Sunday, October 30

Láttu þér líða vel, þetta líf er til þess gert, trúðu mér

Það eru margir sem halda að eina menntuninn er sú sem við lærum í skólanum...ég er búin læra að það er alls ekki rétt. Besta menntuninn fær maður með því að lifa. Það er það sem ég er að gera núna. Það er ekki alltaf eitthvað ljúft líf en það er einmitt til þess kenna manni að þegar maður verður enn þá eldri heldur en ég er núna þá er lífið ekki alltaf dans á rósum.


Þetta er að verða mjög heimspekilegt þetta blogg þannig að ég ætla aðeins að segja hvað ég er búin að vera að gera hérna í landi Indíánja og rólegheita.


Vikan var bara frekar venjuleg fór í skólann á þriðjudag-fimmtudags en á föstudaginn var ekki skóli hjá mínum bekk vegna þess að þau vissu að kennararnir myndu ekki mæta. Á þriðjudeginum kom Marcela (trúnaðarmaðurinn minn og Kristine) og við fórum að gá hvort að við gætum spilað á klarinettið og hún á píanóið með einhverjum kór, en maðurinn sem stjórnaði kórnum sagði að hann vildi að við kæmum til hans  í El I.U.P.A sem er háskólastofnun fyrir Listir. Við erum þess vegna að fara þangað á þriðjudaginn. Ég er samt spenntari fyrir því að fara í hljómsveit þannig að þetta verður meira bara eins og skoðunarferð fyrir mig :) 


Á laugardaginn kom Elínborg í heimsókn til mín. Kom hingað til þess að fara á Boliche. Alveg æðislegt að geta talað íslenskuna og líka tala við einhvern sem er frá Íslandi. Um kvöldið kom vinkona mömmu og eldaði ótrúlega góðan kjúkkling. Um klukkan hálf þrjú fórum við á Bolicheið og það var alveg ágætt. Komum heim rétt fyrir sex og sváfum til tólf. Fórum svo í Asado til Söndru móðursystur og það var bara ágætt. Svo fór bróðir minn að spila handboltaleik og stuttu síðar fór Elínborg. Svo fórum við heim og ég fór að sofa aftur. Soldið löt. 


Mig minnir að ég hafi minnst á það að það rigndi aldrei hérna. Það er alveg satt vegna þess að stuttu eftir að ég skrifaði bloggið um að ég saknaði rigningarinnar þá kom þessi hellidemba. Rúmið mitt er undir glugga og þeir sem þekkja mig vel vita að ég sef MJÖG fast. En rigninginn hérna í Argentínu er hryllileg. Ég vaknaði upp með andfælum og ég hélt í alvörunni að það væri byrjað stríð og það væri verið að sprengja sprengjur. Var í sjokki. Fór fram og þá höfðu allir vaknað. Rigninginn breyttist svo í frekar venjulega rigningu og ég fór að sofa. Rigndi í nokkra daga en það var í fyrsta skipti sem það rigndi hérna í nágrenni General Roca í rúmt ár! Takk fyrir. 


Síðan ég kom hingað er áhugi minn á myndatöku búin að stóraukast og ég elska að taka myndir. Er líka byrjuð að teikna smá, þarf að æfa mig aðeins meira í því haha


Belen, Kristine og Sol 

Ég og Elínborg

Kristine, ég, Yenii, ELínborg, Belen og Sol


Gianluca og Kristine



Ég sakna allra á Íslandi alveg rosalega mikið...hlakka til að sjá ykkur að ári liðnu. 


Alltaf gaman að fá komment (bendi á leiðbeiningar í seinasta blogg!)


Kossar og knús á Ísland


-Hrefna Björk





Monday, October 24

La Vida Dulce

Hvernig ætlaru að þekkja ævintýri...ef þú hefur aldrei upplifað eitt slíkt.
Hvernig ætlaru þekkja kvíða...ef þú sagðir aldrei við ættingja og vini "Sjáumst fljótt" með augun full af tárum. Hvernig ætlaru að þekkja vegalengd...ef þú hefur aldrei skoðað kort og sagt "Vá hvað ég er langt í burtu."

Hvernig ætlaru að þekkja tungumál...ef þú þurftir aldrei að læra eitt til þess að eignast nýja vini. Hvernig ætlaru að þekkja föðurlandsást...ef þú öskraðir aldrei "Ég elska landið mitt." Hvernig ætlaru að þekkja umburðarlyndi...ef þú hefur aldrei orðið vanur einhverju, sem þér líkaði ekki einu sinni við. Hvernig ætlarðu að vita hvað er að grípa tækifærið...ef þú sást aldrei hvernig tíminn hljóp úr höndunum á þér. Hvernig ætlaru að þekkja heiminn...ef þú fórst aldrei sem SKIPTINEMI!


Eftir tveggja mánaða dvöl er ég búin að fá að kynnast næstum því öllu þessu...ég held að það sjái enginn eftir því að fara sem skiptinemi. Þetta er algjört ævintýri...en ævintýri hafa auðvitað upp- og niðursveiflur.


Það sem er að frétta af Argentínunni er ekki mikið...en þó eitthvað:


Miðvikudagurinn 19. október
Við byrjuðum daginn á því að fara í skólann. Eftir skóla fórum við í sund eins og alltaf á miðvikudögum. Um kvöldið var svo handboltaleikur og mágur minn var að spila...og hans lið vann. Það er rosa mikið sport hérna að horfa á íþróttir...mér hefur nú aldrei fundist það gaman en læt mig hafa það einstöku sinnum. Eftir leikinn fór ég svo heim til Kristine og Sol og svo bættust við nokkrir vinir í viðbót og við horfðum á myndir. Ég gisti svo heima hjá Kris og Sol. 


Fimmtudagurinn 20. október
Það var starfsdagur í skólanum þannig að við nemendur þurftum ekki að mæta. Þennan dag átti Kristine líka 17. ára afmæli. Ég gaf henni Maté og íslenska lopavetlinga og hún var mjög ánægð með það. Gerðum ekki mikið þennan dag...fórum bara á torgið og í göngutúr. 


Föstudagurinn 21. október
Fórum í skólann...ég hefði svo ekki þurft að mæta. Próf í lögfræði fyrstu tímana...ég sat og gerði ekki neitt. Estenografía (gamalt spænskt letur sem ég þarf ekki að læra)...sat og gerði ekki neitt. í seinasta tíma var enska og þau hlustuðu svona tíu sinnum á sömu hlustunaræfinguna og skyldu mjög lítið...og fyrir mér var þetta eins og 5.bekkjar efni í grunnskóla. Eftir skóla vorum við búnar að ákveða að fara í ræktina en ég, Kristine og Sol vorum svo latar að við sendum Shey eina. Það þýðir bara að við förum þrisvar sinnum í þessari viku. Um kvöldið hittumst við heima hjá Kris og horfðum á Bruno. Viðbjóðsleg mynd. Mæli alls ekki með henni.


Laugardagurinn 22. október 
Vaknaði frekar snemma og gerði eigilega ekki neitt þennan dag. En um kvöldið hélt Kris upp á afmælið sitt og það var alveg ágætt. Norsk vinkona hennar sem býr í Neuquén kom. Hún heitir Lilja María, sem er geðveikt íslenskt nafn. Við vorum heima hjá henni langt fram á nótt. Fórum út um nóttina og þau fóru með okkur á einhverja staði og voru að segja okkur draugasögur. Við máttu reyndar ekki vera úti vegna þess á sunnudeginum voru kosningar og löggan sendir mann heim ef hún sér mann úti.


Sunnudagurinn 23. október
Vaknaði við það að mamma mín var alveg brjáluð af því að systir mín vildi ekki vakna til þess að fara í krikju. Hérna þarf maður s.s. að mæta í kirkju reglulega í fjögur ár til þess að mega fermast. Þær fóru svo að lokum í kirkjuna en komu svo heim aftur og alveg jafn mikil öskur. Veit ekki alveg af hverju. Við fórum svo í Asado til einnar frænkunnar og það var alveg smá tilbreyting frá því að fara alltaf til ömmunnar og afans sem búa í sama húsi og ég. Fórum svo að heimsækja konuna sem vinnur við að fylgjast með hvernig við mætum í skólann. Hún býr alveg í stóru húsi miðað við húsin hérna í Argentínu. Við lærðum að spila franskt spil sem franski skiptineminn sem þau höfðu tekið hafði kennt þeim. Það var alveg geðveikt skemmtilegt og kom á óvart. Svo voru komnar niðurstöður í kosningarnar...sami forsetinn aftur. Um kvöldið lærði ég að búa til Empanadas...bendi á fróðleiksbloggið ef að þið eruð að velta því fyrir ykkur hvað það er. Eftir mat hittumst við á torginu og chilluðum og fórum svo heim.


Mér finnst Argentínska sumarið loksins farið að minna á sig. Búin að fá svona fimmtán moskítóbit og smá tan. Svo eru bara fjórar vikur eftir af skólanum þangað til að sumarfríið byrjar 25. nóvember. 


Þar sem ég hef fengið margar spurningar um það hvernig á að kommenta hef ég ákveðið að setja hérna inn smá leiðbeiningar:


1.0 comments hérna fyrir neðan
2. Skrifið eitthvað rosalega fallegt
3. Veljið fyrir neðan hvíta gluggan sem þið skrifuðu í...þar stendur "Coment as" og þið veljið Name/URL 
4. Skrifið nafnið ykkar og skiljið eftir autt í URL
5. Ýtið á "Post a comment"


Núna hafið þið enga afsökun...


Skelli nokkrum myndum í lokin


Bróðir minn með Asado

Ég og amma

Lilja María og Kristine í afmælinu

Geðveik kaka

Krúttur

Ég fylgist svo með hvort að þið kommentið!

Ást og friður
-Hrefna Björk

Sunday, October 16

Lífið á sléttunum

Jæja nú er ég búin að búa hérna í Argentínu í næstum því tvo mánuði!


Núna er mér byrjað að líða mjög vel hérna og mér finnst ég vera partur af argentínsku fjölskyldunni minni.
Nú kemur smá update á því sem ég er búin að vera bralla hérna í Argentínunni síðustu vikurnar:



Mánudagurinn 3. október var ekki skóli vegna þess að þann dag átti Kristófer Kólumbus að hafa fundið Ameríku, sem er auðvitað kjaftæði. En fínt að fá frí í skólanum. Vegna frídagsins fórum ég, Marcelo, Kristine, Sol, Juan og Gianluca á Boliche á sunnudagskvöldið. Það var alvega rosalega skemmtilegt og eigilega skemmtilegasta skiptið út af því að maður er loksins búin að kynnast fólkinu almennilega og búin að eignast góða vini hérna eða eins og það er á spænsku "amigos de corazón" (Vinir hjartans). Ég man nú eigilega ekkert hvað við gerðum þessa vikuna :/ ókosturinn við að skrifa ekki dagbók en það getur varla verið merkilegt víst að ég man það ekki.




 Þetta er ég og Gianluca, það er ekki hægt að taka góða mynd af honum, það er alltaf eins og hann sé á einhverju
Hittum leikfimiskennarann okkar sem var að djamma, frekar skrýtið að hitta kennarann sinn á skemmtistað en það er samt venjulegt hér




Í seinustu viku var bara frekar venjuleg. Á miðvikudaginn byrjaði ég í sundi og fór  með Kristine, Lidiu (gömul frænka) og tveimur öðrum krökkum sem fá greinilega alltaf far með frænkunni. Það var alveg æðislegt að byrja að synda aftur og maður gat nú alveg eitthvað ennþá sem betur fer. Um kvöldið fór ég svo að horfa á eina bekkjarsystur á handboltaæfingu en hún vildi endilega að ég byrjaði í handbolta. Ég held að ég sleppi því!


 Á föstudaginn var mér boðið heim til Elínborgar (önnur íslensk stelpa hér í Argentínu) en hún á heima í Neuquén sem stór borg hérna í klukkutíma fjarlægð. Ég fór með fjölskyldunni hennar Kristine vegna þess að fjölskyldan mín á ekki bíl og Kristine var líka að fara að heimsækja aðra norska stelpu í Neuquén. Það er svolítill munur á fjölskyldunum okkar. Við löbbuðum aðeins um Neuquén og svo horfðum við á mynd en ég var svo ótrúlega þreytt að ég sofnaði, sem gerist aldrei. Við vöknuðum á laugardaginn og gerðum aðra tilraun til þess að klára myndina en ég sofnaði eins og skot haha. Við skelltum okkur svo niður í Neuquén down town og fengum okkur maté á torginu og fórum svo að kaupa gjafir handa mömmum okkar hérna í tilefni mæðradagsins.Ég fór svo heim til mín. 




Ég á torginu í Neuquén með þjóðardrykkinn, Maté

Elínborg með blómin sem hún keypti handa mömmu sinni

Mér og bróðir mínum var boðið í kvöldmat heima hjá Sol og Kristine. Eftir að við vorum búin að borða ákváðum við að fara til Roca til þess að kaupa ís. Þegar við vorum á leiðinni til Roca þá sáum við strák á hjóli á hinum vegarhelmingnum. Við héldum að hann væri bara að bíða eftir því að fara yfir en þegar við vorum komin fram litum við aftur fyrir okkur og sáum að hann færði sig ekki þótt að það kom bíll sem þurfti að sveigja fram hjá honum. Sandro pabbi hennar Sol hafði þó stoppað og sagði honum að hjóla áfram. Hann var þá s.s. uppdópaður og ætlaði að fremja sjálfsmorð. Sem betur fer komum við honum frá því og hann þakkaði fyrir. Við fórum svo og þau keyptu sér ís. Fórum svo og biðum eftir að taka bensín í tvo tíma u.þ.b. Svo komum heim klukkan hálf fjögur vegna þessarar löngu bílaraðar.


Tóbias, Kristine, Ég, Marcelo, Shey og Sol í ísbúðinni

Ég og Kristine fyrir utan ísbúðina


 

Í dag vaknaði ég í fyrsta skipti snemma þegar ég þurfti þess ekki. Það var vegna þess að ég skellti mér í kirkjuna hér í bæ. Það var verið að skíra Gianfranco sem er tíu ára gamall og mamma mín var guðmóðir hans. Þessi messa var svolítið öðruvísi en messurnar á Íslandi. Í fyrsta lagi er presturinn frá Póllandi og talar mjög skrýtna spænsku. Svo gera kaþólikar krossmark og kyssa svo hendina. Svo skipta dýrlingarnir líka mjög mikið fyrir þau. Við settumst algjörlega á rétta staðinn vegna þess að fyrir aftan okkur sátu söngfulglar bæjarins. Eða þannig þær sungu alvega rosalega hátt, falskt og miklu hraðar heldur en aðrir meðlimir kirkjusöfnuðusins. Á einum tímapunkti messunnar bað presturinn um peninga til þess að kaupa nýtt gólf í kirkjuna mér fannst það nú svolítið fyndið. Svo talaði hann eitthvað um að það væri slæmt að vera með tyggjó í kirkjunni og að mamma Hitlers hafi verið slæm móðir. Ég skyldi nú ekki mikið af þvi sem hann sagði. Svo á einum tímapunkti áttu allir að kyssa hvort annað og segja "la paz" sem þýðir friður. Smá skrýtið en mér minnir að maður taki bara í hendina í fólkinu á Íslandi og segi eitthvað í sambandi við Guð. Svo eitt í viðbót sem ég man, en það var það að presturinn laug. Hann sagði "soy de Argentína" sem er frekar fyndið þar sem hann er frá Póllandi eins og áður hefur komið fram. 


Skírnin


Svo í dag er mæðradagurinn hérna í Argentínu. Þetta er mjög stór dagur og allir kaupa gjöf handa mömmu sinni og eyða svo deginum með mömmu sinni. Ég keyfti súkkulaði í Neuquén handa mömmu minni og gaf henni svo vettlinga sem mamma mín á Íslandi prjónaði. Hún var rosalega ánægð með þetta og það gladdi mig. Ég var svo þreytt eftir að hafa farið svona seint að sofa þannig að ég var bara að vakna í annað skipti í dag. Á morgun er ég svo að fara að byrja í ræktinni eftir sundtíman. Það verður örugglega æðislegt!




Nokkrar myndir úr daglega lífinu:


+
Örið sem bróðir minn fékk eftir að hafa brotið á sér hendina, glerhart

Sætur hundur sem er með mislit augu, geðveikt krúttlegur

Við systkinin á góðum degi

+
Mamma mín og Lucía litla systir

Húsið mitt


Látum þetta nægja


Chau
-Hrefna Björk


P.s. Kristine benti mér á síðu á netinu sem gerði mig alveg rosalega glaða og það fær mann til að hugsa að það eru litu hltirnir sem gera mann glaða. 
Þetta er síðan: justlittlethings.net


P.s.2 Um daginn var í að horfa á sjónvarpið og heyrði allt í einu íslensku. Þá var einhver þáttur um milljónamæringa í heiminum og viðtal við Magnús í Latabæ. Svo í seinustu viku var í beinni útsendingu viðtal við Justin Bieber. Grenjandi argentínskar stelpur og svipurinn á Justin því að hann skyldi ekki spænsku haha fyndnasta sem ég hef séð í langan tíma.

Paz y amor 

Sunday, October 2

Fróðleiksblogg

Engin veit hvað átt hefur fyrr en misst hefur! Þetta orðatiltæki á mjög vel við fyrir mig núna. Ég sakna allra á Íslandi alveg rosalega mikið.
Ég sakna:
-Fjölskyldunnar.
-Rigningarinnar. Það rignir aldrei hérna! Mér finnst rigning vera mest kózy veður í heimi.
-Rúmið mitt. Það er svo miklu minna rúmið mitt hérna og hart.
-Að læra. Hérna er eigilega aldrei neitt heimanám.


----
Nú kemur nokkur atriði um Argentínu fyrir áhugasama.


Dulce de leche
Það er ótrúlega gott! Mamma mín hérna ætlar að kenna mér að búa það til. Thank god! Bókstaflega þýttDulce de leche þýðir "sætur af mjólkeða "mjólkur sælgæti".  Dulce de leche er upprunalega frá Argentínu. En það er einnig þekkt í Paragvæ og Úrúgvæ þar sem það er mjög vinsælt. Það er einnig þekkt í öðrum löndum í Suður-Ameríku en þá undir öðrum nöfnum. Dulce de leche er einnig þekkt í Frakklandi og Noregi en þá eitthvað aðeins öðruvísi og undir öðrum nöfnum. 


Empanadas


 Það er klárlega uppáhaldsmaturinn minn hérna. Óska þess að ég finni einhvern sem kann að búa það til! :) Þetta er s.s. einhverskonar brauð með fyllingu. Mér finnst best með osti og skinku eða með kjúklingi. Held að það sé ekkert rosalega erfitt að búa þetta til. Empanadas eru ekki uupprunalega frá Argentínu heldur frá Spáni. Það eru til margar gerðir af þessu. Hérna þar sem ég er eru empanadas hitaðar í ofni en t.d. í Tucumán eru þær djúpsteiktar. Þær eru líka stundum gerða að svona bakkelsi, þá er örugglega sett sulta inn í og sykur utan á. Hef samt ekki smakkað það þannig að ég veit ekki.


Buñuelos
Þetta er eftirréttur sem argentínska mamma mín er búin að gera tvisvar sinnum. Þetta er s.s. djúpsteikt deig með hnetu að innan og svo er því velt upp úr sykri þegar það er ennþá heitt. Mjög ljúfengt.Búin að finna uppskrift og þetta er mjög auðvelt. :)


Tarta de jamón y queso


Þetta er mjög ljúfengt. Þetta er s.s. búið til úr tveimur tapas (einhverskonar pönnukökur) svo er sett fullt af gumsi inn í það. Ég hef prófað með osti, skinku og maís.En einnig er hægt að gera með Lauk, eggjum og ertum(veit reyndar ekki hvað það er) og einnig hægt að gera með Káli, salti og kæfu. Lýst nú best á það sem ég er búin að prófa af þessu, en ætla ekki að dæma fyrr en ég er búin að prófa hitt.




Pastelitos 
Sandra frænka skellti í svona um daginn og kom með heim til mín. Mjög bragðgott en veit ekki alveg hvort að það sé hægt að gera svona á Íslandi. Þetta er semsagt deig sem er djúpsteikt (held ég er allavegana mjög hart) og svo er sulta í miðjunni. En var svo að spyrja mömmu út í það og þá þarf að nota einhverja sérstaka vél til þess að búa þetta til. Hún ætlar að fara að kenna mér þetta.


Milanesa


Klárlega besta sem ég hef smakkað hérna. Mjög auðvelt. Er búin að smakka milensa de carne (carne=kjöt), milanesa de pollo (pollo=kjúklingur) og milanesa de pescado (pescado=fiskur). Allt mjög gott og eins og ég sagði áður auðvelt. Maður kaupir kjöt/fisk/kjúkling. Veltir því upp út eggjum og oregano og svo strax velt upp úr brauðminslu. Svo er þetta steikt á pönnu. Þegar ég er spurð hvað ég vilji borða segi ég alltaf þetta. Mjög ljúfengt.


Svo þar sem Argentína er mjög þekkt fyrir Maté og Tereré ætla ég að setja smá fróðleiksmola hér að neðan. 


Maté
Maté er skál (oft í laginu eins og lítil kókoshneta með gati) sem kallast Gourd. Gourds geta verið allt frá útskornu tréi til gullskreyttra fjölskyldudýrgripa. Til að neyta innihaldsins er notað sérstakt rör að nafni bombilla (sagt bombísja) með filter í botninum til að innihaldið fari ekki í munninn, bara safinn. Það getur verið úr ódýru járni allt að silfri eða gulli og getur haft allskonar lögun og skreytingar.Nánast alltaf þegar fólk hittist er boðið upp á mate. “Að fara í garðinn og drekka mate” er eins og afsökun fyrir því að hittast og chilla í sólinni.


Í gamla daga voru upper-class fjölskyldur oft með sérstakan þræl eða þjón sem sá hreinlega bara um að undirbúa og þjóna til mate. En núna er einn cebador(server, veit ekki hvernig það er á íslensku) sem fyllir næstum allt gourdið með yerba (sagt sjerba). Yerba mate eru þurrkuð skorin lauf af jurtinni llex paraguyensis. Síðan er hitað en ekki soðið vatn í pava og smá hellt ofan í gourdið. En cebadorinn verður að hella vatninu mjög hægt nálægt bombillunni og svo láta mateið ganga klukkuhringinn. Hver klárar vatnið og lætur svo cebadorinn fá mateið og hann refyllir og lætur næstu manneskju fá. Góður cebador lætur mateið ganga án þess að skipta á yerba í einhvern tíma. Maður skal ekki halda gourdinu hjá sér of lengi. Það er nóg að segja einu sinni gracias ef maður vill ekki meira. Landfræðilegur fjölbreytileiki fylgir mateinu. Frá Pampassvæðinu  og suðurútfrá er drukkið mate amargo (án sykurs) en norðar er algengt að drekka það dulce (sætt). Paraguya-ar drekka mate ískalt sem tereré. Að meðaltali drekkur hver Argentínumaður u.þ.b. 5Kg af mate á ári sem er mun meira en almenn kaffineysla á heimsvísu. Þegar þú kaupir þér mate verðuru að “lækna” það áður með því að setja heitt vatn og yerba og láta það standa í 24 tíma. [Stolið af bloggsíðunni hennar Nínu: www.nina-argentina.blogspot.com (vonandi var það í lagi)]
Ég drekk ekki mikið maté með vinum mínum vegna þess að þeim finnst það ekki mjög gott en ég drekka það meira með fullorðnu fólki eins og mömmu, ömmu, frænkum og frændum.

Tereré

Það er drukkið úr Maté og með yerba en í staðinn fyrir að setja heitt vatn er sett ískaldur appelsínusafi. Hljómar illa en þetta er geðveikt gott og mér finnst þetta betra en Maté. Tereré er aðeins drukkið þegar það er gott veður og heitt, en maté er meira á veturnar þegar það er kalt þótt að það sé drukkið allt árið um kring. 


Aðrir drykkir sem er mikið drukkið af:
-Gos (ALLTAF, aldrei vatn með matnum alltaf gos)
-Te (hér drekka allir te konur,kallar, gamlir og ungir)
-Maté, ofc


------------------------


Svo maður segi aðeins frá því hvað á daga manns hefur drifið.


Á fimmtudaginn og föstudaginn var ég veik og gerði allavegana ekki neitt á fimmtudaginn. Á föstudaginn var svo AFS hittingur, sem var bara fínt. Hittum hina skiptinemana og áttum að skrifa niður þrjá góða hluti sem við vorum sátt með um systkini okkar og þrjá slæma. Eftir hittinginn fórum við heim (Ég, Sol og Kristine) og horfðum á Remember me. Geðveik mynd btw mæli með henni ef þið eruð ekki búin að sjá hana. Á laugardaginn var svo bara frekar mikill chill dagur. Reyndar var Marcelo að keppa í handbolta alla helgina svo það var í fyrsta skipti sem ég var bara ein. Sem var tilbreyting. Svo á sunnudaginn fórum við í eyðimörkina sem er hérna rétt fyrir utan Cervantes ásamt Naty (eldri systir minni), Juliana (dóttir Naty), Juan (kærasti Naty) og þremur vinkonum Naty og mömmu þeirra. Ein vinkonan á strák með Downs heilkenni og hann var alveg kostulegur. Kunni mikið af dónalegum orðum og merkjum. Áttum þar góða stund og drukkum Maté og skoðuðum okkur um. Það voru nú samt ekki allir jafn spentir fyrir því að fara, nefni engin nöfn. Svo um kvöldið fórum við að hitta vinahópinn og svo var bara farið að sofa enda skóli daginn eftir. Ég var greinilega ekki alveg búin að jafna mig af veikindunum og fór heim veik úr skólanum í gær en var búin að jafna mig seinni partinn. Fórum þá um kvöldið til að hitta nokkra vini og borðuðum saman og horfðum á mynd. Svo var dagurinn í dag bara frekar mikið chill. Enginn skóli út afþví að bærinn minn átti afmæli í dag. 


               
                                                                 Marcelo Indijáni
Mamma á leiðinni heim frá eyðimörkinni




Marcelo,Kristine og ég


Einn af sex hvolpunum sem hundurinn minn á
Segi þetta gott, heimta komment! Haha tók slatta tíma að gera þetta blogg ;)


Chau,
Hrefna Björk