Sunday, October 2

Fróðleiksblogg

Engin veit hvað átt hefur fyrr en misst hefur! Þetta orðatiltæki á mjög vel við fyrir mig núna. Ég sakna allra á Íslandi alveg rosalega mikið.
Ég sakna:
-Fjölskyldunnar.
-Rigningarinnar. Það rignir aldrei hérna! Mér finnst rigning vera mest kózy veður í heimi.
-Rúmið mitt. Það er svo miklu minna rúmið mitt hérna og hart.
-Að læra. Hérna er eigilega aldrei neitt heimanám.


----
Nú kemur nokkur atriði um Argentínu fyrir áhugasama.


Dulce de leche
Það er ótrúlega gott! Mamma mín hérna ætlar að kenna mér að búa það til. Thank god! Bókstaflega þýttDulce de leche þýðir "sætur af mjólkeða "mjólkur sælgæti".  Dulce de leche er upprunalega frá Argentínu. En það er einnig þekkt í Paragvæ og Úrúgvæ þar sem það er mjög vinsælt. Það er einnig þekkt í öðrum löndum í Suður-Ameríku en þá undir öðrum nöfnum. Dulce de leche er einnig þekkt í Frakklandi og Noregi en þá eitthvað aðeins öðruvísi og undir öðrum nöfnum. 


Empanadas


 Það er klárlega uppáhaldsmaturinn minn hérna. Óska þess að ég finni einhvern sem kann að búa það til! :) Þetta er s.s. einhverskonar brauð með fyllingu. Mér finnst best með osti og skinku eða með kjúklingi. Held að það sé ekkert rosalega erfitt að búa þetta til. Empanadas eru ekki uupprunalega frá Argentínu heldur frá Spáni. Það eru til margar gerðir af þessu. Hérna þar sem ég er eru empanadas hitaðar í ofni en t.d. í Tucumán eru þær djúpsteiktar. Þær eru líka stundum gerða að svona bakkelsi, þá er örugglega sett sulta inn í og sykur utan á. Hef samt ekki smakkað það þannig að ég veit ekki.


Buñuelos
Þetta er eftirréttur sem argentínska mamma mín er búin að gera tvisvar sinnum. Þetta er s.s. djúpsteikt deig með hnetu að innan og svo er því velt upp úr sykri þegar það er ennþá heitt. Mjög ljúfengt.Búin að finna uppskrift og þetta er mjög auðvelt. :)


Tarta de jamón y queso


Þetta er mjög ljúfengt. Þetta er s.s. búið til úr tveimur tapas (einhverskonar pönnukökur) svo er sett fullt af gumsi inn í það. Ég hef prófað með osti, skinku og maís.En einnig er hægt að gera með Lauk, eggjum og ertum(veit reyndar ekki hvað það er) og einnig hægt að gera með Káli, salti og kæfu. Lýst nú best á það sem ég er búin að prófa af þessu, en ætla ekki að dæma fyrr en ég er búin að prófa hitt.




Pastelitos 
Sandra frænka skellti í svona um daginn og kom með heim til mín. Mjög bragðgott en veit ekki alveg hvort að það sé hægt að gera svona á Íslandi. Þetta er semsagt deig sem er djúpsteikt (held ég er allavegana mjög hart) og svo er sulta í miðjunni. En var svo að spyrja mömmu út í það og þá þarf að nota einhverja sérstaka vél til þess að búa þetta til. Hún ætlar að fara að kenna mér þetta.


Milanesa


Klárlega besta sem ég hef smakkað hérna. Mjög auðvelt. Er búin að smakka milensa de carne (carne=kjöt), milanesa de pollo (pollo=kjúklingur) og milanesa de pescado (pescado=fiskur). Allt mjög gott og eins og ég sagði áður auðvelt. Maður kaupir kjöt/fisk/kjúkling. Veltir því upp út eggjum og oregano og svo strax velt upp úr brauðminslu. Svo er þetta steikt á pönnu. Þegar ég er spurð hvað ég vilji borða segi ég alltaf þetta. Mjög ljúfengt.


Svo þar sem Argentína er mjög þekkt fyrir Maté og Tereré ætla ég að setja smá fróðleiksmola hér að neðan. 


Maté
Maté er skál (oft í laginu eins og lítil kókoshneta með gati) sem kallast Gourd. Gourds geta verið allt frá útskornu tréi til gullskreyttra fjölskyldudýrgripa. Til að neyta innihaldsins er notað sérstakt rör að nafni bombilla (sagt bombísja) með filter í botninum til að innihaldið fari ekki í munninn, bara safinn. Það getur verið úr ódýru járni allt að silfri eða gulli og getur haft allskonar lögun og skreytingar.Nánast alltaf þegar fólk hittist er boðið upp á mate. “Að fara í garðinn og drekka mate” er eins og afsökun fyrir því að hittast og chilla í sólinni.


Í gamla daga voru upper-class fjölskyldur oft með sérstakan þræl eða þjón sem sá hreinlega bara um að undirbúa og þjóna til mate. En núna er einn cebador(server, veit ekki hvernig það er á íslensku) sem fyllir næstum allt gourdið með yerba (sagt sjerba). Yerba mate eru þurrkuð skorin lauf af jurtinni llex paraguyensis. Síðan er hitað en ekki soðið vatn í pava og smá hellt ofan í gourdið. En cebadorinn verður að hella vatninu mjög hægt nálægt bombillunni og svo láta mateið ganga klukkuhringinn. Hver klárar vatnið og lætur svo cebadorinn fá mateið og hann refyllir og lætur næstu manneskju fá. Góður cebador lætur mateið ganga án þess að skipta á yerba í einhvern tíma. Maður skal ekki halda gourdinu hjá sér of lengi. Það er nóg að segja einu sinni gracias ef maður vill ekki meira. Landfræðilegur fjölbreytileiki fylgir mateinu. Frá Pampassvæðinu  og suðurútfrá er drukkið mate amargo (án sykurs) en norðar er algengt að drekka það dulce (sætt). Paraguya-ar drekka mate ískalt sem tereré. Að meðaltali drekkur hver Argentínumaður u.þ.b. 5Kg af mate á ári sem er mun meira en almenn kaffineysla á heimsvísu. Þegar þú kaupir þér mate verðuru að “lækna” það áður með því að setja heitt vatn og yerba og láta það standa í 24 tíma. [Stolið af bloggsíðunni hennar Nínu: www.nina-argentina.blogspot.com (vonandi var það í lagi)]
Ég drekk ekki mikið maté með vinum mínum vegna þess að þeim finnst það ekki mjög gott en ég drekka það meira með fullorðnu fólki eins og mömmu, ömmu, frænkum og frændum.

Tereré

Það er drukkið úr Maté og með yerba en í staðinn fyrir að setja heitt vatn er sett ískaldur appelsínusafi. Hljómar illa en þetta er geðveikt gott og mér finnst þetta betra en Maté. Tereré er aðeins drukkið þegar það er gott veður og heitt, en maté er meira á veturnar þegar það er kalt þótt að það sé drukkið allt árið um kring. 


Aðrir drykkir sem er mikið drukkið af:
-Gos (ALLTAF, aldrei vatn með matnum alltaf gos)
-Te (hér drekka allir te konur,kallar, gamlir og ungir)
-Maté, ofc


------------------------


Svo maður segi aðeins frá því hvað á daga manns hefur drifið.


Á fimmtudaginn og föstudaginn var ég veik og gerði allavegana ekki neitt á fimmtudaginn. Á föstudaginn var svo AFS hittingur, sem var bara fínt. Hittum hina skiptinemana og áttum að skrifa niður þrjá góða hluti sem við vorum sátt með um systkini okkar og þrjá slæma. Eftir hittinginn fórum við heim (Ég, Sol og Kristine) og horfðum á Remember me. Geðveik mynd btw mæli með henni ef þið eruð ekki búin að sjá hana. Á laugardaginn var svo bara frekar mikill chill dagur. Reyndar var Marcelo að keppa í handbolta alla helgina svo það var í fyrsta skipti sem ég var bara ein. Sem var tilbreyting. Svo á sunnudaginn fórum við í eyðimörkina sem er hérna rétt fyrir utan Cervantes ásamt Naty (eldri systir minni), Juliana (dóttir Naty), Juan (kærasti Naty) og þremur vinkonum Naty og mömmu þeirra. Ein vinkonan á strák með Downs heilkenni og hann var alveg kostulegur. Kunni mikið af dónalegum orðum og merkjum. Áttum þar góða stund og drukkum Maté og skoðuðum okkur um. Það voru nú samt ekki allir jafn spentir fyrir því að fara, nefni engin nöfn. Svo um kvöldið fórum við að hitta vinahópinn og svo var bara farið að sofa enda skóli daginn eftir. Ég var greinilega ekki alveg búin að jafna mig af veikindunum og fór heim veik úr skólanum í gær en var búin að jafna mig seinni partinn. Fórum þá um kvöldið til að hitta nokkra vini og borðuðum saman og horfðum á mynd. Svo var dagurinn í dag bara frekar mikið chill. Enginn skóli út afþví að bærinn minn átti afmæli í dag. 


               
                                                                 Marcelo Indijáni
Mamma á leiðinni heim frá eyðimörkinni




Marcelo,Kristine og ég


Einn af sex hvolpunum sem hundurinn minn á
Segi þetta gott, heimta komment! Haha tók slatta tíma að gera þetta blogg ;)


Chau,
Hrefna Björk

4 comments:

  1. Skemmtilegt að lesa þessa fróðleiksmola; þú verður orðin sérfræðingur í argentískri matargerð, þegar þú kemur heim!
    Auðvitað koma tímar þegar þú saknar alls heima; að hugsa sér, að það sé jafnvel hægt að sakna rigningar og roks. En það líður hjá. Einbeittu þér bara að því að njóta þessa ævintýralega tíma. Þetta er stórt og mikið ævintýri, sem þú átt eftir að muna eftir alla ævi, og segja börnum þínum og barnabörnum frá, þegar fram í sækir. Börnin mín, þegar ég var í Argentínu......; ég segi nú svona :)
    Hvernig var með hljómsveitina, tékkaðir þú eitthvað á því?
    Bestu kveðjur frá okkur frænda í Garðabænum.
    Hrafnhildur.

    ReplyDelete
  2. Vá ég prófadi Dulce de leite frá Argentínu! mmmm Hversu gott! Tad er odruvísi í Brasilíu´, ógedslegt. Tvimidur. En Dulce de amendoim er aedislegt, tad er eiginlega kubbur af hnetusmjori. ^^
    rosa xoxo

    ReplyDelete
  3. Við gerum Dulce de leche þegar við komum heim. Það er alveg pottþétt!
    Beos og vona að það gangi betur hjá þér ;)

    ReplyDelete
  4. skemmtilegt að lesa alla þessa fróðleiksmola... ég kem með einn á móti : ertur eru baunir ;)

    Ella

    ReplyDelete