Monday, December 5

Ljúft?

Áður en ég fór sem skiptinemi var ég alltaf að lesa blogg hjá öðrum skiptinemum og ég man að maður tók ekki einu sinni eftir því þegar einhvað var slæmt hjá þeim. Maður hugsaði alltaf vá hvað þetta er bara gaman. En ég verð að hryggja ykkur með því að það er alls ekki þannig að allt sé auðvelt og gott. Ég er búin að eiga alveg fullt af vondum dögum hérna og me´r langar helst bara að taka fyrstu flugvél heim til mömmu og pabba!...en sem betur fer eru þeir góðu fleiri. Og ég skal segja ykkur það að mér finnst svo gaman að fá komment...eða jafnvel tölvupóst :) Það bjargar alveg deginum hjá mér...svo þeir sem lesa bloggið mitt og kommennta ekki mættu alveg byrja að kommenta :D


Það er ekki búið að vera mikið að gerast hjá mér hérna hinum megin á hnettinum í sólinni síðastliðna viku...
Hérna eru jólin að koma alveg eins og á Íslandi en það er ekkert jólastuð hérna EKKI NEITT. Fólkið er frekar að spá í því að njóta sumarsins og hafa gaman þannig en ekki svona JÓLAgaman eins og á íslandi.


Núna um hegina var "Bajada" eða útskriftaveisla fyrir elsta bekkinn í skólanum mínum. Minn bekkur sem er næst elstur þurfti að sjá um allt. Ég fór að hjálpa á föstudaginn og við gerðum öll boli sem ég set mynd af hérna. Svo þegar ég kom heim var ég orðin veik og á laugardaginn var ég með hita og vesen þannig að ég fór ekki neitt þann daginn. 


Sunnudagurinn var alveg rosalega sorglegur. Þannig er mál með vexti að mamma einn bekkjarbróður míns dó eftir baráttu við krabbamein. Þegar einhver deyr hérna í Argentínu er það allt öðruvísi en á Íslandi. Þegar við fréttum þetta fórum við heim til stráksins...það var alveg fullt af fólki heima hjá honum fyrir utan og allir stóðu bara og biðu. Svo kom sjúkrabíll og flutti hana í annað hús. Þar var eins konar kistulagning. Það var samt enginn prestur...en það var samt opin kista og allir voru saman þarna. Sumir voru þarna alla nóttina. Og svo klukkan tólf daginn eftir var hún jörðuð. Hérna verður að jarða fólk innan 48 klst. Þetta er alveg rosalega öðruvísi...þar sem á Íslandi er allavegana beðið í viku ef ekki tvær.


En ætla bara að hafa þetta stutt þar sem það er mið nótt hjá mér og hjá ykkur...munið eftir að kommenta! :)


Nokkrar myndir:


Ein bekkjarsystir mín að búa til sinn bol 

Kristine bjó líak til bol

Bolurinn hans Marcelo, mjög flottur!

Bolurinn minn, frekar ljótur haha

Bolurinn minn að framan

Kirstuberjatréð sem er í garðinum hjá systir minni

"Peach" tré...er búin að steingleyma íslenska orðinu haha Ég og Marcelo fróum og tíndum ávexti í dag og þetta var svo gott svona beint af trénu!

En ég set punktin hér.
-Hrefna Björk

7 comments:

  1. Hæ Hrefna Björk,

    Berglind konan hans Rikka hér.. Hef gaman af að kíkja á ævintýrasögurnar þínar.. Gangi þér vel með erfiðu dagana og enn betur með hina!

    Bestu kveðjur frá Berlín :)

    ReplyDelete
  2. Elsku Hrefna Björk mín.
    mikið sakna ég þín ...
    hlakka til að sjá þig í sumar.
    Njóttu lífsins og gangi þér sem allra best
    ég elska þig
    knús og klemm

    ReplyDelete
  3. ég væri til í kirsuberin og ferskjurnar, uuummm beint af trjánum :-)

    ReplyDelete
  4. Hæ Hrefna Björk :) Ég les stundum bloggið þitt og finnst gaman að fylgjast með...ég og vinkonur mínar erum að fara að ferðast um S-Ameríku núna eftir áramót og verðum í Argentínu einhverntímann í apríl, hlökkum mega mikið til !
    Kv. Diljá.

    ReplyDelete
  5. Gott að heyra frá þér Hrefna Björk mín. Auðvitað eru líka erfiðir tímar, það er alltaf svoleiðis að það er ekki bara tóm gleði í lífinu. En ég vil meina að maður kunni betur að meta góðu stundirnar, ef maður þekkir líka erfiðleika. Það er eðlilegt að það sé erfitt hjá þér núna, þegar viðkvæmir tímar eru í fjölskyldunni og svo eru jólin á næsta leiti. Hér er allt á kafi í snjó, svo að þú skalt bara njóta þess að vera í sumri og sól. Við hlökkum mikið til að sjá þig í sumar og heyra allar sögurnar. Við bíðum spennt!
    Kveðja frá Hrafnhildi og Guðmundi frænda.

    ReplyDelete
  6. Sæl elskan
    Ég sakna þín mikið og hlakka rosalega til að sjá þig næsta sumar!
    Þá gerum við eitthvað geðveikt skemmtilegt saman og veðrum vonandi betri vinkonur :D

    Hafðu það gott Hrefna mín
    Knús

    ReplyDelete
  7. elsku Hrefna Björk mín
    Mikið er ég ánægð hvað allt gengur vel núna, já það er alltaf best að tala og segja hvernig manni líður....
    Hafðu það gott, ég elska þig
    knus og kossar

    ReplyDelete