Warning: Mjög langt blogg
Nú er maður búin að vera í Argentínu í meira en mánuð. Það er allt orðið frekar venjulegt. Áður en ég kom hingað bjórst ég við að landið væri miklu meira eins og þriðja heims ríki en Argentína er frekar þróað land. Það er þó margt sem er öðruvísi en á Íslandi:
Skólinn
Hann er frekar næs eins og ég held að ég hafi sagt áður þá er hann bara fjórir klukkutímar. Hann byrjar 7:30 með því að við förum í raðir og það er spilaður þjóðsöngur Argentínu á meðan einhver kona og tveir random krakkar (held að það sé random) draga argentínska fánan að húni. Þau þrufa að fara út til þess að gera það (augljóslega) en um daginn þá gat skólastjórinn ekki opnað hurðina og það reyndu nokkrir aðrir líka. Hafðist svo á endanum en þetta var frekar fyndið haha. Eftir þjóðsönginn förum við inn í stofuna. Það eru soldið öðruvísi skólastofurnar hérna en á íslandi. Borðin eru ótrúlega lítil og svolítið subbuleg allavegana sum. Það er ekki hægt að loka hurðunum. Það er nefnilega engin hurðahúnn. Fögin sem ég er í:
Bókhald
Stærðfræði
Argentínskar bókmenntir
Lengua (gamalt spænskt mál sem er bara einhver tákn, s.s. eitt tákn er sama sem eitt orð. Kennarinn er samt búin að segja mér og Kristine að við þurfum ekki að fylgjast með, sem er næs)
Lögfræði
Tölvum (s.s. að læra að skrifa í tölvur og eitthvað fleira)
Efnafræði
Eðlisfræði
Líffræði
Ensku
Landafræði
Sum fögin skil ég bara ekki. Þar má t.d. nefna bókhald. Það er mesta bull sem ég hef séð. Ég skil stærðfræðina þar sem það er verið að kenna það sem ég lærði í grunnskóla. Og ensku kennslan hérna er sorgleg. Ég er betri í ensku heldur en enskukennarinn! Hún útskýrir fyrst á ensku fyrir mig og Kristine en af því hinir skilja ekki neitt þarf hún alltaf að útskýra á spænsku eftir á. EF krakkarnir vilja læra ensku þurfa þau að fara eitthvert annað. Það er líka mjög erfitt fyrir þau vegna þess að allt sjónvarpsefni er á spænsku. Talsett, einstaka sinnum með texta.
Í skólanum þurfum við að vera í skólabúning, annaðhvort svoan efnafræðislopp eða svona eins og eldabuskuföt sem ég klæðist í skólanum. Stundum
Það er ekki lesið upp fyrir hvern tíma heldur vinnur kona við það að skrá mætingu eins og ég hef sagt áður. Hún kemur líka með möppu eftir fyrsta tíman og þar stendur í hvaða tíma við erum að fara þann daga. Mér finnst við alltaf vera að sleppa sömu fögunum.
Tvisvar í vikur förum við í leikfimi. Það er skipt í stráka og stelpu hópa og stelpurnar eru alltaf fyrst. Við förum samt alltaf fyrst heim að borða hádegismat og svo mætum við í leikfimi. Leikfimi fellur eigilega alltaf niður eins og í dag. Alveg yndislegt.
Mannleg hegðun
Þau eru ALLT öðruvísi en á Íslandi. Þegar maður mætir í skólann þá kyssir maður alla. Þegar maður mætir í skólan á Íslandi þá segir maður bara "hæ". Sumir hugsa örugglega að það sé geðveikt vandræðalegt að þurfa að kyssa alla, en það er bara minna vandræðalegra heldur en að segja hæ og ekkert meir. Það eru samt ekki alveg allir sem kyssast. Sumir strákar kyssa ekki aðrastráka og þá er bara gerðar einhverjar handahreyfingar.
Áður en ég fór út var búið að segja mér að það væri borin mjög mikil virðing fyrir eldra fólki. Ég get alls ekki verið sammála því. Mér finnst vera borin meiri virðing fyrri þeim á Íslandi.
Hérna er allt í lagi að dangla í annað fólk og það er mikið gert að því. Það er líka notað mikið af blótsyrðum, sem eru þó ekki notuð illa meint. Það eru allir mjög rólegir hérna og kippa sér eigilega ekki upp við neitt. T.d. það að fólk sem á lítl börn halda bara á þeim í framsætunum á bílum og það eru ekki margir sem nota kerrur fyrir krakkana sína. Ég var líka á torginu um daginn og það var kona me krakka sem missti dudduna sína. Hún kiptti sér lítið upp við það, hún bara stakk henni fyrst upp í sig og svo aftur upp í krakkann.
Fólk hérna þekkir eigilega ekkert annað en Argentínu og vita þess vegna ekki hvernig restn af heimunum. Hér er t.d. ekki til uppþvottavél (skv. ltilu systur minni).
-----------------
Svo þetta verði ekki bara hugleiðingar þetta blogg ætla ég að segja fræa þessari rúmu viku síðan seinast.
Á mánudaginn og þriðjudaginn var ekki skóli, veit ekki alveg af hverju
Kia (skiptineminn frá Bandaríkjunum) fór heim fyrir viku. Við eyddum stórum hluta af þriðjudeginum með henni. Ég og Marcelo tókum svo strætó til Roca til þess að kveðja hana á rútustöðinni. Hún þrufti að taka 15 klst. rútu vegna þess að það er enn þá eldgos í Chile. Þetta var frekar skrýtið moment. Systir hennar var alveg rosalega leið en þegar við komum heim aftur hætti hún að gráta. Með hvejrum deginum verður hún samt aðeins sáttari.
Miðvikudagurinn byrjaði með skóla. Eftir skóla fór ég svo með Sol (systir Kristinar), Kristine og Shey (systir Kiu) á fjórhjólunum þeirra hérna út í eyðimörkina (rétt hjá) til þess að hlaupa. Alveg ótrúlega gaman á fjórhjólinu.
Á fimmtudaginn fór ég í fyrsta skólaferðalafgið. Við mættum í skólann á venjulegum tíma og fórum í rútum til Nequén. Þar byrjuðum við á að skoða einverja flísaverksmiðju. Skil ekki alveg af hverju við vorum að því. Sýndist þau bara framleiða eina gerð af flísum, en það voru flottar flísar. Við fórum svo aftur í rútunum og í einhverja byggingu þar sem var háskólakynning. Það var sem sagt hver og einn háskóli með bás. Svo var svona "Easy test" og það var ágætt að horfa á það, Samt frekar þreytandi af því að við horfðum á það í tvo eða þrjá tíma. Við fórum líka að skoða flugvölllinn. Mættum síðan aftur ti Cervantes um klukkan sjö.
Á föstudaginn fórum ég og Kristine á "AFS Campamento". Ég bjóst við að það yrði leiðinlegt að svo var það bara frekar gaman. Við hittum hina skiptinemana sem eru í Roca og einnig krakka sem búa
i Roca og eru að fara sem skiptinemar. Námskeiðið byrjaði á því að við frengum blað sem á var tré með fullt af köllum og við áttum að lita þann kall sem lýsti tilfinningum okkar. Svo áttum við að útskýra af hverju við lituðum þennan kall. Svo áttum við að teikna fjölskylduna okkar og skrifa eitt orð fyrir hvern fjölskyldumeðlim. Set kannski mynd af því inn á facebook. Aðfaranótt laugardagsins var ekki mikið sofið. Sváfum í einhverja fjóra tíma. Á laugardaginn voru einhverjir leikir og svo var bara haldið heim á leið.
Á laugardaginn bauð fjölskyldan hennar Kristinar minni fjölskyldu og fjölskyldunni hennar Shey í Asado hjá "Río Negro". Það var alveg frábær dagur ótrúlega gott veður og umhverfið er alveg ótrúlega fallegt.
Á laugardagskvöldið var okkur boðið í mat hjá mömmu eins stráks í skólanum (Guianluca). Mamma hans og fósturpabbi eru sem sagt "clase alto" og það var mjög áhugavert að sjá hvernig þessi stétt býr. Húsið var alveg ótrúlega flott. Sundlaug í garðinum og ótrúlega flott húsgögn. Það var samt ótrulega kalt þarna inni. Fengum ótrúlega góðan mat og svo var spjallað langt fram á nótt.
Á sunnudaginn borðuðum við Asado eins og venjulega og svo fórum við út á torgið vegna þess að það var svona vorhátið/dagur nemandans. Það var svona keppni. Það voru átta í hverju liði fyrir hvern bekk. Ég tók þátt í einhverjum leikjum. Einn var t.d. þannig að það var boðhlaup og við áttum að snúa okkur í tíu hringi og hlaupa svo til baka það var frekar fyndið. Veit ekki alveg hver vann þetta. Svo um kvöldið voru einhverjar hljómsveitir að spila. Sá reyndar bara eina ( sem sökkaði btw) því að ég fór heim.
Í gær var alveg æðislegt veður og við fórum á torgið með nokkrum vinum. Það var mjög gaman. Hérna er komið alveg æðislegt veður og miklu heitari en nokkru sinni á Íslandi. Vorum einu sinni að borða hádegismat og ég var að kafna og þau voru eitthvað "okkur er ekkert heitt". Ég er að fara að deyja hérna í sumar.
Þangað til næst
-Hrefna Bjök
Nokkrar myndir hérna í lokinn. Skólabúningar. Hundarnir mínir. Río Negro