Sunday, November 20

3 meses!

Núna er ég búin að vera hérna í Argentínu í 3 mánuði. Ég man enn þá svo vel eftir því þegar ég lenti á flugvellinum í Neuquén og maður sá allar fjölskyldurnar. Þau létu eins og geðsjúklingar og ég held að ég hafi ekki verið sú eina sem fór hjá mér. Þegar maður hitti svo fjölskylduna í fyrsta skiptið þá var maður svo feimin að maður gleymdi allri spænsku sem að maður kunni. En í dag er allt orðið gott og maður þekkir fjölskylduna bara orðið mjög vel og ég veit að þau verða alltaf partur af mér sama hvar ég er stödd í heiminum.


En af hinni vikulegri dagbók.


Villa Regina...er 50.000 manna bær í 27 km fjarlægð frá Cervantes. Ég, Kristine og hennar fjölskylda fórum þangað á sunnudaginn fyrir viku. Þessi bær er alveg rosalega fallegur og hefur ýmislegt merkilegt að geyma. Við fórum að skoða indíjánastyttu sem er uppi á hárri hæð. Enduðum svo á torginu fyrir neðan og drukkum maté :)


Mynd tekinn af  hæðinni fyrir ofan  (um 80 metrar)  Villa Regina

Þetta er bíll ungs herramanns sem ákvað að svipta sig lífi eftir að hafa rifist við kærustuna sína. Það er ekki búið að fjarlægja bílinn en það eru samt liðin svona 3-5 ár


Indíjáninn Comahue sem er 13 metrar á hæð og vegur 35000 kg

Kapella sem er í 80 metra hæð

 
Bara til að sýna ykkur hvað ég er að njóta lífsins! :)


Despedida...heitir hátíð sem haldin er fyrir útskriftanema í Argentínu. Það er venjulega á kvöldin og allir klæða sig upp í grímubúninga. En ekki í mínum skóla. Seinasta mánudagsmorgun þrömmuðum við fjórðu og fimmtubekkingar út á einn af ávaxataökrunum hérna rétt utan við Cervantes. Við fjórðubekkingar þurftum að skipuleggja þetta og svo á næsta ári gerir einhver annar það fyrir þau sem eru með mér í árgangi en ég verð farin til Íslands aftur þá.  Við mættum í skólan aðeins seinna en venjulega og svo lögðum við að stað, sumir labbandi, sumir á fjórhjóli og aðrir á (tví)hjóli. Svo var bara skoðað sig um og ég tók fullt af myndum því þetta var allt annað umhverfi heldur en ég er vön á Íslandi. Við til dæmis borðuðum kirsuber beint af trjánum. Svo var borðað "Choripan" sem er fransbrauð með einhverskonar pulsu sem er mjög feit og mér finnst það ekki gott  :/ eftir hádegismatinn voru leikir með vatni og vatnsblöðrum og það var ótrúlega gaman. Svo var bara haldið heim á leið seinnipart dags.

Ávaxtaakurinn

Smá svona umhverfismynd

Ég og Kris að vera kjánar

Sólin er alveg ótrúlega sterk hérna en þetta var eini dagurinn sem ég brann (og einungis á einum litlum blett sem ég gleymdi að setja sólarvörn á!).

Kirsuber beint af trjánum

Við urðum soldið blautar haha


Nóg af gosi 

Skelltum okkur svo í skuggan því að hitinn hérna er nú þegar orðinn alveg ótrúlega mikill!


Punta...er skemmtistaður í General Roca. Sá sami og við fórum á seinustu helgi. En þennan laugardag var bingó skólanum hjá mér. Ég og Kristine fórum samt ekki út af því að við vorum búnar að ákveða að hitta hina skiptinemana sem eru í Roca. Við byrjuðum á því að borða empanadas (uppáhaldið mitt) og horfðu á Grey´s Anatomy (hitt uppáhaldið mitt) svo skutlaði pabbi Kristinar okkur til Roca heim til Friedrike sem er skiptinemi frá Þýskalandi. Þangað kom svo Fha sem er skiptinemi frá Taílandi. Fha er búin að vera hérna í 8 mánuði en Friedrike bara þrjá eins og ég en samt eru þær báðar að fara heim í janúar. Það er svo allt of stutt að vera hérna bara í fimm mánuði. Maður þarf allavegana ár, þótt ég sé ekki einu sinni viss um að það dugi mér haha. Eftir að við vorum búnar að vera í smá stund heima hjá þýska skiptinemanum fórum við ásamt bróður Friedrike og pikkuðum upp systur Fha. Fórum svo á einhvern bar og spiluðum...veit ekki alveg hvort að það sé eitthvað venjulegt. En Kristine og ég leiddumst þannig að við fórum einar á Punta (skemmtistaður) þar sem við hittum systikini okkar og Shey (systir skiptinemans sem fór heim). Það var verið að halda upp á afmæli skemmtistaðarins og þess vegna var meira fólk og meira gaman. Eitt sem var samt ekki við mitt hæfi var að það voru tvær stelpur sem unnu við það að dansa og önnur var í svo gegnsæjum og efnislitlum fötum að mér leið eins og á súludansstað, hún staldraði þó stutt við sem betur fer. Svo var dansatriði sem einhverjir krakkar höfðu undirbúið og það var mjög flott. Rákumst á alla hina skiptinemana (nema einn!) sem eru í Roca á skemmtistaðnum. Svo var bara haldið heim á leið um sjöleitið og ég gisti hjá Kris. 


Kristine, Fha og Friedrike

Sol, Marcelo og Sheyla á Punta

Uppáhaldin mín





Núna eru fjórir dagar í SUMARFRÍ það er frekar skrýtið þar sem það er nóvember og engin próf hérna fyrir mig (og eiginlega ekki fyrir hina heldur). 


Það kom rigning og engin smá hérna um daginn. Það var aftur þessi stríðsfýlingur, haglél og þvílík læti. Og til þess að þetta eyðileggi ekki ávextina sem vaxa hér allt í kring er sprengd sprengja upp í himininn til þess að opna skýin. (skil ekki alveg hernig það er gert, en það virðist virka)

Ætla að segja þetta gott og vona að þetta hafi ekki verið of stutt fyrir ykkur (sérstaklega fyrir þig Guðmundur haha)


-Hrefna Björk


P.s. Langar til að segja hvað mér þykir vænt um ykkur systur mínar á Íslandi og sendi kossa og knús og sérstaklega á þig Kristín mín, þú átt svo miklu betra skilið!





5 comments:

  1. Sömuleiðis Hrefna Björk! Vildi að ég væri ekki að fara í próf og gæti bara hlaupið um í rigningunni í 30 stiga hita! how nice!! enjoy!

    knús
    Ella

    ReplyDelete
  2. frábært að sjá hvað er gaman hjá þér, elsku Hrefna Björk mín.Njóttu lífsins og vertu alltaf þú sjálf. Knús MAMMA

    ReplyDelete
  3. Sömuleiðis Hrefna mín!
    Æðislegt að sjá hversu gaman er hjá þér
    ég vildi óska þess að það væri 30 stiga hiti á íslandi!!
    Flottar myndirnar af þér
    Hafðu það gott elsku systir :*
    Hlakka til að sjá þig í júlí!

    Knús
    Bryndís

    ReplyDelete
  4. Me gusta mucho leer tus blogs hermana..!! Son muy divertidos... pero lo que no me gusta a veces es que pones fotos mias feas..! jajaja pero no importa..!! ;)sabes que te kiero mucho y quiero compartir todo el tiempo con vos..!! me encanta que estes bien aca en Argentina..!! y espero que sigas asi hasta que llegue el fin de esta experiencia..!! que creo que va a hacer inolvidable para nosotros y para vos tambien..!!! sabes que en algun momento vamos a estar a mucho kilometros..!! pero siempre vas a estar en mi corazon..!! TE QUIERO MUCHO..!! <3

    ReplyDelete
  5. Va greinilega geggjað gaman hja þer elskan :) Hefði ekkert á móti því að fara í sumarfrí núna og vera í öllum þessum hita.

    Knús og kossar Kristin

    ReplyDelete