Þetta er að verða mjög heimspekilegt þetta blogg þannig að ég ætla aðeins að segja hvað ég er búin að vera að gera hérna í landi Indíánja og rólegheita.
Vikan var bara frekar venjuleg fór í skólann á þriðjudag-fimmtudags en á föstudaginn var ekki skóli hjá mínum bekk vegna þess að þau vissu að kennararnir myndu ekki mæta. Á þriðjudeginum kom Marcela (trúnaðarmaðurinn minn og Kristine) og við fórum að gá hvort að við gætum spilað á klarinettið og hún á píanóið með einhverjum kór, en maðurinn sem stjórnaði kórnum sagði að hann vildi að við kæmum til hans í El I.U.P.A sem er háskólastofnun fyrir Listir. Við erum þess vegna að fara þangað á þriðjudaginn. Ég er samt spenntari fyrir því að fara í hljómsveit þannig að þetta verður meira bara eins og skoðunarferð fyrir mig :)
Á laugardaginn kom Elínborg í heimsókn til mín. Kom hingað til þess að fara á Boliche. Alveg æðislegt að geta talað íslenskuna og líka tala við einhvern sem er frá Íslandi. Um kvöldið kom vinkona mömmu og eldaði ótrúlega góðan kjúkkling. Um klukkan hálf þrjú fórum við á Bolicheið og það var alveg ágætt. Komum heim rétt fyrir sex og sváfum til tólf. Fórum svo í Asado til Söndru móðursystur og það var bara ágætt. Svo fór bróðir minn að spila handboltaleik og stuttu síðar fór Elínborg. Svo fórum við heim og ég fór að sofa aftur. Soldið löt.
Mig minnir að ég hafi minnst á það að það rigndi aldrei hérna. Það er alveg satt vegna þess að stuttu eftir að ég skrifaði bloggið um að ég saknaði rigningarinnar þá kom þessi hellidemba. Rúmið mitt er undir glugga og þeir sem þekkja mig vel vita að ég sef MJÖG fast. En rigninginn hérna í Argentínu er hryllileg. Ég vaknaði upp með andfælum og ég hélt í alvörunni að það væri byrjað stríð og það væri verið að sprengja sprengjur. Var í sjokki. Fór fram og þá höfðu allir vaknað. Rigninginn breyttist svo í frekar venjulega rigningu og ég fór að sofa. Rigndi í nokkra daga en það var í fyrsta skipti sem það rigndi hérna í nágrenni General Roca í rúmt ár! Takk fyrir.
Síðan ég kom hingað er áhugi minn á myndatöku búin að stóraukast og ég elska að taka myndir. Er líka byrjuð að teikna smá, þarf að æfa mig aðeins meira í því haha
Belen, Kristine og Sol
Ég og Elínborg
Kristine, ég, Yenii, ELínborg, Belen og Sol
Gianluca og Kristine
Alltaf gaman að fá komment (bendi á leiðbeiningar í seinasta blogg!)
Kossar og knús á Ísland
-Hrefna Björk
ahhh.!! que lindooooo..!!! me encantaaa..!! jajajja..!!! que puedo decir.. a seguir disfrutando Argentina Hermanaaa.!!! kiero vivir mas cosas con vos acá..!! :) Te quiero muchooo..!!! MUY LINDO TU BLOG..!! Besos..!!
ReplyDeletegott að lífið sé ljúft og þú komin í réttan gír :-) elska þig og hlakka mikið til að sjá þig í júlí 2012
ReplyDelete