Ég ákvað um daginn að byrja að skrifa dagbók vegna þess að þegar ég byrja að skrifa bloggin þá man ég aldrei hvað ég er búin að vera að gera...en núna ætti maður að muna allt og verður þetta þá kannski lengra blogg en venjulega.
Mánudagurinn 31.október
Þetta var venjuleagasti dagur vikunnar. Fór í skólan og við fengum að fara fyrr heim, eins og eiginlega alltaf. Svaf smá siestu og fór svo á sundæfingu og eftir það í ræktina. Um kvöldið fór ég svo heim til Kristine og ég æfði mig á klarinettið og hún á píanóið. Það gekk bara vonum framar. Þennan dag var Halloween haldið í Argentínu og maður sjá ófáa krakka vera að snýkja nammi.
Þriðjudagurinn 1.nóvember
Ég og Kristine skrópuðum í skólann til þess að fara í tónlistarháskóla í Roca með trúnaðarmanninum okkar. Þetta var nú samt stuttur skóladagur hjá hinum en þau voru búin klukkan níu. En við fórum í tónlistarháskóla sem heitir "El Yuba" og er mjög stór skóla. Þarna er fólk að læra frá mörgum löndum og maður fær að búa frítt á nemendagörðum ef maður er að læra í skólanum. Okkur var boðið að koma og prufa að spila hérna fyrir einn kennarann. Kristine spilaði "What are words" sem var alveg ótrúlega fallegt. Ég var hins vegar ekki með neinar nótur nema af íslenskum lögum þannig að ég spilaði "Þitt fyrsta bros" og "Kvöldsigling" og það heppnaðist bara ágætlega. Kennum arinn bauð okkur að byrja í tímum hjá sér og við erum að fara að byrja á fimmtudaginn. Við myndum þá spila saman, kristine á píanóið og ég á klarinettið. Hann sagði svo að við gætum byrjað í tónlistarháskólanum í febrúar ef að við vildum og skólagjaldið er 20 pesóar á mánuði (540 kr.) og við fáum þá einkatíma og tónfræði. Aðeins ódýrara en á Íslandi haha.Um kvöldið borðaði ég Fiambre heima hjá Kris, en það er einfaldlega brauð með áleggi. Smakkaði "Gucamola" og það var ótrúlega gott. Við fórum svo út á torg að hitta vini og vorum þar til fjögur um morguninn.
Miðvikudagurinn 2. nóvember
Þennan dag var búið að láta okkur vita að kennararnir okkar myndu ekki mæta, þannig að það var enginn skóli. Ég og Marcelo sváfum samt ekki út þrát fyrir það. Vöknuðum klukkan átta eftir fjagra tíma svefn og tókum strætó til Roca.Núna er ég búin að komast að því af hverju fólk var að segja að póstþjónustan í Argentínu er ömurleg. Ég keypti mér nefnilega Kindle (lítið tæki sem maður getur keypt bækur í og lesið) á amazon og lét senda hann til mín. Fór svo að skoða hvar hann væri stattur og sá það að hann hafði lent í Buenos Aires einum degi eftir að ég pantaði hann. En þau í Buenos Aires myndu ekki senda hann til mín nema að ég borgaði $109 (rúmar 12.500 kr.) dollara sem er það sama og ég borgaði fyrir tækið í upphafi. Það er ástæðan fyrir því að þennan morgun vöknuðum við snemma til þess að fara að borga fyrir Kindle-inn. Þannig að vonandi fæ ég hann bráðum í hendurnar. Við komum svo heim og ég sofnaði, vaknaði aftur eftir klukkutíma til þess að fara á sundæfingu. Eftir sundæfinguna komu Sol, Kris og Gianluca og við drukkum Tereré. Um kvödið horfðum ég og Krist svo á nýjan þátt af Desperate housewives.
Fimmtudagurinn 3. nóvember
Þennan dag fórum við í skólan og vorum búin snemma vegna þess að það vantaði kennara. Við þurftum samt að fara að hlusta á skólastjóran tala í rúman klukkutíma um einhverjar nefndir og atburði sem tengjast útskrift hjá fimmta bekk (ég er í fjórða bekk). Ég og Kristine þurfum að redda köku skylst mér. Um kvöldið kom bróðir mömmu og hans fjölskylda í heimsókn og borðaði Asado með okkur. Sonur hans er mesta krútt í heimi.
Föstudagurinn 4.nóvember
Eftir skóla og hádegismat hittumst við heima hjá ömmu hennar Belen (bekkjarsystir) vegna þess að við þurftum að taka myndir fyrir verkefni í skólanum. Ég var látin leika gamla kerlingu og var látin fara í alveg hryllilegan kjól. Myndirnar komu samt vel og ég vona að við fáum gott fyrir þetta. Eftir þetta fórum við heim og drukkum tereré ásamt Belen. Á meðan var bróðir minn að mála húsið hjá ömmu sinni og afa. Um kvöldið fór ég svo bara snemma að sofa vegna þess að ég var að deyja úr höfuðverk. Örugglega vegna þess að það er orðið svo heitt og ég drekk eiginlega aldrei vatn.
Laugardagurinn 5. nóvember
Vöknuðum snemma til þess að fara til Roca. Fórum í nýja bílnum sem frænka mín var að kaupa. Vorum þar til hádegis og snerum svo aftur heim. Eftir hádegi hékk ég með fjölskyldunni hennar Kristine. Þessa helgi var verið að halda upp á afmæli Cervantes og mikil hátíðarhöld. Við fórum á torgið og drukkum maté. Um kvöldið voru svo tónleikar.
Sunnudagurinn 6.nóvember
Sváfum út og fórum svo í Asado hjá ömmunni og afanum. Eftir það þurftum við að fara að taka þátt í skrúðgöngu með AFS. Sama og við gerðum í Roca í september. Það var svo sem ágætt og mikið af fólki að horfa. Eftir skrúðgönguna löbbuðum við um básana og ég keypti mér armband í argentínsku fánalitunum með nafninu mínu. Keypti líka hlut gerðan úr tré til þess að geyma yerba og sykur sem bróðir mömmu minnar bjó til. Alveg ótrúlega flott. Um kvöldið voru svo aftur tónleikar og ein hljómsveit "La gruta" eða hellirinn var alveg frábær. Svo var líka fegurðarsamkeppni. Tvær stelpur í skólanum lentu í fyrsta og öðru sæti. Litla frænka mín og Sheyla voru svo að dansa.
Jæja held að þetta sé bara komið gott og hendi hér inn mynum í lokin
Smá svona Arty mynd
Ég og Kristine á tónleikunum á laugardaginn
Bróðir minn í skrúðgöngunni
Það voru fallhlífastökkvarar og læti
Bekkjarsystir mín sem tók þátt í fegurðarsamkeppninni
Fernanda áður en hún fór að dansa
Sheyla að dansa Flamengo
Ég og hjartaleikjóinn
fyrir yerba og sykur
Kveðjur frá Argentínu
-Hrefna Björk
P.s. Ég vill óksa henni Krissu til hamingju með afmælið og ég vona að þú njótir dagsins í botn og að hann verði alveg frábær :)
gaman að fá svona alla vikuna bara!:) frábært hvað það er gaman, og gaman að því að þið frænkurnar Dögun og þú skulið segja orðið sleikjó eins ;) (leikjó) :p
ReplyDeleteknús
Ella
mikið er gaman að lesa bloggið, það er nóg að gera hjá þér, eins og þú vilt hafa það. Össur yrði hamingjusamur með tónlistarnámið þitt :-)
ReplyDeletekossar og knús
Gaman að lesa bloggið frá þér Hrefna Björk mín. Það er greinilega í nógu að snúast hjá þér, og frábært að þú getir farið að spila á klarinettið.Hér er nýbúið að vera alveg snarbrjálað veður með rignignu og ofsaroki; gott að hugsa til þín í sólinni og sumrinu! njóttu þess :) Kveðjur frá okkur Guðmundi frænda til þín.
ReplyDeleteHrafnhildur