Það er búið að vera kveðjupartý hjá AFS þar sem var bæði hlegið og grátið og svo í dag gerði ég kveðjukökuboð heima hjá mér. Ég og mamma bjuggum til kökur, ég meðal annars skúffuköku. Svo komu allir bestu vinir mínir og við borðuðum og hlógum!
Núna er rúm vika þangað til að ég kem heim og ég veit ekki hvernig mér á að líða. Þetta er svo óraunverulegt!!!
Það verður gott að koma heim en á sama tíma verður það alveg ótrúlega erfitt.
Á sunnudaginn átti ég alveg æðislegan dag, fórum smá fyrir utan bæinn, borðuðum asado með fullt af fólki og svo var bara slakað á. Veðrið minnti svolítið á íslenskt vor. Svo eftir það kom Elínborg að heimsækja mig og við fórum í bíó og byrjuðum að horfa á Mýrina, sem hún btw gleymdi hérna hjá mér haha
Þetta er búið að vera besta ár sem ég hef lifað! Það er ólýsanlegt!
-þarf að lesa hana á næsta skólaári í MR.
-það er þegar það er set "yerba" í maté til þess að hægt sé að drekka maté úr því. Svolítið erfitt að útskýra. Það er samt nauðsyn fyrir flest maté.
-fékk beiðni um það áður en ég fór út
Ástríður Ebba, dönskukennari
Sigríður Ragnars, spænskukennari
-það er alveg rosalega fallegt þar sem ég labba alltaf :)
Gatan mín
-til að ég geti dansað á Íslandi
1.Llora me llama - Joao Bosco e Vinícius
2.Bailan Rochas Y Chetas - Nene malo
3.Envidia-Culisueltas
4.Tirate un paso-Los Wachituros
5.La despedida - Daddy Yankee
6. La Señal-Daddy Yankee
7.Lovumba - Daddy Yankee
8.Hoy volvi a verte - E lre tuto
9.Danza Kuduro - Don Omar
10. Loca - Shakira
Ég að dansa tango með kennaranum mínum
13. Elda íslenskan rétt
-Kynna fyrir þeim íslenska matarmenningu. Bjó til íslenskt lasagnea ogsvo bjó ég til skúffuköku. Fann ekki myndina af því fyrr nefnda.
-Fór þegar ég fór á ströndina, nennti ekki að finna mynd
-búin að missa 5 kíló
-Það er svo margt sem ég elska!
-ekki gaman að fara alltaf á sama staðinn
Aquelarre-nótt nornanna
-það er víst mjög flókið, en þess virði!
Ñoquis
Milanesa
Pastel de papas
Pastafrola
Chocotorta (lík þesssari, fann ekki myndina sem ég tók)
Amma mín að búa til "tortas fritas"
-Spilum 20. júní þegar það er dagur fánans
Það kom alveg helling af fólki, fann ekki mynd af mér með hljómsveitinni, á hana til einhverstaðar
Leikfimiskennarinn minn í gamla skólanum mínum var með okkur á djamminu einu sinni
-Ég á þrjár góða argentínska vinkonur, Sheylam, Belen og Sol. Fann ekki mynd af mér með Belen, enda er ég búin að taka svo margar myndir. Julian er svo góður vinur minn :) Giuli er ágætis vinkona, hún var með mér í skóla hérna í Roca.
Ég og Giuli
Ég og Sheyla
Ég og Julian (bróðir hennar Sigri og kærastinn hennar Kris)
Ég og Sol
26. Skrifa 10 blogg í viðbót (þetta er 9.bloggið)
Krakkar, það eru myndir inn á facebook
Sjáumst eftir einhverja 10 daga
Þangað til næsta bloggs
-Hrefna Björk



Greinilega verið mjög gaman hjá þér úti. Hlakka til að sjá þig aftur :D
ReplyDeletekv. Indriði ;)
Elsku Hrefna Björk mín
ReplyDelete1 blogg eftir og þá er listinn tæmdur...
Ég skil alveg hvernig þér líður núna , hlakka til að koma heim og kvíður því að kveðja góða vini og fólk sem þér þykir mikið vænt um .....
MUNA bara eftir því að vera í tölvusambandi við fólkið þegar heim er komið :-)
HLAKKA SVOOOOOOOO MIKIÐ TIL AÐ KNÚSA ÞIG EFTIR 9 DAGA.
NJÓTTU LÍFSINS OG NOTAÐU TÍMANN VEL SEM EFTIR ER Í ARGENTÍNU.
ÞAKKARKVEÐJUR TIL FJÖLSKYLDU ÞINNAR, ÞAU ERU BÚIN AÐ STANDA VEL MEÐ ÞÉR ..... SEGÐU "PABBA" ÞÍNUM AÐ HÉR SÉU LÍKA FJÖLL TIL AÐ KLÍFA :-)OG TAKA FJÖLSKYLDUNA MEÐ TIL íSLANDS....
KOSSAR OG KNÚS
ÞÍN MAMMA
Hæ elsku Hrefna
ReplyDeleteÉg get ekki beðið eftir að sjá þig!
Ótrúlegt að þetta heila ár sé liðið
Hafðu það alveg æðislega gott þessa fáu daga sem eftir eru og njóttu lífsins <3
Sjáumst á fimmtudaginn :)
Knús
Bryndís
VÁ, þetta hefur greinilega verið æðislegt ár hjá þér! Góða ferð heim, hlakka til að hitta þig :)
ReplyDeleteLoksins að koma að þessu að þú komir heim :) Hlakka til að sækja þig út á flugvöll :)
ReplyDeleteKnús Kristín