Sunday, November 27

Sumarfrí í nóvember

Ég vil byrja á því að senda kveðju til fjölskyldunnar minnar á Íslandi, mér þykir rosalega vænt um ykkur og það er ótrúlega erfitt að vera svona langt í burtu á þessari stundu.

Núna er liðinn 101 dagurinn minn hérna í Argentínu það er ótrúlega langur tími en samt svo stuttur tími. Ég er búin að gera svo rosalega margt o upplifa svo margt. Ég er alveg viss um það að ég strax búin að þroskast eitthvað, ég vona það allavegana.


En eins og titillinn segir þá er ég komin í sumarfrí og verð það næstu þrjá mánuðina. En undanfarnir dagar:


Á miðvikudaginn þá var komið að því að sækja pakkan minn frá Íslandi til Neuquén. Sandro pabbi hennar Kris var svo elskulegur að skutla mér. Við komum  á staðinn og þurftum að bíða í svona klukkutíma sem mér fannst bara mjög vel sloppið. Svo var kallað á okkur og við látin inn í eitthvað herbergi og pakkinn var opnaður og skoðaður. Svo var okkur bara leyft að fara og ég þurfti ekki að borga neitt sem er frekar óvenjulegt vegna þess að Kris er búin að fá þrisvar sinnum sendingu og þurfti að borga í öll skiptin. En maður er bara heppin, allavegana stundum. Takk kærlega fyrir pakkan var alveg rosalega glöð :D


Fimmtudagurinn var svo seinasti skóladagurinn. Við mættum aðeins seinna en venjulega og þegar dagskráinn byrjaði settumst við út í sólina sem var allt of sterk. Það var byrjað á því að Fánaberinn, hann er kosinn af öllum nemendum og kennurum í skólanum og stelpan sem fékk heiðurinn er einmitt með mér í bekk. Svo eru tveir nemendur sem fá að fylgja og önnur stelpan er í mínum bekk líka. Það var spilaður hinn dramatíski argentínski þjóðsöngur og allir sungu með nema ég. Svo voru veitt verðlaun fyrir hæstu meðaleinkunn, besti skólafélaginn og svo fengu allir metalíu sem hafa mætt alla daga í skólann og það voru alveg þó nokkrir. Eftir þessi formlegheit þá var haldið á torgið og við borðuðum og svo voru teknar hellingur af myndum með bekknum. Það er hefð seinasta skóladaginn að henda hvert öðru í einhverskonar læk sem er rétt hjá torginu. Og auðvitað var byrjað að nýðast á skiptinemanum, OG allir í bekknum hentu mér út í. Það var frekar kalt eftir á þannig að maður þurfti að skella sér í sturtu. 


Á Föstudagskvöldið var mér boðið í Asado með fjölskyldunni hennar Kris. Fórum heim til einhvers frændans og borðuðum og skelltum okkur til Roca til þess að kaupa ís. Komum svo heim um miðja nótt. 


Bajada kallast útskriftaveisla hérna í Argentínu. Þá eru útskriftanemarnir leiddir niður af sviði og fyrir neðan bíður fjölskyldan. Þetta var Bajada hjá grunnskólanum hérna í Cervantes. Frekar leiðinlegt...en það er önnur Bajada hjá menntaskólanum hérna næstu helgi þannig að þá fær maður að kynnast þessu betur. Eftir að ég og Kris vorum búnar að láta okkur leiðast í smá stund fórum við með Sandro og Tobías (litli bróðir Kris) til Roca í bíltúr. Fórum á svona stað þar sem fólk rennir sér á hjólabrettum, hjólum og þess háttar. Eftir að hafa verið þar í nokkra stund fórum við heim. Ég var komin upp í rúm og ætlaði að fara að sofa en þá byrjaði þessi skemmtilega argentínska rigning/haglél. Þannig að ég þurfti að bíða nokkra stund vegna þess að það er ekki svefnfriður fyrir þessum hávaða. Loksins náði ég að sofna og svaf til átta.


Í dag (gær tæknilega séð) var svo haldið að stað í kirkju klukkan níu. Comunion heitir það þegar börn fá í fyrsta skipti að borða brauðið í krikjunni (líkami krists). Litla systir mín hún Lucía náði þeim merka áfanga í dag. Ég segi merka vegna þess að hún er búin að þurfi að læra fyrir þetta í tvö ár. Takk fyrir. Svo eftir svona tvö til fjögur ár þá fermist hún. Þetta var mjög líkt fermingu nema það er engin veisla á eftir eða neitt þannig. 


Þetta er búin að vera svo erfiður dagur í dag en samt góður. Trúnaðarmaðurinn minn kom í heimsókn og það er alltaf gaman að sjá hana. Svo ætluðum við að fara á Boliche en það var hætt við það, það er ástæðan fyrir því að ég er ekki farin að sofa haha. 


Skelli inn nokkrum myndum:


Fallegi bekkurinn minn seinasta skóladaginn

Marcelo og Sheyla

Þetta er bara klassík í Argentínu

La bajada

Steiktar Empanadas

Hjólabrettastaðurinn í Roca

Comunion hjá Lucíu

Lucía með gamlli frænku sem er nýkomin úr lungnaígræðslu

Ég og Lucía :)


Ég vona að það séu ekki mikið af stafsetningarvillum :)

Þangað til næst
-Hrefna Björk



4 comments:

  1. Ég væri alveg til í að vera í sumafríi núna. Snjórinn hérna á Íslandi er ekki alveg að gera sig. Gaman að sjá hvað það er gaman hjá þér og flottar myndir.

    ReplyDelete
  2. Oh hvað ég væri til í sumarfrí í staðinn fyrir jólapróf!
    Það er æðislegt að sjá hversu gaman er hjá þér og flottar allar þessar myndir!

    Hafðu það sem allra best Hrefna mín
    Ég hlakka til að sjá þig í júlí 2012 :)

    ReplyDelete
  3. mikið er gaman hjá þér umkringd skemmtilegu fólki :-)
    Njóttu lífsins elsku Hrefna Björk mín.
    knús og kossar frá okkur hér í kuldanum .....

    ReplyDelete
  4. Gleðilegt sumar mín kæra. Njóttu lífsins og sendu okkur smá sólargeisla hingað í kuldann.
    Fostþurrkað knús og kossar :-)
    Hrefna

    ReplyDelete