Wednesday, March 21

Update

Ég held að það sé aldeilis komin tími á nýtt blogg, er ekki nógu dugleg að skrifa hérna enda mikið að gera hjá mér. Hér kemur allavegana smá update! Komment eru alltaf æðisleg!


Nýja fjölskyldan
Núna er ég komin með nýja fjölskyldu eins og ég sagði frá í seinasta bloggi. Fjölskyldan mín samanstendur af mömmu, Silvia og pabba, Angél. Þau eiga þrjá syni: Lucas (16), Lautaro (14) og Leandro (4). Þau búa í General Roca. Pabbinn er líffræðikennari, en kennir bara einu sinni í viku. Tvisvar til þrisvar í viku vinna mamman og pabbinn í blómum. Þau s.s. selja blóm til blómabúðanna. Þessir dagar eru þau alveg rosalega upptekin. Mamman er heimavinnandi og hefur alveg nóg að gera með strákana! Foreldrarnir eru ekki mikið fyrir að það að krakkarnir sitji og geri ekki neitt og þess vegna er alltaf eitthvað til þess að gera :) Þau byrjuðu að vera bráðabirgðafjölskyldan mín en svo ákváðu þau að ég fengi að vera hjá þeim þangað til í júlí. Ég er alveg rosalega ánægð með það. Er búin að læra alveg fullt og á eftir að læra mikið meira :)


Mamma mín og litli bróðir, Lenadro

Mamma mín og pabbi

Lucas

Lautaro




Skólinn
Núna er ég loksins byrjuð í skólanum. Skólinn sem ég fer í núna er einkaskóli.Ekki bara einhver einkaskóli, heldur sá dýrasti bænum. Það kostar um 50.000 kall á mánuði að fara í þennan skóla. En út af því að ég er skiptinemi þarf ég ekki að borga neitt. Þetta er svolítið sérstakur skóli vegna þess að á morgnana þá er töluð spænska eins og í venjulegum skóla. En eftir hádegi þá er ALLT á ensku. Og ég komst að því að ég er búin að gleyma næstum því allri enskunni minni. T.d. Einn kennarinn spurði "How do you feel about the school" og ég þurfti virkilega að hugsa til að finna orðið "good" enda er ég löngu byrjuð að hugsa á spænsku og í þessum tímum er engin spænska leyfð. Við þurfum að vera í skólabúning. Pilsi, polo stuttermabol, háum sokkum/sokkabuxur og peysu. Svo þurfum við líka að vera í sérstökum fötum þegar við förum í leikfimi, polo stuttermabol og þykkum joggingbuxum. Dagurinn er miklu lengri í þessum skóla heldur en í gamla skólanum. Þetta verður till þess að ég verði ekki alveg út á túni þegar ég byrja aftur í MR. Ég mæti klukkan 7:30 alla daga. Á mánudögum og miðvikudögum þá fer ég heim í mat klukkan 12:30 og kem svo aftur til að fara í ensku klukkan 14:00 og ég er að fýla þessa enskutíma. Geðveikt næs kennari og svo er ég að læra alveg fult. Klára svo klukkan 16:20. Á þriðjudögum og fimmtudögum þá er leikfimi þannig að ég hef ekki tíma til þess að fara í heim til að borða. Þannig að maður borðar í skólanum og er svo sveittur í ensku vegna þess að maður fær ekki að fara í sturtu eftir leikfimi. Á þriðjudögum fer í sögu á ensku en á fimmtudögum þá er ég í hnattrænum sjónarmiðum líka á ensku. Svo eru föstudagarnir best dagarnir vegna þess að ég er búin klukkan 11:10. Mér leiðist frekar mikið í skólanum, en það verður bara að hafa það. Tek samt alveg eftir því að þetta er svo miklu betri skóli heldur en almenningskólarnir. Ég er alveg rosalega heppin að fá að prufa bæði! :)


Fallegi skólabúningurinn


Ég veit að ég er sexy í þessum fötum haha


Tangó
Um daginn fór ég að prufa tangó. Það var alveg ótrúlega gaman. AFS ætlar að byrja með salsa og tangó fyrir skiptinemana og ég ætla örugglega að fara frekar þangað. Það er alveg rosalega erfitt að dansa tangó en samt mjög gaman. Kennarirnir voru alveg rosalega spenntir fyrir okkur (Kris fór með mér) tóku fullt af myndum, sáuð það kannski á facebook. Þetta er auðvitað ekta argentínskt þannig að maður hefur enga afsökun fyrir að kunna ekki eitthvað í tangó ef maður fer til Argentínu.






Orquesta
Svo er ég loksins byrjuð í hljómsveit. Fer tvisvar í viku. Á laugardagsmorgnum fer ég á hljómsveitaræfingu og á miðvikudögum fer ég á samæfingu með hinum klarinettunum. Áðan fór ég og við erum venjulega fjögur, þrír nemendur og svo kennarinn. Í dag mætti ég ein. Kennarinn er með alveg rosalegan húmor, fór alveg hjá mér. Þurfti að hlæja til að honum liði ekki illa. Honum fannst svo rosalega fyndið að nóturnar á Íslandi heita öðrum nöfnum hérna og hann hló alveg endalaust. Haha greyið. En hann er samt fínn og ég finn að ég er að læra eitthvað, þetta er svo einfalt að ég get einbeitt mér að hlutum sem ég þarf að laga. Veit samt ekki hvort að ég ætli að halda áfram að spila þegar ég kem heim. Við sjáum til!


Þessi hljómsveit er nú samt engian vegin eins góð og skólahljómsveit kópavogs, enda seint hægt að toppa hana!




Club Leo


Ég er byrju í Lions klúbbnum hérna í bænum. Það eru alveg fullt af  krökkum þar og þetta snýst sem sagt um að læra að verða leiðtogi, fá reynslu og tækifæri. Um daginn fórum við að heimsækja gamla fólkið á elliheimilinum og svo á konudaginn fórum við á spítalan að gefa konunum blóm. Ég orðin Pre-leo sem kemur á eftir því að vera boðin af öðrum. Það er frekar gott vegna þess að Lucas er búinn að vera að mæta á fundi í eitt ár og hann er ekki enn þá orðin pre-leo. Þú þarft s.s. að mæta þrisvar sinnum í röð til þess að geta orðið pre-leo. :)






Seinasta helgi
Seinasta helgi var alveg rosalega góð. Á föstudaginn kláraði í skólann snemma og fór til Cervantes. Var heima hjá Kris og fór m.a. í afmæli. Svo fórum við heim til mín og Kris gisti. Á laugardaginn vorum við búnar að ákveða að fara til Neuqén með tveimur öðrum stelpum frá Noregi. Önnur stelpan, Sigri, sem er ný flutt í bæinn minn (átti áður heima í El Calafate) hafði fengið þær upplýsingar að ef við færum þangað til þess að borga fyrir ferðalagið sem við erum að fara í í Maí (Buenos Aires og Cataratas de Iguazú, sem er btw eitt af sjö undrum veraldrar) mynda það vera 10% ódýrara. SVo vorum við komnar á stoppustöð þegar við komust að því að hún hafi skilið þetta vitlaust, það var sem sagt 10% DÝRARA ef við færum að borga með korti í Neuquén. Við fórum samt sem áður og þetta varð alveg rosalega góður dagur. Fórum að versla, borðuðum á McDonalds, hittum enn aðra stelpu frá Noregi sem býr í Neuquén og skemmtu okkur alveg stórkostlega. Snerum svo heim um kvöldið. Þegar ég kom heim var mér tilkynnt það að við þyrftum að flýja úr húsinu. Það var vegna þess að við hliðina á okkur var verið að halda partý. Þannig að ég og Lautaro fórum til Cervantes og ég gisti hjá Kris, en Lautaro hjá ömmu og afa. Skemmtu okkur vel, hengum með nýja skiptinemanaum og dingluðum okkur til 04:00. 
Á sunnudaginn vöknuðum við frekar snemma til þess að fara heim af því að við þurfutm að hjálpa til vegna þess að á sunnudaginn átti litli bróðir minn afmæli. Fjagra ára og greyið var með hita og leiðindi. Þemað í afmælinu voru risaeðlur og var afmælið búið að vera í undibúningi í u.þ.b. mánuð. Þetta var alveg rosalega flott með hoppukastala og allt. 


Bente, Sigri, Lilja og ég í Neuquén

Ótrúlega flott risaeðlukaka

ótrúlega flott

hoppukastali!!!

Kris var boðið líka

Ég, nýju skiptineminn og Kristine

Leandro fékk alveg fullt af afmælisgjöfum

haha

Sofia!

Leandro í rosa flottri risaeðlupeysu

Rosa ánægður með daginn

Risaeðlupopp!

:)

Ég veit að við erum stórar fyrir hoppukastalann

aaaaahhh
veeiiii




Um daginn var ég svo að taka leigubíl og ég held að síminn minn hafi dottið upp úr veskinu mínu :( Þurfti að kaupa nýjan. Geðveikt mikið svekk!


Vissir þú að...
...það er frítt að læra í Aregentínu, grunn-, mennta- og háskóli (en það kostar samt ef þú ferð í einkaskóla)?
...það var 97% raki í loftinu í Buenos Aires um daginn (var líak mikill raki hérna, var að deyja!)?
...árstíðirnar eru öfugar við Ísland hérna í Argentínu?
...um daginn dó belgískur skiptinemi sem var staðsettur í Brasilíu (R.I.P)?
...það er ekkert skrýtið ef þú lýgur (segja að það ljúgi allir í Argetínu)?
...lýs eru mjög algengur kvilli hérna vegna þess að það er ekki tekið mikið á þessum vanda?
...15 ára afmæli stelpna hérna í Argentínu (og í S-Ameríku almennt) er eins og fermingarveisla?
...Krakkar á mínum aldri nota frekar barnalegt skóladót (Hello Kitty, Mikki mús og svo framvegis)?
...það er eðlilegt að hlusta á tónlist án heyrnatóla svo að allir heyra þegar þú er í strætó eða bara að labba úti á götu?
...það er bannað að vera með naglalakk í skólanum mínum?
...hérna er gjaldmiðillinn pesóar (1 pesó er u.þ.b. 30 kr, var 27 þegar ég kom)?


Ég set inn tvö lög í þetta blogg vegna þess að ég gleymdi því í seinasta bloggi.


Þetta er tónlistartegund sem heitir Cumbia og er mjög vinsæl danstónlist hérna. Lagið heitir "llora, me llama"
og er á portugölsku


Þetta lag er reggeagton sem er einnig mjög vinsælt hérna. Lagið heitir "amarte bien" sem þýðir "elska þig vel" þetta lag er á spænsku

Sjáumst eftir 120 daga!!!

Hrefna Björk

2 comments:

  1. Ja, hérna! Það er aldeilis nóg að gera hjá þér. Gott að heyra að þér líður vel hjá nýju fjödkyldunni. Það er virkilega gaman að lesa bloggið þitt og fá að fylgjast með. Haltu áfram að njóta ævintýrisins og við hlökkum til að sjá þig íi sumar.
    Kveðja frá okkur Guðmundi.
    Hrafnhildur

    ReplyDelete
  2. Jeminn skemmtilegar myndir flottar kökur :) En já þessir skólabúningar eru nú ekkert til að hróða húrra fyrir hehe ;)
    Knús Kristín

    ReplyDelete