Hérna í Cervantes búa 10.000 manns. Það þekkja allir alla. Maður segir "hola" t.d. við alla þegar maður er úti að labba. Dæmi um hvað allir þekkja alla vel er að á laugardaginn var ég á leiðinni til Roca og við sáum slys. Þá var sem sagt kona sem hafði eitthvað slasað sig á mótórhjóli. Foreldrar Kristine þekktu konuna ekkert það vel en vissu hvar allir ættingjar hennar áttum heima. Fórum í fjögur hús til að finna þau. Mér fannst þetta mjög sérstakt. Bróðir minn var að segja að það væri miklu hættulegra að búa í Roca (100.000 manna bærinn rétt hjá) vegna þess að það væri hægt að ræna mann þar. Ég sagði þá að það væri líka hægt að ræna mann í Cervantes en hann sagði að ef einhver myndi ræna mig þá myndi hann vita hver það væri.
Hérna er loftmynd af bænum mínum:
Húsið mitt er staðsett frekar utarlega í bænum og þess vegna þarf ég alltaf að labba frekar "langt" miðað við aðra sem er bara kostur. Skólinn er þó einungis nokkurra mínútna göngufjalægð.
Þegar maður slær nafnið á bænum mínum inn í google kemur ekkert upp, það segir soldið um hvað hann er lítill og óþekktur. Áður en ég kom hingað var það soldið fúlt að geta ekki séð hvar maður var að fara að búa næsta árið en það var bara gaman hvað það kom á óvart :)
Húsið mitt er allt öðruvísi en á Íslandi. Set hérna inn mynd af herberginu mínu:
Ég er með sérherbergi en samt með tvö rúm ef einhver vill gista.
Húsið mitt er frekar lítið en í sama húsi búa einnig afi minn og amma. Amma mín er alveg rosalega forvitin. Eitt dæmi er þegar ég var einu sinni veik. Ég lagðist upp í rúm og var næstum því sofnuð. Kemur þá gamla og spyr "ertu sofandi" eins og það væri ekki augljóst að ég væri allavegana að reyna það. Þau hafa ekkert einka hérna fjölskyldan mín út af ömmunni sem er með nefið ofan í öllu. Tek það fram að húsið hennar er fast með húsinu mínu við búum ekki í sama rými og hún sem betur fer.
Þetta er smá sárabót fyrir hvað það var lélegt seinasta blogg. Hef fengið kvartanir þannig að þetta er allavegana eitthvað smá í viðbót. Er svo fullt búið að gerast síðan á sunnudaginn þannig að stay tuned.
Hasta luego
-Hrefna Björk
Sæta fjölskyldan mín




Nokkuð kósý herbergi bara og sjónvarp og alles :)
ReplyDeleteKnús Kristín
Heyrðu já frekar kosý...fyrir utan það að ég hef aldrei kveikt á sjónvarpinu vegna þess að það er ekki innstunga fyrir það haha
ReplyDelete