Sunday, October 16

Lífið á sléttunum

Jæja nú er ég búin að búa hérna í Argentínu í næstum því tvo mánuði!


Núna er mér byrjað að líða mjög vel hérna og mér finnst ég vera partur af argentínsku fjölskyldunni minni.
Nú kemur smá update á því sem ég er búin að vera bralla hérna í Argentínunni síðustu vikurnar:



Mánudagurinn 3. október var ekki skóli vegna þess að þann dag átti Kristófer Kólumbus að hafa fundið Ameríku, sem er auðvitað kjaftæði. En fínt að fá frí í skólanum. Vegna frídagsins fórum ég, Marcelo, Kristine, Sol, Juan og Gianluca á Boliche á sunnudagskvöldið. Það var alvega rosalega skemmtilegt og eigilega skemmtilegasta skiptið út af því að maður er loksins búin að kynnast fólkinu almennilega og búin að eignast góða vini hérna eða eins og það er á spænsku "amigos de corazón" (Vinir hjartans). Ég man nú eigilega ekkert hvað við gerðum þessa vikuna :/ ókosturinn við að skrifa ekki dagbók en það getur varla verið merkilegt víst að ég man það ekki.




 Þetta er ég og Gianluca, það er ekki hægt að taka góða mynd af honum, það er alltaf eins og hann sé á einhverju
Hittum leikfimiskennarann okkar sem var að djamma, frekar skrýtið að hitta kennarann sinn á skemmtistað en það er samt venjulegt hér




Í seinustu viku var bara frekar venjuleg. Á miðvikudaginn byrjaði ég í sundi og fór  með Kristine, Lidiu (gömul frænka) og tveimur öðrum krökkum sem fá greinilega alltaf far með frænkunni. Það var alveg æðislegt að byrja að synda aftur og maður gat nú alveg eitthvað ennþá sem betur fer. Um kvöldið fór ég svo að horfa á eina bekkjarsystur á handboltaæfingu en hún vildi endilega að ég byrjaði í handbolta. Ég held að ég sleppi því!


 Á föstudaginn var mér boðið heim til Elínborgar (önnur íslensk stelpa hér í Argentínu) en hún á heima í Neuquén sem stór borg hérna í klukkutíma fjarlægð. Ég fór með fjölskyldunni hennar Kristine vegna þess að fjölskyldan mín á ekki bíl og Kristine var líka að fara að heimsækja aðra norska stelpu í Neuquén. Það er svolítill munur á fjölskyldunum okkar. Við löbbuðum aðeins um Neuquén og svo horfðum við á mynd en ég var svo ótrúlega þreytt að ég sofnaði, sem gerist aldrei. Við vöknuðum á laugardaginn og gerðum aðra tilraun til þess að klára myndina en ég sofnaði eins og skot haha. Við skelltum okkur svo niður í Neuquén down town og fengum okkur maté á torginu og fórum svo að kaupa gjafir handa mömmum okkar hérna í tilefni mæðradagsins.Ég fór svo heim til mín. 




Ég á torginu í Neuquén með þjóðardrykkinn, Maté

Elínborg með blómin sem hún keypti handa mömmu sinni

Mér og bróðir mínum var boðið í kvöldmat heima hjá Sol og Kristine. Eftir að við vorum búin að borða ákváðum við að fara til Roca til þess að kaupa ís. Þegar við vorum á leiðinni til Roca þá sáum við strák á hjóli á hinum vegarhelmingnum. Við héldum að hann væri bara að bíða eftir því að fara yfir en þegar við vorum komin fram litum við aftur fyrir okkur og sáum að hann færði sig ekki þótt að það kom bíll sem þurfti að sveigja fram hjá honum. Sandro pabbi hennar Sol hafði þó stoppað og sagði honum að hjóla áfram. Hann var þá s.s. uppdópaður og ætlaði að fremja sjálfsmorð. Sem betur fer komum við honum frá því og hann þakkaði fyrir. Við fórum svo og þau keyptu sér ís. Fórum svo og biðum eftir að taka bensín í tvo tíma u.þ.b. Svo komum heim klukkan hálf fjögur vegna þessarar löngu bílaraðar.


Tóbias, Kristine, Ég, Marcelo, Shey og Sol í ísbúðinni

Ég og Kristine fyrir utan ísbúðina


 

Í dag vaknaði ég í fyrsta skipti snemma þegar ég þurfti þess ekki. Það var vegna þess að ég skellti mér í kirkjuna hér í bæ. Það var verið að skíra Gianfranco sem er tíu ára gamall og mamma mín var guðmóðir hans. Þessi messa var svolítið öðruvísi en messurnar á Íslandi. Í fyrsta lagi er presturinn frá Póllandi og talar mjög skrýtna spænsku. Svo gera kaþólikar krossmark og kyssa svo hendina. Svo skipta dýrlingarnir líka mjög mikið fyrir þau. Við settumst algjörlega á rétta staðinn vegna þess að fyrir aftan okkur sátu söngfulglar bæjarins. Eða þannig þær sungu alvega rosalega hátt, falskt og miklu hraðar heldur en aðrir meðlimir kirkjusöfnuðusins. Á einum tímapunkti messunnar bað presturinn um peninga til þess að kaupa nýtt gólf í kirkjuna mér fannst það nú svolítið fyndið. Svo talaði hann eitthvað um að það væri slæmt að vera með tyggjó í kirkjunni og að mamma Hitlers hafi verið slæm móðir. Ég skyldi nú ekki mikið af þvi sem hann sagði. Svo á einum tímapunkti áttu allir að kyssa hvort annað og segja "la paz" sem þýðir friður. Smá skrýtið en mér minnir að maður taki bara í hendina í fólkinu á Íslandi og segi eitthvað í sambandi við Guð. Svo eitt í viðbót sem ég man, en það var það að presturinn laug. Hann sagði "soy de Argentína" sem er frekar fyndið þar sem hann er frá Póllandi eins og áður hefur komið fram. 


Skírnin


Svo í dag er mæðradagurinn hérna í Argentínu. Þetta er mjög stór dagur og allir kaupa gjöf handa mömmu sinni og eyða svo deginum með mömmu sinni. Ég keyfti súkkulaði í Neuquén handa mömmu minni og gaf henni svo vettlinga sem mamma mín á Íslandi prjónaði. Hún var rosalega ánægð með þetta og það gladdi mig. Ég var svo þreytt eftir að hafa farið svona seint að sofa þannig að ég var bara að vakna í annað skipti í dag. Á morgun er ég svo að fara að byrja í ræktinni eftir sundtíman. Það verður örugglega æðislegt!




Nokkrar myndir úr daglega lífinu:


+
Örið sem bróðir minn fékk eftir að hafa brotið á sér hendina, glerhart

Sætur hundur sem er með mislit augu, geðveikt krúttlegur

Við systkinin á góðum degi

+
Mamma mín og Lucía litla systir

Húsið mitt


Látum þetta nægja


Chau
-Hrefna Björk


P.s. Kristine benti mér á síðu á netinu sem gerði mig alveg rosalega glaða og það fær mann til að hugsa að það eru litu hltirnir sem gera mann glaða. 
Þetta er síðan: justlittlethings.net


P.s.2 Um daginn var í að horfa á sjónvarpið og heyrði allt í einu íslensku. Þá var einhver þáttur um milljónamæringa í heiminum og viðtal við Magnús í Latabæ. Svo í seinustu viku var í beinni útsendingu viðtal við Justin Bieber. Grenjandi argentínskar stelpur og svipurinn á Justin því að hann skyldi ekki spænsku haha fyndnasta sem ég hef séð í langan tíma.

Paz y amor 

3 comments:

  1. Gaman að fá að fylgjast með! gott að það er gaman! :) knús, Ella og Dögun... já og Oddur :p

    ReplyDelete
  2. elsku Hrefna Björk mín , ég vona að þú komir heim í júlí, en gaman hvað þér líður vel :-)
    knús
    MAMMA

    ReplyDelete
  3. nú er ég loksins farin að læra að commenta :-)

    ReplyDelete