Tuesday, April 17

Bariloche & Chile

Ég var svo ótrúlega heppin að fjölskyldan mín bauð mér til Bariloche. Bariloche er í um 5-6 klst. fjalægð frá General Roca, þar sem ég bý.

Á laugardagsmorguninn 31. mars lögðum við í hann snemma um morguninn. Fyrst stoppuðum við í bæ risaeðlanna, El Chocón. Þar var nú ekkert rosalega mikið að sjá en þarna var alveg risastór risaeðla sem leit mjög raunverulega út. Litli bróðir minn hann Leandro varð heldur betur kátur enda eru risaeðlurnar hans uppáhald. Í þessum bæ búa 278 mann svo þetta er alveg pínkulítið. Tókum þar nokkrar myndir og héldum svo áfram ferðalaginu. Þegar við vorum búin að keyra nokkra stund og vorum stödd í litlu þorpi vorum við stoppuð af lögreglunni. Hann bað um ökuskirteini og tryggingarblöðun og við létum hann fá þau. Þar sem við vorum með kerru fyrir farangurinn þurftum við líka ða sýna honum tryggingarnar á því. Þar kom babb í bátinn vegna þess að þessa kerru höfðu þau fengið lánaða og gleymdu að fá pappírana. Löggan sagði þá að við þyrftum vinsamlegast að láta faxa pappírana eða kaupa nýja tryggingu eða að við færum ekki neitt. Held að þau hafi fengið einhverja sekt líka :/ Þetta bjargaðist síðan allt að lokum og við héldum ferðalaginu áfram. Stoppuðum á nokkrum stöðum til þess að taka myndir. Komust loksins á leiðarenda og þá var bara lagst í grasið og slakað á. Borðuðum svo asado um kvöldið sem við höfðum komið ólöglega til Bariloche vegna þess að hérna í Argentínu má ekki ferðast með kjöt.


El Chocón

"El dedo de Díos" (fingur guðs)

Ég, Lautaro og Lucas
Fékk sérherbergi :)

Húsið

Ótrúlega flott blóm í garðinum

Að njóta lífsins

Lea ætlaði að sofa í fataskápnum haha




Sunnudagsmorguninn var notaður til þess að sofa út. Eftir að hafa sofið eins og maður gat var haldið í fjallgöngu. Keyrðum smá spotta og stoppuðum nokkrum sinnum á leiðinni, meðal annars fórum við upp á stóra hæð þar sem er risastórt og fallegt hótel (þar sem var einni risastór gólfvöllur). Fegnum leyfi til þess að taka myndir og þetta var alveg ævintýralega fallegt. Komum svo að fjallinum sem við ætluðum að klífa og klifum það ásamt fjagra ára bróður mínum. Þetta var alveg rosaegla falelgt og umhverfið alveg ólýsanlegt. Eftir þessa líkamsrækt snerum við aftur heim í hús og sváfum siestu (enda í smá fríi). Þegar við vöknuðum ákváðum við að fara í bæinn. Í Bariloche er verið að gera risastórt páskaegg. Veit ekki alveg hvað það eru margir metrar en það er alveg slatta stórt. Skoðuðum okkur um í miðbænum, mjög fallegt allt saman. Enduðum svo á "El boliche de Alberto" Þar sem borðað var lasagne, raviloes og ís á eftir.

Ég með host-foreldrunum mínum

Ótrúlega flott útsýni

Ég með host-systkinum mínum

Sæt

Fyrir neðan fjallið sem að við klifum
Dugleg í fjallgöngunni

:)

Fallegt vatn

Eins og í ævintýri

Það sem ég talaði um í síðasta bloggi, "día de la memoria"





Við sváfum aftur út á mánudeginum en héldum svo að stað í göngu. Keyrðum í 1 1/5 - 2 tíma til að komast að staðnum sem við ætluðum að labba. Löbbuðum einhverja sex kílómetra til þess að skoða voða flottan foss. Tók alveg helling af myndum enda ekker annað hægt. Eyddum öllum deignum á þessum stað og snerum svo heim síðdegis. Slökuðum aðeins á og fórum svo aftur á "El boliche de Alberto" en í þetta sinn til þess að borða asado. Þessi matsölustaður er á mörgum stöðum og er þeim skipt upp í asado eða pasta.




Sáum alveg yfir til Chile

Bróðir minn að reyna að vera töff

Leandro

Haha (þessi planta heitir skegg gamla mannsins)

Sætir

:)

Ég með fossi

Fjölskyldan

Þurfti smá hjálpa enda 6 km.

Rosalega fallegir haustlitirnir

Sáu (allir nema ég) fiska stökkva upp úr vatninu


Á Þriðjudeginum ákváðum við að fara að skoða kaffihús sem er á toppi á einu fjalli í Bariloche. Mamma ákvað að vera heima. Við fórum á bílnum og keyrðum mest allan hlutan en löbbuðum smá. Þetta var eitt það fallegasta útsýni sem ég hef séð! Sáum yfir allt, Andes fjöllin, Bariloche sem er eitt af því fallegasta sem Argentína á og svo öll vötnin sem eru þarna í kring. Tók alveg helling af myndum :)


Bariloche

Ég að reyna að vera kúl

Sá þetta blóm á mörgum stöðum uppi á fjallinu

Útsýnistúr


Þessi ský eru boði um vont veður (byrjaði að rigna og gerði mikið rok daginn eftir)

Keffiterían

Ferðafélagarnir

askan út eldgosinu í chile (í Chile var askan meira eins og steinar) 

Það er alveg ótrúlega fallegt haustið í Bariloche

love

Ég :)

Lasagne !!!

host mamma mín að borða canoles sem er argentínskur réttur

Ég með eiganda staðarins (algjör snillingur)


Chile  


Á miðvikudagsmorguninn lögðum við snemma að stað til þess að nota sem mest af deginum í Chile. Bariloche er staðsett alveg upp við landamærinn 

þannig að það var ekkert rosalega langt að keyra. Þurftu að fara í gegnum vegabréfaeftirlit og það varð ekkert vesen sem betur fer. Keyrðum yfir fjallgarðinn sem skilur löndin að og þá allt í einu byrjaði bara að snjóa. Það var góð tilfinnig! Var samt enginn rosalegur snjór en Argentínumennirnir urðu soldið móðgaðir þegar ég sagði að mér finndist þetta vera meira slabb haha. En svo varð þetta að alvöru snjó eftir á. Þegar við komum til Chile blasti við okkur alveg rosalega fallegt langslag. Allt fullt af skóg og það var alveg ágætisveður. Komum að litlum bæ sem heitir "Entre lagos". Þar komum við okkur fyrir í einskonar skála. Fórum svo út að labba að skoða bæinn, var nú ekki mikið að skoða. Fórum í búðina og það var alveg rosalega gaman að sjá vörurnar í útlödnum haha. Svo eru notaðir chilesnkir pesóar sem eru allt öðruvísi en þeir argentínsku. Alveg fáranlega háar tölur á seðlunum, eiginelga eins og á Íslandi. Á tvo seðla til minningar. 



Velkomin til Chile!

Eitthvað rosalega merkilegt skillti! Don't know why

Snjór!!!!

Entre Lagos

Smárar

Skrýtnar flöskur (Bilz og Pap er chilenskt gos)

Keypti nokkrar til minningar

:)

Það voru tekin nokkur dansspor

og brugðið á leik

1000 chilenskir pesóar




Á fimmtudeginum fórum við að skoða aðeins stærra bæ í um 50 km fjalægð frá Entre Lagos. Þessi bær heitir Osorno og var frekar skrýtið, mjög ólíkt Argentínu. Þar voru mikið af götumörkuðum og það var allt svona frekar dapurt. Held að það sé besta orðið. Þetta var nú enginn frídagur heldur eyddum við öllum deginum í að leita að rúðu sem hafði verið brotin í sendiferðabílnum þeirra (nágranninn var eitthvað reiður, braut líka rúðu í húsinu og klippti á símalínuna/internet) og örbylgjuofni, en þeirra hafði bilað áður en við lögðum í hann. Í Chile er allt miklu ódýrara, þ.e.a.s. raftæki og þannig, ekki beint matur. Fórum að skoða verslunarmiðstöð en ég keyðpti ekki neitt (ótrúlegt en satt! haha). Um kvöldið fórum við svo að heimsækja chilenska fjölskyldu sem er vinafjölskylda fjölskyldunnar minnar. Þau voru ekki búin að hittast í heil fimmtán ár! Þetta var mjög yndæl fjölskylda og mjög merkilegt að sjá þessa endurfundi :)

Fallegir endurfundir hjá þeim

Á föstudeginum vöknuðum við og fórum að gera okkur til, til að snúa aftur til General Roca. Við tókum því allt of rólega og vorum ekki komin heim fyrr en klukkan eitt eða tvö um nóttina. Foreldrarnir fóru meðal annars að skoða jörð sem var til sölu þarna í Chile og voru að spá í að kaupa hana. Komum svo aftur við í Barliloche til að ná í kerru sem við höfðum geymt þar vegna þess að það var vesen að fara með hana yfiir landamærin. Keyptum súkkulaði, enda er ekki hægt að fara til borg súkkulaðsins án þess að kaupa sér. Sáum stærsta páskaegg í heim (held að það hafi verið 12 m) og svo lögðum við í hann. 



Jæja þá er frásöginni loksins lokið (byrjaði að skrifa bloggið þegar ég var í ferðalaginu haha)

Þar sem ég kynntist nú öðru landi ætla ég að skrifa smá fróðleiksmola um það



Vissir þú að...
...1 argentínskur pesó er 84 chilenskir pesóar
...það er munur á spænskunni sem er töluð í Argentínu og Chile
...höfuðborg Chile er Santiago
...að það búa um 17 milljónir í Chile
...80% íbúana eru kaþólskir

Og þá er komið að lagi bloggsins 



Það heitir "Tengo tu love" sem þýðir ég á þína ást. Þetta chilenskur söngvar. Þetta lag hefur hlotið mikila vinsælla í Argentínu. Ég veit ekki með Ísland?

5 comments:

  1. Æðislegar myndir sæta spæta
    Hafðu það sem allra best honey
    Love you <3
    Bibba Rokk

    ReplyDelete
  2. Vá geggjað blogg svo gaman að sjá myndir. Heppin að fá að fara í ferðalag.
    Knús á þig sæta mín
    Kristín

    ReplyDelete
  3. Heldur betur heppin að komast í þetta ferðalag. Flottar myndir ...og flottust smára-myndin :0)
    Þúsund þakkir fyrir þetta blogg
    KKKK - Hrefna

    ReplyDelete
  4. elsku Hrefna Björk mín
    ekkert smá heppin að fá að upplifa alla þessa skemmtun:-)
    Njóttu lífsins , nú er stutt eftir og um að gera að njóta en ekki eyða :-) Hugsaðu alltaf á hverjum morgni hvað þú ert heppin...
    knús og kossar
    MAMMA

    ReplyDelete
  5. Meiriháttar myndir sætust. Þvílík ævintýraferð.
    xoxox
    -rósa

    ReplyDelete