Wednesday, August 24

Komin!

Halló J

Allt gott að frétta hérna frá Argentínu. Hef ekki nennt að blogga vegna þess að það er alveg nóg að gera hérna.

Ferðalagið:

Ég lagði að stað klukkan 6:45 á fimmtudagsmorguninn (17.ágúst) en við áttum flug til New York klukkan 10:30. Við biðum í New York í fjóra klukkutíma og svo flugum við til Atlanta. Við biðum þar í þrjá tíma og við misstum næstum því að fluginu til Buenos Aires haha. Það var byrjað að kalla okkur upp og læti. En maður skilur nú lítið þegar bandaríkjamaður segir nafnið manns. En við komust alla leið.

Námskeiðið:

Ég var sett í Camp Green og við vorum á einhvers konar hóteli sem heitir Mariapolis. Það var mjög áhugvert og gaman. Við vorum þar í þrjá daga og það voru tvær íslenskar stelpur sem voru með mér. á sunnudeginum þá vorum við vakinn klukkan sex þótt að við sem vorum að fara til General ROca og Nequén áttum ekki flug fyrr en klukkan 17. Mjög skrýtið.

Cervantes:

Við komum til Cervantes um klukkan átta og þá voru allar fjölskyldurnar komnar og þær voru allar búnar að búa til svona plakkat með nöfnunum okkar, mjög flott. Það tók svona klukkutíma að keyra frá Nequén til Cervantes. Fólk hérna keyrir MJÖG hratt og notar ekki bílbelti. En við komust alla leið haha. Fyrsta kvöldið Þá fórum við og borðuðum hjá systur minni, Natalíu og hinir skiptinemarnir komu líka. Prufuðum „Asado“ sem er svona fullt af alls konar kjöti sem er grillað á útigrilli. Fórum svo bara heim.

Ég byrjaði svo í skólanum í gær og það var bara mjög fínt og krakkarnir eru mjög næs. Þurftum að kynna okkur fyrir bekknum í gær og svo fyrir öllum skólanum í dag. Skóladagurinn er frekar næs þar sem hann er bara fjórir klukkutímar. og svo í dag var hann styttri vegna þess að einhver kennari var ekki.

Ég er búin að fara til General Roca sem er stór bær hérna rétt hjá og þar keypti skó og Kristine (norski skiptineminn) keypti skólabúning

Læt þetta duga ;)

-Hrefna Björk

4 comments:

  1. frábært að sjá að það er gaman hjá þér! Græðir greinilega mikla og góða reynslu á þessu! en með bílbeltin ? shit. Notar þú engin heldur? :p

    ReplyDelete
  2. Ég er nú bara búin að fara einu sinni í bíl og við vorum sex í bílnum haha en nei ég notaði ekki bílbelti. Geri það næst ;)

    ReplyDelete
  3. Gaman að heyra frá þér :) En ert þú og norska stelpan saman í skóla?

    ReplyDelete
  4. Ég er með Tveimur skiptinemum í bekk :)

    ReplyDelete