Saturday, March 3

Time of my life!

JÁ! Ég veit að ég er ekki búin að blogga al veg rosalega lengi! Ég næstum kláraði þetta blogg þegar ég kom heim úr ferðinni fyrir þremur vikum, en svo gat ég ekki klárað vegna þess að það bilaði þráðlausa netið heima hjá mér :/ En já, ég fór sem sagt í ferðalag með AFS um suður Aregentínu og þessi ferð var í alla staði æðisleg! Þarna gerði ég mér virkilega grein fyrir því af hverju í fór sem skiptinemi. Eignaðist þónokkra nýja vini og skemmti mér allt of vel!


Þann 8. febrúar hélt ég á vit ævintýranna. Þennan dag lögðum við 24 skiptinemar, ásamt tveimur sjálfboðaliður (reyndar líka hóp af eldra fólki) af stað í ferðalag um suður Argentínu.


Dagur 1
Við lögðum að stað um klukkan sex um kvöldið. Keyrðum alla nóttina og sváfum í rútunni. Rútan var frekar þæginleg.


Dagur 2
Komum í bæ sem heitir Comodoro Rivadavia og er í héraði sem heitir Chubut. Þar gistum við á 4 stjörnu hóteli sem var mjög flott. Fórum að skoða bæinn og  skelltum okkur á ströndina jafnvel þótt að vatnið væri alveg ótrúlega kalt. ÁtUm kvöldið fórum við svo út að leika pool. 


Comodoro Rivadavia

Fórum á ströndina

Þýskir skiptinemar

Ég og Kris í miðbænum
Pool

:)




Dagur 3
Lögðum að stað snemma um morguninn og fórum með leiðsögumanni í rútunni að skoða svæðin í kring. Keyrðum svo allan daginn og alla nóttina.



Ég, Kris og stelpa frá Finnlandi

Við skiptinemarnir að skoða einhverja fjöru

Skiptinemar frá Ítalíu og Þýskalandi. Strákurinn var þvílíkt að fýla Friðrik Dór!


Dagur 4
Komum til El Calafate snemma um morguninn. Komum okkur fyrir á flottu hóteli í miðbænum.Dagurinn var frír og fórum við að skoða bæinn. Þessi bær er alveg rosalega mikill túristabær. Seinna um daginn fórum við hluti af hópnum á hestbak. Þetta var frekar fín ferð, en mér fannst hestarnir fara frekar hægt fyrir minn smekk. Þegar við snerum aftur borðuðum við tortas fritas og drukkum maté. Svo var okkur kenndur leikur sveitalubbana. Hann er þannig að það er spotti festur í loftið með hring fastan á endanum. Svo á veggnum á móti er nagli. Svo er leikurinn þannig að þú þarft að koma hringnum á naglan. Það voru einhverjir sem gátu það en það gafst ekki tími til þess að allir prófuðu. 


Myndlist eftir indíána

El Calafate, frekar túristalegt

Argentínskur hestur

Kristine á hestbaki

Við skiptinemarnir




Dagur 5
Þennan dag fórum við að skoða Porito Moreno sem er staðsettur rétt fyrir utan El Calafate í Santa Cruz héraði. Snemma um morguninn lögðum við að stað. Byrjuðum á því að stoppa mjög nálægt jöklinum til þess að taka myndir. Tók alveg helling af myndum um 550.  Eftir þetta héldum við ferðlaginu áfram og fórum í bát til þess að komast enn nær jöklinum. Komum yfir á einhverja eyju. Skelltum á okkur mannbroddum og héldum af stað upp á jökulin. Þetta var svo fallegt að þetta líktist einna helst ævintýri. Löbbuðum í um einn og hálfan tíma. Komum svo niður og þá var boðið upp á viskí og alfajor. Hentum svo af okkur mannbroddunum og snerum aftur á hótelið. 



Ég með Porito Moreno í bakrunni
Rosalega fallegur 
Strákarnir eitthvað að flippa!

Ég og Kristine

Porito Moreno


Ég upp á Porito Moreno


Haha
Eins og í ævintýri


Dagur 6
Vöknuðum eldsnemma til þess að fara í siglingu. Fórum að sigla um alla jöklana í jöklaþjóðgarðinum. Þar sáum við þiðja stærsta jökul í heimi, Upsala. Þetta var allt mjög fallegt og tók helling af myndum. Verð samt að segja að þetta var frekar langdregið eða 8 klst. Eftir siglinguna fórum við á safn. Byrjuðum á því að fara á bar. Þetta var engin venjulegur bar vegna þess á þessum bar er -11°C og maður drekkur úr ísglösum. Þetta var mikil upplifun. Eftir þetta fórum við á safn. Safnið snerist um jökla og snjó. Fórum einnig í 2D bíó, en myndin var um jökla. Snerum aftur á hótelið og fórum út að dansa. Þetta var besta djamm sem ég hef farið á hérna í Argentínu. 24 skiptinemar saman að dansa getur aldrei klikkað. Hittum Sigri sem er stelpa sem Noregi sem býr í El Calafate.Hún er svo núna flutt í bæinn minn núna þannig að hér búa þrír norðmenn! 


Sáum mikið af ísjökum í þessari bátsferð

Okkur leiddist smá vegna þess að þetta voru 8 klst.

Vindur!

Aldeilis stór!

Alltaf með fánann góða

þriðji stærsti jökull í heim, hann heitir Upsala

Risa

Stór

:)


Íbarinn

;) 

Allt í ís

2D bíó








Dagur 7 
Lögðum að stað snemma um morguninn til þess að komast til Puerto Madryn. Stoppuðum á nokkrum stöðum til þess að taka myndir og skoða okkur um. Þurftum að keyra alla nóttina.


Þessi bátur er safn

mávar

:)
Falleg strönd




Dagur 8 
Komum til Puerto Madryn um morguninn. Tékkuðum okkur inn á hótelið sem var nú ekkert slor. Ótrúlega fallegt. Sjórinn hinum megin við götuna og svo var líka sundlaug. Máttum reyndar ekki nota hana nema fimm í einu og með sjálfboðaliðunum þannig að við fórum ekki. Skelltum okkur á ströndina og fórum svo að skoða miðbæinn. Keypti handgert maté og gjafir handa fjöslkyldunni minni hérna. Um kvöldið borðuðum við þriggja rétta máltíð sem var alveg rosalega góð. Eftir matinn fórum við svo út að dansa og kíktum á ströndina og svona. 






Dagur 9
Fórum snemma á fætur til þess að snúa aftur. Borðuðum morgunmat og settumst svo upp í rútuna. Stoppuðum í San Antonio til þess að borða. Kom svo heim til mín um klukkan sex um kvöldið. 


Vissir þú að...
...ef þú þarft að henda mat hérna þarftu að kyssa hann bless
...í Argentínu er talað tungumál sem heitir Castellano
...þú getur aldrei skilið skiptinema fullkomlega ef þú fórst ekki sjálfur sem skiptinemi
...það er ekki mikið jafnrétti kynjanna hérna í Argentínu
...þegar bíll er til sölu er settur brúsi á þakið á honum
...að öllum finnst nefið mitt stórskrýtið hérna


Þið getið svo skoðað fleiri myndir á facebook.


Ég kem svo heim eftir 137 daga...


Hlakka til að sjá ykkur öll


-Hrefna Björk :)


Ps. Er svo komin með varanlega fjölskyldu og er alveg rosalega ánæð! :)








5 comments:

  1. hææææ elsku Hrefna min
    Vá hvað það hefur verið mikið ævintýri þessari jöklaferð. Meiriháttar. Það er alveg rosalega gaman að þessum staðreindum sem þú hefur neðst. Koma margar á óvart, en ég er svo hjartanlega sammála þessu með að verða að vera skiptinemi til að skilja skiptinema!!
    137 dagar, ég bíð.
    ;*
    -Rósa

    ReplyDelete
  2. Hæ elsku dúlla skemmtileg blogg með fullt af myndum :)
    Staðreyndirnar eru snilld :)
    Knús og get ekki beðið eftir að sjá þig :)
    Kristín

    ReplyDelete
  3. Hæhæ Hrefna
    Æðislega gaman að lesa bloggið þitt. Þetta er algjört ævintýri hjá þér og gaman hvað þú tekur mikið af myndum.
    Hlakka til að sjá þig :)
    Gunnhildur

    ReplyDelete
  4. Frábær ferðasaga og flottar myndir.
    Hlakka til að heyra meira af nýju fjölskyldunni og enn meira að fá þig heim.
    Knús og kossar,
    Hrefna

    ReplyDelete
  5. Hæ Hrefna
    Gaman að lesa bloggið þitt og skoða myndirnar :)
    Bestu kveðjur úr Kópavogi til Argentínu og njóttu vel.
    Ásta Samúels "bína"

    ReplyDelete