Jólaundirbúningurinn
Hérna byrjar jólaundirbúningurinn 8. desember þegar það er "día de la virgen" (dagur meyjarinnar). Þá er skreytt allt eins og ég held að ég hafi sagt í einhverju blogginu. Svo er eiginlega ekki gert neitt í sambandi við jólin bara notið sumarsins. 22. des fórum við að sjá jólahelgileikinn á torginu og það var smá jólalegt. Við skelltum okkur svo í jólainnkaupinn á þorláksmessumorgun klukkan hálfátta. Það var verslað alveg hellingur af jólamat enda eru Argar þekktir fyrir að borða mikið á jólunum. Þessi innkaup tóku hvorki meira né minna er sjö klukkustundir...Svo var haldið heim á leið og það vantaði alveg rosalega mikið ógeðslegu skötufýluna :(
Jólin
Jólin mín byrjuðu með því að ég talaði við yndislegu fjölskylduna mína skype...og það var alveg æðislegt. Svo fór ég með argentínsku fjölskyldunni minni heim til "tíu" (gömul frænka) og ég skellti mér óvænt í jólamessu...með pólska prestinum sem talar svo skrýtna spænsku. Það var smá jólalegt sérstaklega þegar þau sungu "Heims um ból" ...reyndar á spænsku. Um klukkan ellefu borðuðum við jólamatinn. Og auðvitað var það "asado" sem sagt allskonar kjöt og kjúklingur sem eldaður er yfir eldi. Allir borðuðu eins og þeir gátu. Rétt fyrir tólf þá var opnaðar jólagjafirnar...ég fékk eina frá frænkunni, en líka eina frá jólasveininum/mömmunni. Svo klukkan tólf var skálað með kampavíni og allir fóru út að sprengja flugelda. Svo er hefðin að allir fara út að dansa með vinum sínum en ég gat ekki farið út af því að ég var veik :(
Þarna voru jólin haldin, sjáið "asado" in making þarna fyrir aftan
Ég og jólasveininn
JólaNammi
Veikindi
Daginn fyrir jól þá varð ég alveg rosalega veik í maganum. Þannig að bróðir minn fór með mig heim til konu sem "Curar" Þetta er mjög trúarleg athöfn. Það er þannig að konan notar rauðan borða og ég átti að þrýsta þessu á staðinn sem mér verkjaði og hún eins og færði sig alltaf nær og gerði krossmark. Það er svolítið erfitt að útskýra þetta þannig að ég set hérna inn myndband...frekar líkt því sem konan gerði við mig en svolítið öðruvísi. Maður þarf að fara þrisvar sinnum til þess að þetta virki. Eftir fyrsta skiptið varð ég meira veik og ég þurfti að fara upp a spítala og fá fjögur lyf í æð. Þurfti að bíða með það í 30-40 mínutur og ég var að verða klikkuð og ég hugsaði svo til mömmu og hugsaði hvernig hún fór eiginlega að þessu. Leið betur eftir það, en var svo aftur orðin slæm á jólunum og gat ekki borðað neitt. En var svo orðin betri á jóladag. Og í dag er ég eiginlega alveg búin að ná mér sem betur fer :)
Svo skelli ég inn nokkrum myndum úr daglegu lífi :)
Mamma mín að vera myndarleg í eldhúsinu. Geðveik kaka
Fór að heimsækja eina móðursysturina í sveitina
Ótrúlega fallegt
móðursystirin er múslimi
ég að horfa á jólahelgileikinn
Fórum svo annar í jólum og borðuðum asado hjá ánni
Núna þessa undanfarna daga er búið að vera alveg rosalega mikill hiti, fer ekki niður fyrir 30°C og hefur farið yfir 40°C. Maður er alveg að steikjast og vaknar eiginlega alltaf í svitabaði. Rosalega skrýtið að sjá svo myndirnar af Íslandi núna væri svo mikið til í snjó! Vona að það verða líka hvít jól á næsta ári...sem er btw eftir einn og hálfan sólahring. Ég skrifa svo blogg á næsta ári og segi ykkur frá áramótunum mínu :)
Vonandi áttuð þið gleðileg jól og vona að næsta ár verði alveg frábært fyrir alla.
-Hrefna Björk


Gleðileg jól elsku systir hlakka til að heyra frá áramótunum og vonandi eru þessi veikindi bara búin :)
ReplyDeleteKnús Kristín
elsku Hrefna Björk mín, vona svo sannarlega að þessi veikindi séu búin.
ReplyDeletefarðu vel með þig mín kæra.
Hafðu það sem allra best, hlakka svoooooooo til í júlí 2012 að fá að knúsa þig
knús og kossar
Gleðileg jól Hrefna:) Æj, ömurlegt að vera veikur um jólin:( en vona að þú sért búin að jafna þig núna!
ReplyDeleteMjög gaman að lesa bloggið hjá þér og sjá myndir:) Þú ert að upplifa svo mikið nýtt og skemmtilegt!
Hafðu það gott;*
- Valka
Elsku Hrefna! Gleðileg jól og gleðilegt nýtt ár. hlökkum til að sjá þig á næsta ári :) vonandi eru veikindin bara alveg búin. hafðu það gott um áramótin!
ReplyDeleteknús! Ella, Oddur og Dögun
Gleðileg jól ! :) vona að þér sé batnað af þessum veikindum ! Ég fylgist alltaf með blogginu þínu ! Finnst mjög gaman að lesa það sem þú skrifar og fylgjast aðeins með ! :)
ReplyDeleteHafðu það gott það sem eftir er af dvölinnu og haltu áfram að skrifa og passaðu þig að brenna ekki eins mikið í sólinni og útá spáni síðasta sumar!
-Heiðdís
Gleðileg jól Hrefna! Gaman að heyra af lífinu í hitanum, hér hefur ekki snjóað meira í desember síðan 1984!! Reyndar er rigning eins og er og hláka og skemmtilegheit.. Hafðu það yndislegt um áramótin,
ReplyDeleteBestu batakveðjur frá okkur Rikka og Degi Inga,
Bless kex,
Berglind
Gleðileg jól Hrefna mín og vonandi ertu orðin hress af þessum veikindum.
ReplyDeleteSkemmtilegt að sjá myndir af þér :)
Hlakka til að sjá þig í júlí
Hafðu það gott sæta mín:*
Elsku Hrefna Björk; vonandi er þér batnað núna og getur fagnað áramótunum heil heilsu. Það verður gaman aa fá að lesa um þau í blogginu þínu; þau verða örugglega eitthvað öðruvísi en hér heima!
ReplyDeleteÞað er virkilega gaman að fylgjast með lífi þínu í Argentínu og sjá myndirnar þínar. Gleðilegt ár og megi nýja árið verða þér gott. Haltu áfram að njóta ævintýrisins. Við hlökkum til að sjá þig á nýju ári.
Hrafnhildur og Guðmundur frændi.
Gleðileg jól elsku besta Hrefna Björk. Gott að heyra að þér sé batnað. Hlýtur að vera skrítið að eyða jólunum í miklum hita. Vona að þú eigir eftir að njóta sumarfrísins.. Það virðast vera aldir í sumarið hérna megin á hnettinum.. Hafðu það sem allra best á nýju ári ;D
ReplyDeleteþín frænka Salóme Jórunn