Það er búið að gerast mikið hjá mér síðan seinast.
El Río
Núna þegar það er komið sumar er alltaf farið al Río eða að ánni. Þar er drukkið Tereré og borðað kex með lifrakæfu. Svo er stokkið út í ánna þegar manni langar því að hitinn er alveg rosalegur. Svo er hægt að stökkva að hárri brú sem er yfir ánni þetta er alveg æðislegt. Áin er u.þ.b. 1 km frá Cervantes og þess vegna nota allir bíl til að komast þangað. Ég ætla nú samt að fara að prufa að labba þangað!
Fyrsta ferðin að ánni þetta sumarið
Yndislegt að geta baðað sig þegar það er svona heitt
Serva Tereré
Marce!
Ég að fara að stökkva af brúnni!!
Og svo lét ég mig gossa
Sofið út á götu
Í mínu fylki (Río negro) er meira af atvinnu heldur en í norðrinu. Þess vegna er mikið af fólki frá öðrum fylkjum sem kemur hingað til þess að vinna. Fyrir stuttu síðan var elsta argentínska systir mín að útskrifast sem kennari. Til þess að fá að vinna þar sem manni langar er reglan fyrstur kemur fyrstur fær þess vegna þurfti hún að bíða í röð í fjóra daga. Þar sem hún á lítið barn gat hún ekki alltaf verið þarna og þess vegna ákváðum við að hjálpa henni með því að bíða í röðinni eina nóttina. Við mættum á staðinn um ellefu leytið og tjölduðum í miðbænum á gangstéttinni. Svo var bara haft gaman enda vorum við fjögur og á endanum fórum við að sofa og daginn eftir snerum við aftur heim. Þetta var svolítið skrýtin lífsreynsla.
Ég með jólanammi!
Tjaldið okkar
Marcelo, Kris, Sol og ég með smá svefngals
Jólaundirbúningur
Í Argentínu byrjar jólaundirbúningurinn 8. desember. Það er einnig dagur meyjarinn (Virgen) og það er venjan að labba 15 km að skoða eina slíka. Ég var búin að eiga alveg ótrúlega erfiða daga áður og hafði ekki getað sofið mikið og tók þá ákvöðrum að sofa frekar. Enda hefðum við þurfti að vakna klukkan fjögur um nóttina til þess að fara.
En seinna um daginn var skreytt jólatréð og sett upp jólaskraut...mjög srýtin tilfinning.
Sæta gervijólatréð okkar
Marcelo að skreyta
Duglegur
Las Grutas
Á laugardagsmorguninn klukkan fimm um nóttina lagði ég að stað með fjölskyldunni hennar Kristine. Mættum svo á Las Grutas um níu leytið. Fórum að labba á ströndinni. Fórum svo í húsið sem þau leigðu og borðuðum hádegismat. Fórum svo aftur á ströndina og eyddum deginum þar. Fékk smá lit, eða kannski frekar mikinn miðað við að þetta var einn dagur. Svo um kvöldið fórum við og löbbuðum um bæinn og sáum einhverja danssýningu. Svo fer ég þarna aftur í janúar með fjölskyldunni minni. Alveg ótrúlega fallegt og skrýtin tilfinning að sjá sjóinn aftur eftir rúma þrjá mánuði. Svo á sunnudeginum ætluðum við að aftur á ströndina en það var ekki gott veður. Snerum svo aftur um hádegisbilið.
Las gruta (hellarnir)
Slökun á ströndinni, ekki slæmt
Fullt af fólki, held meira en íbúðarfjöldin á Íslandi!
Brann smá, allt orðið sólbrúnka núna :)
Sunnudagsmorguninn
Sjórinn :)
Vona að ég hafi ekki gleymt að segja frá einhverju merkilegu!
Gangi ykkur vel í jólaundirbúningnum! :)
-Hrefna Björk


Vá það er greinilegt að þú ert að upplifa ótrúlega margt!! Hefði nú heldur ekkert á móti því að geta farið á strönd núna sko! Gaman að lesa bloggið þitt og sjá myndirnar og ég vona að þú hafir það rosa gott :)
ReplyDeletebestu kveðjur frá kalda landinu :)
Gaman að lesa bloggið þitt og sjá allar myndirnar. Þetta hlýtur að vera mjöööög gaman, en líka erfitt ! Gangi þér rooosa vel ! Kær kveðja Freydís Halla :)
ReplyDeletemikið hlýtur þetta nú að vera gaman! njóttu þess rosa að vera þarna, það er ekki mikið að gerast spennandi á digranesheiðinni :)
ReplyDeleteKV HBJ hin
flott blogg :) haltu þessu áfram og lifðu lífinu til fulls!!!
ReplyDeletebestu kveðjur
En hvað maður upplifir hitann og rakann í gegnum myndirnar og textann, þetta er einstakt tækifæri sem þú hefur, njóttu vel þó ég skilji vel að þú saknir yndislegrar fjölskyldunnar þinnar.. Bestu kveðjur til Argentínu, Berglind hans Rikka.. :)
ReplyDeleteHaha vona það besta hjá þér :D Gangi þér allt í haginn þarna úti
ReplyDeletekv. Indriði ;)
Muy lindo tu blog..!! La verdad q nose que decir..! me gusto la charla q tuvimos y comprender que estabamos equivocados todos.. y espero que estemos bien.!! ESO ES LO QUE KIERO.!! vos sabes que te kiero mucho..!! y q nunca te voy a olvidar.!!! Sos muy importante para mi HERMANA.!! <3 con respecto al blog.. bueno.. Muyyy lindo!! y me encanta cuando pones que te gusta lo que haces..!! aunq a veces decis q es aburrido..!! pero bueno.. trataremos de hacer otras cosas para no aburrirnos..!! jeje..!! bueno.. espero leer tu proximo blog..!! :D hasta la proxima..!! Te kiero Mucho Hermanaaaa..!! <3 <3
ReplyDeleteHahaha fyndið þetta með að tjalda fyrir utan. Spes og skemmtileg minning til að eiga fyrir þig. Og vá, ef þetta er ekki eitt skrautlegasta og ljótasta gervijólatré sem ég hef séð og ekki bjargar skrautið á því, no offence samt hahaha.
ReplyDeleteEigðu góð jól! :)
Vá þú hefur greinilega fengið lit :)
ReplyDelete