Monday, September 12

Daglega lífið og Afmælið mitt

Ég sit hérna ein heima (í fyrsta skipti) og ákvað að skella í eitt blogg.
Nú er lífið hérna í Argentínu að verða frekar venjulegt fyrir mér.
Vejuleg vika í Cervantes:

Virkir dagar:
Vakna klukkan 6:45 við það að mamma veki mig. Geri mig til fyrir skólann og bíð svo eftir bróðir mínum og systur. Legg af stað í skólann kl 7:20 ef við erum á réttum tíma. Við þurfum s.s. að vera komin í skólann klukkan hálf átta. Svo eru einhverjir tímar sem ég skil mislítið í tímunum en skil þó stærðfræðina. Ég skil ekki enn þá alveg sistemið hvenær tímarnir byrja og hvenær þeir eru búnir. Það er heldur ekki lesið upp í hverjum tíma eins og á Íslandi heldur er kona sem sér um að standa við hurðina á morgnanna eftir hálf átta og merkja við þá sem koma of seint. Svo kemur hún alltaf eftir fyrsta tímann og skráir niður þá sem eru ekki mættir. Ég er búin í skólanum kl. u.þ.b. 12:30-13:00 og þá fer ég heim. Hádegismaturinn er kl.13:30 og á þriðjudögum og fimmtudögum fer ég í leikfimi. Er þó einungis búin að fara í tvo tíma af sex. Aðra daga sef ég sisetu eða fer og hitti vini.

Um helgar þá er mjög misjafnt hvað ég geri. Á föstudögum þá er maður oftast bara eitthvað að tjilla heima eða þá að hitta vini. Förum oft og borðum kvöldmat með vinum eða 2/3 föstudögum síðan ég kom hingað. Á laugardögum er annaðhvort sofið út eða farið Roca. Svo er ég búin að fara tvisvar út að dansa á laugardagskvöldi síðan ég kom hingað. Á sunnudögum er sofið út og svo farið að borða Asado hjá ömmunni og afanum hérna við hliðina á mínu húsi (í sama húsi). Svo er bara chillað.

____________________________________________________

Ég átti afmæli á föstudaginn og er þar með orðin sjálfráða :)

Í skólanum á föstudaginn var haldið upp á dag kennarans og allir nemundur og kennarar söfnuðust saman. Það var fyrst spilaður og sunginn þjóðsögnurinn og eitthvað lag um Cervantes. Svo spilaði Kia á gítar og söng. Svo var einhver hljómsveit sem spilaði. Svo sungu allir afmælissönginn fyrri mig :D  Svo var enskutími og þá var smá afmælispartý. Það voru nokkrar stelpur í bekknum búnar að baka köku handa mér og svo voru þær búnar að búa til plakkat sem stóð á "HAPPY BRITHEY HREFNA" haha ótrúlega sætt. Svo var tekið mikið af myndum vegna þess að Kia (skiptinemi frá USA) er að fara heim til sín á mrg. Eftir skóla fór ég heim og borðaði hádegismat. Svo hringði pabbi í mig, alveg rosalega gaman að heyra í honum :) Eftir það komu Kristine og Sol (norski skiptineminn og systir hennar) og þær voru hjá okkur allan eftirmiðdagin. Um kvöldið var svona fjöslkylduafmæli  og það var mjög gaman. Mamma mín var búin að baka köku sem var ótrúlega góð. Svo fórum við aðeins út eftir mat og kom svo heim og fór að sofa.





Á laugardaginn svaf ég svo út en seinnipartinn fór ég til Roca til þess að versla. Keypti mér tvenna skó, buxur og tvo boli. Við komum svo heim um klukkan 20. Við vorum búin ákveða að hittast allir í bekknum heima hjá einni bekkjarsystur svo leiðinn lá þangað eftir verslunarferðina. Þar borðuðum við pizzu og einhverskonar pylsur og svo fórum við aðeins á torgið. Um klukkan hálf tvö fórum við heim til þess að skipta um föt fyrir "boliche" fórum svo á skemmtistaðinn um klukkan hálf þrjú. Þar var mikið dansað og það var einver hljómsveit að spila. Þurfti samt að taka vegabréfið mitt með þarna því að löggan var að tjékka á skilríkjum. Það er þannig hérna að foreldrar geta sótt um eitthvað skjal sem segir að börnin þeirra megi fara á skemmtilstaði (ég skildi það allavegana þannig). Við komum svo heim um sex leitið og fórum að sofa.





Sunnudagurinn fór meira og minna í það að sofa. Fór á fætur um hálf tvö og fór að borða Asado. Við systkini fórum svo að leggja okkur hjá ömmunni og afanum. Sofnaði nú samt ekki. Við fóru svo yfir í okkar hús og fórum að sofa og vöknuðum klukkan sjö. Þá komu frænka og frændi í heimsókn en við systkini fórum fljótlega út og hittum tvær stelpur úr bekknum og hengum aðeins úti á torgi. Fórum svo heim og ég horfi á Latabæ á spænsku en svo fórum við að sofa.

Í dag var svo ekki skóli hjá mér. Held að það sé út af degi kennarans. En bróðir minn þurfti samt að fara í skólann. Á morgun er ekki heldur skóli og á fimmtudaginn er ég að fara í skólaferðalag til Neuquén sem er stór bær í u.þ.b. klst fjarlægð.

Meira um það sem er öðruvísi hérna en á Íslandi:
-Eldri systkini taka yngri systkini sín með sér ef litlu systkinin vilja koma með
-Það eru tvær máltíðir sem fjöslkyldan borðar saman hérna (klukkan 13:30 og á milli 22-23)
-Mi casa tu casa er svo mikið mottóið hérna

Þar sem ég nenni ekki að skrifa dagbók verður bloggið notað sem slík (y)

-Hrefna Björk




2 comments: