Wednesday, July 27

Nú er þetta allt að koma

Nú eru allir Argentínufararnir komnir með fjölskyldu og er okkur dreift um allt landið :)

Fyrir nokkru síðan þá fengum við póst um það að mögulega væri seinkað brottför okkar um mánuð. Það var vegna þess að AFS í argentínu hélt að þau myndu ekki ná að klára visa umsóknirnar nema fyrir 50% nemenda. Þau náðu svo að gera fyrir 87% nemenda og þess vegna fara allir á sama tíma, s.s. 18.ágúst. Þá verða þeir sem ekki eru komnir með visa að koma inn í landið sem ferðamenn og sækja um visað þegar við komum út. Við fáum örugglega að vita bráðlega hvort að einhver af okkur Íslendingunum þurfum að gera það ;)

Rósa er svo að fara til Brasilíu á mrg. og það var alveg rosalega skrýtið að kveðja hana í gær og það fékk mig til þess að hugsa hvað það er alveg rosalega stutt í þetta hjá mér, bara 22 dagar.

Nú er ég búin að tala við bróðir minn úti næstum því á hverjum degi og mér líst alveg rosalega vel á fjölskylduna. Núna veit ég að ég verð í sér herbergi og lengsti dagurinn í skólanum er til 12:30, sem er ekki slæmt.

Endilega kommentið! :D

-Hrefna Björk

2 comments:

  1. Vó hvað það styttist í þetta hjá þér! :) en vel gert að vera komin með blogg, verður gaman að fylgjast með þér ;*

    ReplyDelete
  2. Vá hvað þetta er spennandi! Held þú eigir eftir að skemmta þér vel í Argentínu! Sammála Elvu, það verður gaman að fylgjast með þér:)

    ReplyDelete