Ég trúi því ekki að 11 mánuðir séu liðnir síðan ég steig upp í flugvélina á Keflarvíkurflugvelli til þess að halda á vit ævintýranna í Argentinu. Ég hafði ekki hugmynd um hvað ég var að koma mér í! Ég hafði allt aðra hugmynd um skiptinámið heldur en kom svo í ljós. Þetta ár er búið að vera það erfiðasta, skemmtilegasta, klikkaðasta og einfldlega besta ár sem ég hef lifað.
Jafnvel þótt að ég hafði vandamál, þegar argentínsku vinir mínir áttu í erfiðleikum, eða þegar alþjólegu vinir mínir höfðu við vandamál að stríða, þá sé ég eftir á að allt þetta hefur hjálpað mér heilmikið. Ég á aldrei eftir að gleyma öllu þessa góða fólki sem ég kynntist hérna í Argentínu. Ég fer héðan þakklát með gleði í hjarta!
Núna er búin erfiðasti dagur lífs míns, þegar ég þurfti að kveðja fjölskylduna mína og vini, sem er svo allt of erfitt vegna þess að ég hef ekki hugmynd um hvenær ég kem aftur!!!
Ég kveð Argentínu með augun full af tárum en með mikla gleði í hjartanu!
Hrefna Björk
Í Argentínu er geymdur stór partur af hjartanu mínu!





