Friday, January 27

Fjölskylduskipti

Það er alveg hellingur búin að gerast síðan ég bloggaði seinasta!

Núna eru skiptinemarnir sem ég var að tala um í seinasta bloggi farnir heim. Ein fjölskyldan hélt óvænt kveðjupartý fyrir stelpuna frá Þýskalandi. Það heppnaðist reyndar ekki að hafa það óvænt vegna þess að þau gelymdu að segja einni vinkonunni að það væri óvænt þannig að hún kjaftaði frá. Þetta var samt sem 
áður mjög skemmtilegt boð, fyrir utan það að þurfa að kveðja.


Friedrike frá Þýskalandi og litli bróðirnn Lea 

Juan og Hannah frá Ástralíu

Fah frá Taílandi




Sunnudaginn 15. janúar tók ég þátt í þríleikum hérna í Cervantes. Þríleikar þýðir að það er keppt í þremur greinum, það er hægt að gera þær allar sjálfur eða þú getur skipt þeim á milli þriggja manneskja. Ég tók þátt með Nataliu og vinkonu hennar. Ég synti 1 km, vinkona Naty hjólaði næstum því 30 km og Natalia hljóm 7 km. Við lentum í öðru sæti og fengum 300 pesóa í verðlaun, en við höfðum borgað þetta til þess að fá að keppa þannig að við komum út á sléttu! Þetta var svolítið erfitt vegna þess að ég þurfti að synda í ánni "Río Negro" og ég er alltaf frekar hrædd vegna þess að maður veit ekkert hvað er fyrir neðan. 


Liðið!

ég að synda

Eini erledni þátttakandinn!

Við sem lentum í öðru sæti og þær sem lentu í fyrsta sæti


Þennan sama sunnudag fórum við á rútustöðina að kveðja siptinemana og ég fékk alveg hnút í magan vegna þess að svona verður þetta hjá mér eftir sex mánuði og ég held að ég eigi ekki eftir að vilja fara! Grétum svolítið með fólkinu þarna og snerum svo heim. 


;(

Ferskar




Á mánudeginum kláraði ég að borga fyrir ferð sem ég er að fara í 8. febrúar. Þessi ferð er um suður-Argentínu, Puerto Madryn (sögð vera fallegasta strönd hérna í Argentínu), Tierra del Fuego (endi heimsins), Calafate (sem er rosalega falleg borg víst) ásamt því að fara að skoða jöklana. Mig hlakkar alveg svolítið til og það verður gaman að fá að breyta aðeins um umhverfi. 



Þriðjudaginn 17. janúar fórum við Kris til Neuquén vegna þess að það komu þrír skiptinemar frá Rosario til þess að fara í sömu ferð og ég er að fara í í febrúar. Þar á meðal var ein stelpa frá Íslandi sem heitir Bryndís. Það var rosalega gaman að hitta þær og tala smá íslensku.


Elínborg bjóst við aðeins stærra kaffi!

Neuquén




Miðvikudaginn 18. janúar lögðum við og Marcelo að stað í rútu til Las Grutas. Það er strönd í u.þ.b. 6 klst fjarlægð í rútu. Við lentum svo morguninn eftir og fórum í íbúðina sem þau voru búin að legja. Ég hef aldrei séð neitt jafn fátæklingslegt með eigin augum. Við komust seinna í raun um það að þetta var algjört helvíti vegna þess að á laugardaginn byrjaði að rigna, ekki bara úti heldur líka inn í íbúðunum. Við þurftu þess vegna að fara og skipta um hús. Við vorum með fjölskyldunni hennar Kristine og við leigðum saman hús öll saman. Við komust ekki mikið á ströndina vegna veðurs. Við fórum einu sinni út að dansa og það var frekar skemmtilegt. Svo var bara skoðað í búðir og notið þess að gera ekki neitt.Komum svo heim á þriðjudagsmorguninn.


Við á ströndinni fyrsta kvöldið

Það var spilað mikið af UNO!

Við fórum út að dansa og þegar við komum út af skemmtistaðnum kl. 8 um morguninn skelltum við okkur á ströndina

Kolkrabbi...ullabjakk

Við fórum út í sjó á banana

Seinasti dagurinn

Við fjórir skiptinemarnir: Kris, ég, Lilja (líka frá Noregi) og önnur stelpa frá Tyrklandi







Þriðjudaginn 24. janúar skipti ég um fjölskyldu. 


Núna er ég hjá yndislegri bráðabyrgðafjölskyldu og er búin að flytja í bæ sem heitir General Roca og er 100.000 manna bær í 17 km fjarlægð frá hinum bænum. Ég er alveg rosalega hamingjusöm og ánægð! :)


Bráðabirgðafjölskyldan samanstendur af:
Þremur bræðrum, Lucas (16), Lautaro (14) og Leandro (3) og svo yndislegum foreldrum. Öll fjölskyldan er í blómabransanum og það er alltaf allt fullt af blómum. 


Vissir þú....
...að í Argentínu á hann réttinn sem er að koma inn í hrngtorgið en ekki sá sem var inn í því fyrir
...að krakkar í Argentínu eru mjög háðir foreldrum sínum vegna þess að þau byrja ekki að vinna fyrr en þau eru búin með skólan
...það er oftast ekki hægt að læsa baðherbergjum hérna, sama hvort það er í heimahúsi eða á almenningsklósettum
...að það er borðað brauð með öllum máltíðum hérna
...að þegar það týnist einhver á ströndinni þá byrja allir að klappa


Lag vikunnar er mikið spilað hérna:
Lovumba (solo somos tu y yo bailando) eða á íslensku aðeins þú og ég dansandi






Biðst afsökunnar á bloggleysi...bæt það upp seinna!


Peace and love


-Hrefna Björk 


Ps. ég set svo alltaf næstun allar myndirnar sem ég tek inn á facebook. Minni á að það er hægt að smella á myndirnar til þess að sjá þær stærri. Komment eru velkomin!

6 comments:

  1. vááá hvað þetta hljómar skemmtilega! allavega betur en snjórinn og ófærðin hérna á íslandinu sem stendur svo sannarlega undir nafni þessa dagana !
    Hafðu það gott :) Rosa gaman að lesa bloggin þín! - verðum svo að hittast þegar þú kemur til landsins, langt síðan við hittumst seinast!
    Kv.Freydís Halla

    ReplyDelete
    Replies
    1. Já við hittumst næst þegar ég kem í sveitasæluna! :)

      Delete
  2. This comment has been removed by the author.

    ReplyDelete
  3. Gott að fjölskyldan sem þú ert komin núna til er skemmtileg og góð við þig. Skemmtilegt að lesa svona staðreyndir um argentínu! haha

    knús Ella

    ReplyDelete
  4. Skemmtinlegt blogg elsku systir sammala Ellu með staðreyndirnar.
    Heyrumst sem fyrst og gott að þér líði betur núna :)
    Knús Kristín

    ReplyDelete
  5. Elsku Hrefna Björk mín
    gott að heyra að þér líður betur núna. Mundu samt og ekki gleyma hvað þú hefur lært mikið af fyrri fjölskyldu og vertu alltaf þakklát fyrir það :-)
    Knús og kossar

    ReplyDelete