Monday, August 29

Argentina

Þá er maður búin að vera hérna í næstum tvær viku!
Það er bara búið að vera mjög gaman og maður er byrjaður að skilja spænskuna meira og meira.

Ég byrjaði í skólanum fyrir viku og það er svo sem ágætt. Kennararnir allir frekar næs. Við erum u.þ.b. 30 í bekknum og það er alltaf frekar mikill föstudagur í öllum. Það er einn strákur sem er alltaf að reyna að tala ensku og það getr verið mjög fyndið. "My name is Boris" (lesið eins og "my name is Borat". Það er fyndnast í heimi.

Það sem er skrýtið við Argentínu:
-Það er eins og að fara soldið aftur í tímann
-Sumar götur eru malbikaðar en aðrar eru það ekki
-Það kyssast allir hérna (eða nánast)
-Það er ekkert eðlilegra en að horfa á fólk dansa súludans í sjónavarpinu (hálfnakið fólkið)
-Fólk hérna ELSKAR sápuóperur og það er horft á svona tvo þætti á dag (mjög s-amerískt)
-Í mínum bæ er ekki umferðaljós heldur er sérstök lögregla sem stjórnar umferðinni

Þótt að Argentína er ALLT öðruvísi en Ísland þá fékk ég ekkert menningasjokk eins og allir sögðu að maður myndi fá. Ég elska nánast allt hérna í Argentínu. Fólk er svo áhyggjulaust og það er ekki svona stressað eins og Íslandi og það er einmitt það sem ég þurfti núna.

Það er búið að vera frekar rólegt síðan ég kom ekkert mikið að gerast...er búin að fara að skoða "Río negro" ótrúlega fallegt og svolítið íslenskt. Verður pottþétt miklu fallegra á sumrin og þarna á maður eftir að eyða miklum tíma. Allavegana hef´eg fengið að vita að meðalhitinn hérna á sumrin er u.þb. 42°C sem er soldið mikið. Svo er ég búin að fara þrisvar til Roca. OG fékk frí ískólanum til þess að fara í dag.

Á morgun er einhver skrúðganga í Roca. Og allir skiptinemarnir verða í skrúðgöngunni með sinn fána. Ég og litla systir mín vorum búin að búa til tvo fána en bróðir mínum fannst þeir ljótir svo hann ætlar að búa til nýja. Finnst ekki gaman að föndra og er ömurleg í því.

Ég á svo afmæli eftir rúma viku og það verður haldið upp á það með því að fara á grímuball í Roca. Frekar næs.

En ekki meira í bili

-Hrefna Björk

P.s. er ekki búin að vera dugleg að taka myndir en það koma vonandi myndir með næsta blogggi! ;)

2 comments:

  1. hahahaha skemmtilegur! Þið búnar að föndra og svo bara "oj, ég geri nýja! " hahahahahaha
    hafðu það áfram gott! og góða skemmtun á grímuballi!

    ReplyDelete
  2. Gott að heyra að þér líður vel, elsku Hrefna Björk! Kveðjur frá Hrafnhildi og Guðmundi frænda :)

    ReplyDelete