Á gamlársdag vaknaði ég alveg rosalega jákvæð fyrir nýja árinu. Eftir hádegi fórum við að ánni...frekar mikið öðruvísi en það sem maður myndi gera á Íslandi. Þegar við komum heim ætlaði ég að fara í sturtu en þá var ekkert vatn. Þannig að ég fór að tala við fjölskylduna á skype og var með þeim klukkan 12 á Íslandi. Fékk að sjá flugeldana og það var alveg frábært. Loksins var vatnið komið á, en við mættum of seint í matarboðið sem okkur var boðið í. Við fórum að borða og það var boðið upp á allar gerðir af kjöti og loksins gat ég borðað haha. Svo klukkan tólf var skálað og farið út að sprengja. Það var langt frá því að vera jafn miklir flugeldar og á Íslandi. Svo var okkur vinunum boðið í áramótapartý sem var alveg ágætt og svo klukkan fjögur fórum við á skemmtistað og dönsuðum til hálf sjö. Komum svo heim um klukkan átta.
Hjá ánni á gamlársdag
Juliana, litla frænka mín
Það var boðið upp á nammi ala Argentina
:)
Skál!
Tertan okkar
Ljós sem við sendum upp í himininn
Ég
Við vinkonurnar
Ekki byrjaði árið vel hjá fylkinu mínu vegna þess að fylkisstjóri Río Negro (fylkið sem ég bý í) var myrtur á heimili sínu. Það er haldið að það hafi verið eiginkona hans og hún myrti hann með því að skjóta hann með 38 kalebra byssu í augað þegar hann var lagstur upp í rúm. Það er nýbúið að kjósa hann og það eru allir hérna í sjokki.
Carlos Soria 1949-2012
Á nýársdag var svo borðaður hádegismatur heima hjá frænku sem heitir Victoria. Það var alveg rosalega gaman út af því að það voru svo margir sem borðuðu saman. Og svo á hún svo fallegana garð að ég tók alveg fullt af myndum. Skelltum okkur svo í sunlaugina hennar vegna þess að það var alveg 40°C hiti.
Í kvöld fórum við að borða hjá annarri frænku minni, henni Söndru. Hún og amma mín bjuggu til "empanadas" sem voru alveg rosalega góðar. Skruppum aðeins til Roca með frænda mínum...sem keyrir btw geðveikt hratt, var að deyja úr hræðslu. Og heima hjá frænku minni er ugla...lítil en hræðileg.
Í kvöld fórum við að borða hjá annarri frænku minni, henni Söndru. Hún og amma mín bjuggu til "empanadas" sem voru alveg rosalega góðar. Skruppum aðeins til Roca með frænda mínum...sem keyrir btw geðveikt hratt, var að deyja úr hræðslu. Og heima hjá frænku minni er ugla...lítil en hræðileg.
mamma og amma
Empanadas "in making"
Ég og uglan hræðilega :/
Uglan að borða kjöt
Það sem er öðruvísi við Argentínu en Ísland
...Það er enginn tannálfur heldur "Ratón Perez" eða tannROTTAN Perez
...Argentínumönnum er nokkuð sama um reglur
...Það boðar lukku fyrir kvenmenn að nota bleikar nærbuxur á jólunum
...Allir geta keypt áfengi og sígarettur, líka börn
...Gjaldmiðillinn í Argentínu heitir pesó og 1 pesó = u.þ.b. 27-28 krónur
...Í Argentínu búa rúmar 40 milljónir
...Lambakjöt er mjög dýrt hérna og það er bara borðað um hátíðirnar, og sumt fólk þarf að taka töflu til þess að geta melt það, soldið fyndið.
...Argar eru með fóbíu fyrir bílbeltum. Ef þau nota það yfir höfuð er það losað um leið og þau fara út af aðalveginum. Alveg stórfurðulegt.
En nú er fyrsta blogg ársins senn á enda...vonandi verða þau fleiri :)
-Hrefna Björk
Lag bloggsins: Tan solo tu (aðeins þú)
...Argar eru með fóbíu fyrir bílbeltum. Ef þau nota það yfir höfuð er það losað um leið og þau fara út af aðalveginum. Alveg stórfurðulegt.
En nú er fyrsta blogg ársins senn á enda...vonandi verða þau fleiri :)
-Hrefna Björk
Lag bloggsins: Tan solo tu (aðeins þú)
Ps. Þið getið smellt á myndirnar til þess að sjá þær stærri :)
KOMMENTIÐ ENDILEGA!

Takk fyrir gott blogg :)
ReplyDeleteFyndið með nærbuxurnar haha varstu ekki öruglega í bleikum?
Krúttleg ugla en kannski ekki gæludýr sem maður kysi sér.
Knús Kristín
Gleðilegt ár og takk fyrir skemmtilegt blogg. Skemmtilegt að senda ljós út í geiminn; friðsælt og fallegt. Haltu áfram að blogga, það er svo gaman að fá að fylgjast með. Hér er enn snjór og frost, ekta vetrarveður, eitthvað aðeins öðruvísi en hjá þér :)
ReplyDeleteKveðjur frá okkur frænda
Hrafnhildur
Þessar staðreindir um Argentínu voru meiriháttar, ég er nokkuð sammála þeim um Brassa líka. Áfengi og að keyra beltislaus, oft tvennt saman. úff
ReplyDeletexoxo
-Rósa
Elsku Hrefna Björk mín
ReplyDeleteég vona að þú spennir beltið ALLTAF þegar þú ferð í bíl ...
mikið gaman að lesa bloggið frá þér, varstu í bleikum ´nærbuxum ? :-)
Ég elska þig
Knús og kossar
Gleðilegt ár! flott að það var gaman hjá þér um áramótin, frekar leitt samt með blessaðan karlinn!
ReplyDeletegaman að sjá myndirnar! frekar spes þessi ugla! og skemmtilegt að fá að heyra lög sem eru kannski í spilun hjá þér...
við erum farin að hlakka til eftir tæpa 200 daga!
knús Ella