Vikan var frekar róleg í skólanum, hópskróp á mánudaginn og starfsdagur á miðvikudaginn.
Á fimmtudaginn átti elsta systir mín hérna í Argentínu 25.ára afmæli. Þannig að til hamingju með afmælið Naty :) Við fórum þess vegna heim til hennar í afmælisveislu á fimmtudaginn. Þar mættu flestir úr fjölskyldunni og þetta var bara nokkuð gaman. Tók nokkrar myndir:
Marcelo, vinkona Naty (sem btw er búin að missa 40 kg), Naty, Juliana, Ale og mamá
Naty, Juliana og amman
Þetta er mjög normal hérna í Argentínu að hestarnir séu bara inn í miðri íbúðargötu
Kris og ég
Ég, Krist og Sol
Marcelo og einhver gaur
Um daginn kom kona hérna í heimsókn og var mikið að spyrja hver væri munurinn á Íslandi og Argentínu og þess vegna ætla ég að byrja með svona samanburð hérn í blogginu mínu.
Barnauppeldi
Það er allt öðruvísi en á Íslandi. Um daginn var ég til dæmis út á leikvelli og klukkan var orðin hálftvö (um nótt) kemur þá ekki einhver mamma með svona tveggja og fjagara ára barn og plantar þeim við hliðina á mér í róluna eins og ekkert væri eðlilegra. Svo var bara rólað. Einnig hef ég oft séð að börn til dæmis missa dudduna sína. Á Íslandi þá er duddan soðin eða allavegana farið með það að þrífa það. Hérna hef ég tvisvar sinnum séð konur bara stinga snuðinu fyrst upp í sig og svo bara aftur upp í barnið. Svefntími. Þar sem hérna er borðað svona á bilinu 21-23 þá fara börnin mun seinna að sofa. Á meðan á Íslandi er alveg bara, barnið fer að sofa á þessum tíma annars fer allt í rugl með svefntímann. Lítil börn hérna líka drekka gos. Fékk sjokk í fyrsta asadoinu mínu þegar það var bara helt gosi í pelan hjá eins árs gamallri frænku minni. En ég verð að segja að börnin hérna eru miklu rólegri. Ekki næstum því jafn frek og íslensku börnin.
En þá er þetta bara komið, þangað til næst
-Hrefna Björk
Marcelo og Alejandro
Doky, hundurinn hennar Sol
Uppáhaldsbróðir minn sem er lang bestur, te quiero mucho!
alltaf gaman að lesa hvað þú ert að gera :-) spurning ; Hvenær sefur þú ? þú vakir á nóttinni :-) Njóttu lífsins, elsku Hrefna Björk mín.KNÚS OG KOSSAR
ReplyDeleteGreinilega stuð hjá þér :)
ReplyDeleteKnús Kristín