Monday, December 19

4 meses de aventura

Eins og titillinn gefur til kynna fyrir þá sem kunna eitthvað í spænsku eru fjórir mánuðir síðan ég settist upp í flugvélina á keflavíkurflugvelli til þess að halda á vit ævintýranna. Og síðan þá getið þið ekki ímyndað ykkur allt það sem ég hef upplifað og lært og hvað þetta ár á eftir að vera besta ár lífs míns. 


Síðan seinast og líka því sem ég gleymdi seinast...


Festival de Danzas
Ég á góða vinkonu hérna í Argentínu sem heitir Sheyla. Hún er alveg rosalega góður dansari og hefur verið að æfa dans í níu ár. Hún dansar margar tegundir af dans: Ballet, freestyle og  einhverja spænska dansa. Á sunnudaginn fyrir viku eftir að ég kom heim frá ströndinni var lokahátíð hjá dansskólanum hérna í Cervantes. Það voru stelpur alveg niður í þriggja ára og alveg upp í miðaldra sem sýndu listir sínar. Ekki einungis var þetta lokahátíð heldur var Sheyla að ná þeim áfanga að verða danskennari og getur kennt hvar sem er og getur einnig opnað sinni eigin dansskóla ef hún hefur áhuga á því. Þess vegna fékk hún líka að dansa sóló. Þetta var svo fallegt allt!


Sheyla að dansa Sóló


Litla frænka mín að dansa...alveg rosalega hæfileikarík!



Hópurinn hennar Sheylu að dansa freestyle
Að dansa einn af spænsku dönsunum

Eftir að hún var búin að taka við "diplonanum"


Útilega
Á fimmtudagskvöldið héldum við bekkurinn útilegu hjá ánni. Böðuðum okkur í ánni. Borðuðum asado. Fórum í göngutúr. Enduðum svo liggjandi á jörðinni til þess að horfa á stjörnurnar. Og ég sá mitt fyrsta stjörnuhrap...en gleymdi að óska mér. Fórum svo að sofa seint og um síðir en vöknuðum eldsnemma morguninn eftir og snerum heim til okkar.

+
Við að reyna að tjalda :)


Ég er alltaf hress og kát!

Asado

Það var bannað að kveikja varðeld...

...en við gerðum það samt!

Allir í stuði!




Útskriftaveisla
Elsta systir mín hún Naty var að útskrifast úr háskólanum núna á föstudaginn síðasta. Hún er búin að vera að læra kennarann í sex ár núna. Þetta var alveg rosalega falleg athöfn og mjög hátíðleg. Það voru 25 sem útskrifuðust sem er með því mesta undanfarin ár...

Fyrst voru allir útskrifaðir kallaðir upp með nafni og látnir labba inn í salinn

Mamma og Naty

Alvöru ostur!

Mamma og amma

Djamm
Örgum finnst mjög gaman að fara út að DANSA...það var í fréttunum hérna í Argentínu um daginn að Íslendingar drykkju alveg rosalega mikið af vodka og að við værum alltaf full. Veit ekki alveg hversu mikið er til í því. En hérna í Cervantes opnaði bar á laugardaginn og það var í fyrsta skiptið sem ég sá mikið af Argentínumönnum vel í glasi. Ég tók engar myndir...en á aðfangadag og um áramótin förum við aftur og þá verður tekið nóg af myndum ;)

Festival de Artes
Alltaf um viku fyrri jól er haldin listahátíð hérna í Cervantes. Þá koma allir listamennirnir saman og sýna það sem þeir eru búnir að vera að vinna að. Það var dansað, sýnt leikfimi og þess sem dans/klappstýru hópur sýndi lisitr sínar. Svo voru básar þar sem málarar sýndu sín verk og einn maður hérna í Cervantes gerir rosalega falleg Maté og hitabrúsa með myndum og nöfnum. Það verður pottþétt splæst í þannig áður en ég kem aftur til Íslands. Tók ekki neinar myndir þarna heldur :/

Núna þegar sumarfríið er alveg á fullu förum við út að hitta vinina nánast á hverju kvöldi og auk þess er eiginlega farið að dansa hverja helgi líka...þannig að það er alveg nóg að gera. Svo förum við eiginlega að ánni á hevrjum degi vegna þess að hitinn hérna fer oftast ekki niður fyrir 30°C. 

Ég vil óska öllum gleðilegra jóla og farsældar á komandi ári. Hvort sem þið eruð stödd nær eða fjær. Ég á allavegana eftir að eiga skrýtin jól og áramót! Þangað til jóla- og áramótabloggsins þá segi ég bæ :)

-Hrefna Björk




4 comments:

  1. Elsku Hrefna Björk; gaman að heyra frá þér og fá að fylgjst með ævintýrinu. Við frændi óskum þér innilega gleðilegra jóla og farsældar á nýju ári. Þetta verða alveg örugglega öðruvísi jól en þú hefur upplifað áður, og erfitt að vera fjarri fjölskyldunni. En þegar upp er staðið, verður þetta dýrmæt reynsla sem þú hefðir ekki viljað vera án. Þetta er tími sem ekki kemur aftur, svo að njóttu hans vel. Hlökkum til að sjá þig í sumar og heyra meira. Haltu áfram að blogga; það er svo gaman að fá að fylgjast með :)
    Kveðja Hrafnhildur Proppé og GG

    ReplyDelete
  2. Elsku Hrefna Björk mín
    mikið er gott að sjá hvað þér líður vel, enda nóg að gera hjá þér, þannig líður þér best :-)
    við söknum þín hér í jóla-stússinu, en það eru líka öðruvísi jól þetta árið hjá okkur...
    Hafðu það alltaf sem best.Gleðileg jól, við hittumst á skypinu á aðfangadagskvöld, allavega á Facinu :-) Knús og kossar

    ReplyDelete
  3. Hæ skvís
    Ekkert smá skemmtilegt blogg sem ég er ekki nógu dugleg að heimsækja :/ Greinilega mikið fjör en vá hvað þetta er ógirnilegu matur þarna á ströndinni ekki er þetta gott?
    Knús og hafðu það sem allra best um jól og áramót og bara alltaf :D Svo færðu fullt af pökkum þegar þú kemur heim í sumar get ekki beðið ;)
    Knús og kossar Kristín og allar voffaskvísurnar biðja líka að heilsa :)

    ReplyDelete
  4. hæhæ!
    Snilld ad það sé alltaf verið að hittast og gera eitthvað. Það er greinilega frábært fólk þarna í kringum þig, sem er það mikilvægasta.
    Þorláksmessa í dag, en suttbuxur hjá mér líka. Meira en lítið skritið, en forvitnilegt. Við munum sjá alveg nóg af íslenskum jólum en bara þessi einu s-amerísku jól.
    Hafðu það sem best Hrefna mín. -Rósa xoxo

    ReplyDelete