pottþétt splæst í þannig áður en ég kem aftur til Íslands. Tók ekki neinar myndir þarna heldur :/

Núna þegar sumarfríið er alveg á fullu förum við út að hitta vinina nánast á hverju kvöldi og auk þess er eiginlega farið að dansa hverja helgi líka...þannig að það er alveg nóg að gera. Svo förum við eiginlega að ánni á hevrjum degi vegna þess að hitinn hérna fer oftast ekki niður fyrir 30°C. 

Ég vil óska öllum gleðilegra jóla og farsældar á komandi ári. Hvort sem þið eruð stödd nær eða fjær. Ég á allavegana eftir að eiga skrýtin jól og áramót! Þangað til jóla- og áramótabloggsins þá segi ég bæ :)

-Hrefna Björk




Tuesday, December 13

Sólbruni í desember

Þið getið ekki ímyndað ykkur hversu mikið ég lærði á einungis örfáum dögum þessa síðastliðna viku. Ég var næstum því búin að skipta um fjölskyldu bara vegna þess að ég sagði ekki hvernig mér leið...þannig að fyrir alla tilvonandi skiptinema segið alltaf hvernig ykkur líður...ekki halda því inni. Þetta gildir í rauninni fyrir alla. Tala rólega um vandamálin og ef persónan er nógu þroskuð og vill breytast ætti að allt að verða gott!


Það er búið að gerast mikið hjá mér síðan seinast.  


El Río

Núna þegar það er komið sumar er alltaf farið al Río eða að ánni. Þar er drukkið Tereré og borðað kex með lifrakæfu. Svo er stokkið út í ánna þegar manni langar því að hitinn er alveg rosalegur. Svo er hægt að stökkva að hárri brú sem er yfir ánni þetta er alveg æðislegt. Áin er u.þ.b. 1 km frá Cervantes og þess vegna nota allir bíl til að komast þangað. Ég ætla nú samt að fara að prufa að labba þangað! 



Fyrsta ferðin að ánni þetta sumarið

Yndislegt að geta baðað sig þegar það er svona heitt

Serva Tereré

Marce!

Ég að fara að stökkva af brúnni!!

Og svo lét ég mig gossa


Sofið út á götu

Í mínu fylki (Río negro) er meira af atvinnu heldur en í norðrinu. Þess vegna er mikið af fólki frá öðrum fylkjum sem kemur hingað til þess að vinna. Fyrir stuttu síðan var elsta argentínska systir mín að útskrifast sem kennari. Til þess að fá að vinna þar sem manni langar er reglan fyrstur kemur fyrstur fær þess vegna þurfti hún að bíða í röð í fjóra daga. Þar sem hún á lítið barn gat hún ekki alltaf verið þarna og þess vegna ákváðum við að hjálpa henni með því að bíða í röðinni eina nóttina. Við mættum á staðinn um ellefu leytið og tjölduðum í miðbænum á gangstéttinni. Svo var bara haft gaman enda vorum við fjögur og á endanum fórum við að sofa og daginn eftir snerum við aftur heim. Þetta var svolítið skrýtin lífsreynsla. 

Ég með jólanammi!

Tjaldið okkar

Marcelo, Kris, Sol og ég með smá svefngals

Jólaundirbúningur
Í Argentínu byrjar jólaundirbúningurinn 8. desember. Það er einnig dagur meyjarinn (Virgen) og það er venjan að labba 15 km að skoða eina slíka. Ég var búin að eiga alveg ótrúlega erfiða daga áður og hafði ekki getað sofið mikið og tók þá ákvöðrum að sofa frekar. Enda hefðum við þurfti að vakna klukkan fjögur um nóttina til þess að fara.
En seinna um daginn var skreytt jólatréð og sett upp jólaskraut...mjög srýtin tilfinning.

Sæta gervijólatréð okkar 

Marcelo að skreyta

Duglegur

Las Grutas
Á laugardagsmorguninn klukkan fimm um nóttina lagði ég að stað með fjölskyldunni hennar Kristine. Mættum svo á Las Grutas um níu leytið. Fórum að labba á ströndinni. Fórum svo í húsið sem þau leigðu og borðuðum hádegismat. Fórum svo aftur á ströndina og eyddum deginum þar. Fékk smá lit, eða kannski frekar mikinn miðað við að þetta var einn dagur. Svo um kvöldið fórum við og löbbuðum um bæinn og sáum einhverja danssýningu. Svo fer ég þarna aftur í janúar með fjölskyldunni minni. Alveg ótrúlega fallegt og skrýtin tilfinning að sjá sjóinn aftur eftir rúma þrjá mánuði. Svo á sunnudeginum ætluðum við að aftur á ströndina en það var ekki gott veður. Snerum svo aftur um hádegisbilið.

Las gruta (hellarnir)

Slökun á ströndinni, ekki slæmt

Fullt af fólki, held meira en íbúðarfjöldin á Íslandi!

Brann smá, allt orðið sólbrúnka núna :)

Sunnudagsmorguninn

Sjórinn :)

Vona að ég hafi ekki gleymt að segja frá einhverju merkilegu! 

Gangi ykkur vel í jólaundirbúningnum! :)

-Hrefna Björk





Monday, December 5

Ljúft?

Áður en ég fór sem skiptinemi var ég alltaf að lesa blogg hjá öðrum skiptinemum og ég man að maður tók ekki einu sinni eftir því þegar einhvað var slæmt hjá þeim. Maður hugsaði alltaf vá hvað þetta er bara gaman. En ég verð að hryggja ykkur með því að það er alls ekki þannig að allt sé auðvelt og gott. Ég er búin að eiga alveg fullt af vondum dögum hérna og me´r langar helst bara að taka fyrstu flugvél heim til mömmu og pabba!...en sem betur fer eru þeir góðu fleiri. Og ég skal segja ykkur það að mér finnst svo gaman að fá komment...eða jafnvel tölvupóst :) Það bjargar alveg deginum hjá mér...svo þeir sem lesa bloggið mitt og kommennta ekki mættu alveg byrja að kommenta :D


Það er ekki búið að vera mikið að gerast hjá mér hérna hinum megin á hnettinum í sólinni síðastliðna viku...
Hérna eru jólin að koma alveg eins og á Íslandi en það er ekkert jólastuð hérna EKKI NEITT. Fólkið er frekar að spá í því að njóta sumarsins og hafa gaman þannig en ekki svona JÓLAgaman eins og á íslandi.


Núna um hegina var "Bajada" eða útskriftaveisla fyrir elsta bekkinn í skólanum mínum. Minn bekkur sem er næst elstur þurfti að sjá um allt. Ég fór að hjálpa á föstudaginn og við gerðum öll boli sem ég set mynd af hérna. Svo þegar ég kom heim var ég orðin veik og á laugardaginn var ég með hita og vesen þannig að ég fór ekki neitt þann daginn. 


Sunnudagurinn var alveg rosalega sorglegur. Þannig er mál með vexti að mamma einn bekkjarbróður míns dó eftir baráttu við krabbamein. Þegar einhver deyr hérna í Argentínu er það allt öðruvísi en á Íslandi. Þegar við fréttum þetta fórum við heim til stráksins...það var alveg fullt af fólki heima hjá honum fyrir utan og allir stóðu bara og biðu. Svo kom sjúkrabíll og flutti hana í annað hús. Þar var eins konar kistulagning. Það var samt enginn prestur...en það var samt opin kista og allir voru saman þarna. Sumir voru þarna alla nóttina. Og svo klukkan tólf daginn eftir var hún jörðuð. Hérna verður að jarða fólk innan 48 klst. Þetta er alveg rosalega öðruvísi...þar sem á Íslandi er allavegana beðið í viku ef ekki tvær.


En ætla bara að hafa þetta stutt þar sem það er mið nótt hjá mér og hjá ykkur...munið eftir að kommenta! :)


Nokkrar myndir:


Ein bekkjarsystir mín að búa til sinn bol 

Kristine bjó líak til bol

Bolurinn hans Marcelo, mjög flottur!

Bolurinn minn, frekar ljótur haha

Bolurinn minn að framan

Kirstuberjatréð sem er í garðinum hjá systir minni

"Peach" tré...er búin að steingleyma íslenska orðinu haha Ég og Marcelo fróum og tíndum ávexti í dag og þetta var svo gott svona beint af trénu!

En ég set punktin hér.
-Hrefna Björk

Sunday, November 27

Sumarfrí í nóvember

Ég vil byrja á því að senda kveðju til fjölskyldunnar minnar á Íslandi, mér þykir rosalega vænt um ykkur og það er ótrúlega erfitt að vera svona langt í burtu á þessari stundu.

Núna er liðinn 101 dagurinn minn hérna í Argentínu það er ótrúlega langur tími en samt svo stuttur tími. Ég er búin að gera svo rosalega margt o upplifa svo margt. Ég er alveg viss um það að ég strax búin að þroskast eitthvað, ég vona það allavegana.


En eins og titillinn segir þá er ég komin í sumarfrí og verð það næstu þrjá mánuðina. En undanfarnir dagar:


Á miðvikudaginn þá var komið að því að sækja pakkan minn frá Íslandi til Neuquén. Sandro pabbi hennar Kris var svo elskulegur að skutla mér. Við komum  á staðinn og þurftum að bíða í svona klukkutíma sem mér fannst bara mjög vel sloppið. Svo var kallað á okkur og við látin inn í eitthvað herbergi og pakkinn var opnaður og skoðaður. Svo var okkur bara leyft að fara og ég þurfti ekki að borga neitt sem er frekar óvenjulegt vegna þess að Kris er búin að fá þrisvar sinnum sendingu og þurfti að borga í öll skiptin. En maður er bara heppin, allavegana stundum. Takk kærlega fyrir pakkan var alveg rosalega glöð :D


Fimmtudagurinn var svo seinasti skóladagurinn. Við mættum aðeins seinna en venjulega og þegar dagskráinn byrjaði settumst við út í sólina sem var allt of sterk. Það var byrjað á því að Fánaberinn, hann er kosinn af öllum nemendum og kennurum í skólanum og stelpan sem fékk heiðurinn er einmitt með mér í bekk. Svo eru tveir nemendur sem fá að fylgja og önnur stelpan er í mínum bekk líka. Það var spilaður hinn dramatíski argentínski þjóðsöngur og allir sungu með nema ég. Svo voru veitt verðlaun fyrir hæstu meðaleinkunn, besti skólafélaginn og svo fengu allir metalíu sem hafa mætt alla daga í skólann og það voru alveg þó nokkrir. Eftir þessi formlegheit þá var haldið á torgið og við borðuðum og svo voru teknar hellingur af myndum með bekknum. Það er hefð seinasta skóladaginn að henda hvert öðru í einhverskonar læk sem er rétt hjá torginu. Og auðvitað var byrjað að nýðast á skiptinemanum, OG allir í bekknum hentu mér út í. Það var frekar kalt eftir á þannig að maður þurfti að skella sér í sturtu. 


Á Föstudagskvöldið var mér boðið í Asado með fjölskyldunni hennar Kris. Fórum heim til einhvers frændans og borðuðum og skelltum okkur til Roca til þess að kaupa ís. Komum svo heim um miðja nótt. 


Bajada kallast útskriftaveisla hérna í Argentínu. Þá eru útskriftanemarnir leiddir niður af sviði og fyrir neðan bíður fjölskyldan. Þetta var Bajada hjá grunnskólanum hérna í Cervantes. Frekar leiðinlegt...en það er önnur Bajada hjá menntaskólanum hérna næstu helgi þannig að þá fær maður að kynnast þessu betur. Eftir að ég og Kris vorum búnar að láta okkur leiðast í smá stund fórum við með Sandro og Tobías (litli bróðir Kris) til Roca í bíltúr. Fórum á svona stað þar sem fólk rennir sér á hjólabrettum, hjólum og þess háttar. Eftir að hafa verið þar í nokkra stund fórum við heim. Ég var komin upp í rúm og ætlaði að fara að sofa en þá byrjaði þessi skemmtilega argentínska rigning/haglél. Þannig að ég þurfti að bíða nokkra stund vegna þess að það er ekki svefnfriður fyrir þessum hávaða. Loksins náði ég að sofna og svaf til átta.


Í dag (gær tæknilega séð) var svo haldið að stað í kirkju klukkan níu. Comunion heitir það þegar börn fá í fyrsta skipti að borða brauðið í krikjunni (líkami krists). Litla systir mín hún Lucía náði þeim merka áfanga í dag. Ég segi merka vegna þess að hún er búin að þurfi að læra fyrir þetta í tvö ár. Takk fyrir. Svo eftir svona tvö til fjögur ár þá fermist hún. Þetta var mjög líkt fermingu nema það er engin veisla á eftir eða neitt þannig. 


Þetta er búin að vera svo erfiður dagur í dag en samt góður. Trúnaðarmaðurinn minn kom í heimsókn og það er alltaf gaman að sjá hana. Svo ætluðum við að fara á Boliche en það var hætt við það, það er ástæðan fyrir því að ég er ekki farin að sofa haha. 


Skelli inn nokkrum myndum:


Fallegi bekkurinn minn seinasta skóladaginn

Marcelo og Sheyla

Þetta er bara klassík í Argentínu

La bajada

Steiktar Empanadas

Hjólabrettastaðurinn í Roca

Comunion hjá Lucíu

Lucía með gamlli frænku sem er nýkomin úr lungnaígræðslu

Ég og Lucía :)


Ég vona að það séu ekki mikið af stafsetningarvillum :)

Þangað til næst
-Hrefna Björk