Það hefur þó nokkuð verið í gangi hérna í Argentínu síðan síðast!
Skrúðganga í General Roca
General Roca er stór bær (á íslenskum mælikvarða)hérna rétt hjá Cervantes. Á fimmtudaignn átti bærinn afmæli og það var haldin svaka hátíð. Allir skiptinemarnir tóku þátt í skrúðgöngunni og við vorum búin að búa til fána sem við löbbuðum með. Skrúðgangan átti að byrja klukkan þrjú en byrjaði ekki fyrr en hálf fimm. Fyrsta sinn að kynnast þessum s-ameríska óstundvísi. Það vantaði strákinn frá Belgíu þannig að Marcelo (bróðir minn) var láttin halda á þeimfána.Annars var þetta ágætis dagur en alveg ótrúlega mikið af fólki. Hef aldrei séð svona margt fól
k samankomið. Við vorum líka ótrúlega heppin með veður. Ekta íslenskt sumar. Síðan ég kom hingað hefur aldrei ringt!!! Hversu næs :)
Handboltaleikur
Bróðir minn hérna æfir handbolta og ég fór að horfa á leik sem hann var að spila. Það er soldið öðruvísi en að horfa á handbolta á íslandi. Í fyrsta lagi eru engar stúkur, í öðru lagi eru gólfin (í öllum íþróttahúsum) flísalögð og í þriðja lagi þá eru allir geðveikt tjillaðir (eins og alltaf).Þjálfarinn bara í rólegheitunum með maté á meðan á leiknum stóð. Bróðir minn skoraði tvö mörk en hans lið tapaði (munaði einu marki).
Djamm í Argentínu
Það er svolítið öðruvísi en á Íslandi. Hérna dansar fólk! Maður mætir ekki á skemmtistaði fyrr en í fyrsta lagi tvö. Og svo er þetta búið um sex. Það kostar meira inn á staðinn fyrir stráka en stelpur. Og það fer enginn eftir reglunni að það megi ekki reykja, ekki einu sinni öryggisverðirnir. Ég fór þarna ásamt bróður mínum og Belu (stelpa sem er með mér í bekk) Stóðum fyrst bara svona eins og er alltaf á menntaskólaböllum en svo fórum við að dansa. Fólk hérna kann að dansa og ég komst að því að ég er hörmulegur dansari. Vonandi breytist það bráðum. Svo var danskeppni og bróðir minn tók þátt og auðvitað vann hann. ;) Hérna hendir fólk glösunum á gólfið þegar það er búið með drykkina. Frekar spes haha. En eftir gott kvöld fórum við heim um klukkan sex og ég svaf til tólf.
Matur
Á sunnudögum þá hittist fjölskyldan og borðar Asado. Það er sem sagt allar tegundir af kjöti grillað á útigrilli. Það er frekar skrýtin máltíð finnst mér. En samt gott. Host mamma mín hérna heldur að ég borði bara tómata vegna þess að ég sagði að ég borðaði bara salat. Þau setja nefnilega salt út í salatið og fullt af olíu. Fólk hérna elskar salt og sykur og sérstaklega majónes. Mér finnst maturinn hérna mjög góður. Fjölskyldunni finnst ég samt borða lítið, en mér finnst maturinn samt góður. Milanesa er einn réttur sem er mikið borðaður. Það er kjöt í einhvers konar raspi. Það er tvær heitar máltíðir hérna á dag og það er alltaf kjöt. Fólk hérna drekkur líka mikið að maté. Það er drukkið úr sérstökum krúsum með járnröri og flestir setja sykur. Mér finnst það betra á sykurs. Maté er s.s. einhvers konar jurtalauf með heitu vatni. Annars er ég ekki búin að drekka mikið af maté. Hér drekkur fólk gos með öllu. Lítið um vatn eins og á íslandi.
Fátækrahverfi
í dag fór ég með nokkrum krökkum úr skólanum í eitt af fátækrahverfunum hérna rétt fyrir utan bæinn. Það var svo alveg eins og maður hefur séð í sjónvarpinu. Bara vegir úr sandi, húsin að hruni komin og skrýtin lykt. Fólk þarna var samt almennt klætt eins og millistéttinn. Eða allavegana fannst mér það. Krakkarnir í skólanum voru búin að búa til gjafir handa krökkunum þarna og þetta var alveg rosalega sætt. Nokkrar myndir:
Þangað til næst
-Hrefna Björk
Váá hvað ég öfunda þig.. þetta er örugglega rosa ævintýri hjá þér
ReplyDelete