Það er eitthvað búið að gerast síðan síðast...
Útilega
Á fimmtudaginn fór ég í útilegu með fimm vinkonum mínum. Við tjölduðum í garðinum hjá ömmu einnar og amman er algjör dúlla. Við komum okkur fyrir í tjaldinu, borðuðum og spiluðum "Uno". Svo ákváðum við að horfa á mynd, hryllingsmynd, inn í tjaldinu. Myndin var vel byrjuð og í miðju bregðuatriði slökknuðu öll ljós, þá er ég að meina að allur bærinn varð svartur. Og það sem verra var að það datt líka út allt símasambandi. Ég hef aldrei verið svona hrædd. Biðum í örvæntingu okkar í svona tíu mínútur eftir að ljósin komu á aftur. En þegar á heildina var litið var þetta bara mjög skemmtilegt.
Borðuðum pizzu og samlokur
Eftir að það slökknuðu öll ljós haha
Uno!
Las Grutas
Já mikið rétt, ég fór aftur á ströndina. Á föstudagskvöldið fórum við að heimsækja frænku okkar og okkur var óvænt boðið á ströndina. Við lögðum að stað klukkan fimm á laugardagsmorguninn, sjö í fimm manna bíl, og vorum mætt á ströndina um klukkna níu. Það leit allt út fyrir að veðrið yrði ekki sem best en það rættist svo úr því, ég er allavegana eins og tíomatur í framan. Við dingluðum okkur þarna þangað til að klukkan varð sex og þá snerum við aftur til Cervatnes. Svo er ég að fara aftur á ströndina 18.-22. janúar.
Sváfum ekki neitt þannig að við vorum með smá svefngals!
Marcelo er algjörlega með 'etta. Bleikt!
Hann elskar þennan bol
Frekar leiðinlegt veður
Amma mín sem er alveg ótrúlega lík ömmu Ellu!
Indíánar að spila ótrúlega fallega tónlist
Við fjölskyldna :)
Það var alveg nóg af fólki
Skiptinemahittingur
Núna er komið að því að fjórir skiptinemar eru að fara að snúa heim til sín. Tvær stelpur frá Þýskalandi og Austurríki/Ítalíu sem eru búnar að vera hérna í fimm mánuði og tvær stelpur frá Taílandi og Ástralíu sem eru búnar að vera hérna í heilt ár. Svo koma held ég þrír nýjir skiptinemar í febrúar. Það var alveg rosalega skrýtið að heyra þau tala um að það að þau væru að fara heim að hitta fjölskylduna sína. Smá öfund, en ég væri samt ekki til í að vera í þeirra sporum, er alls ekki tilbúin að fara heim.
Já ég er brunnin í framan
Kris, ég og Lilja hjá eplinu fræga
Lilja (frá Noregi en býr í öðru fylki, var að heimsækja Kris), Friederike (þýskaland), Ég, Far (Taílandi), Hannah (Ástralíu) og Kristine (Noregur)
Í Argentínu...
...eða öllu frekar í litla bænum mínum segja allir "hola" sama hvort þú þekkir manneskjuna eða ekki
...hefur kötturin sjö líf en ekki níu
...eru moskítóflugurnar að éta mig
...eru mjólkurvörur vondar
...er borðaður kvöldmatur klukkan 21-23
Lag vikunnar: Lo mejor de mi vida eres tu (það besta við líf mitt ert þú). Þetta lag er sungið af Ricky Martin sem er frá Spáni.
Þangað til næst
-Hrefna Björk
Gaman að lesa bloggið þitt og æðislegar myndir!
ReplyDeleteÉg hlakka til að sjá þig í júlí :)
Hafðu það gott :*
furðulgur tími fyrir kvöldmat!!
ReplyDeleteSkemmtilegt blog og ég hugsa að ég væri dáin núna ef ég hefði lent í þessari uppákomu í tjaldinu! haha
kveðja
Ella
Alltaf gaman að lesa bloggið þitt :)
ReplyDeleteKnús Kristín stórasystir
Muy Lindo tu Blog Hermana.!!! Me Gusta muchisimo que e sientas a gusto aca en Argentina..!! :D te deseo lo mejor siempre..!!! solo quedan meses.!! y el tiempo pasa muy rapido para mi y creo que para vos tambien.! :/ pero bueno.. Si Dios quiere voy a ir a Islandia..! :D y estoy muy feliz por eso..! Sabes que te quiero Mucho Mucho..! Espero Leer Tu Proximo Blog...! :D hasta pronto..! ;D
ReplyDeleteTakk æðislega fyrir afmæliskveðjuna:D
ReplyDeleteHlökkum til að sja þig í júlí,
Hafði það gott út:D
Kveðja Finnur og fjölskylda:D
Frábært að lesa bloggið mín yndislega.
ReplyDeleteErtu ekki að meina að "amman" sé lík ömmu Ellu í sér, ekki í útliti :-)
Hlakka mikið til að sjá þig í júlí
Knús og Kossar
MAMMA
flott lag , sumarlag :-)
ReplyDeleteég elska þig
er forvitin ad vita hvert fórstu á strondina? ótrúlega sorglegt ad skiptinemarnir séu sumir hverjir ad fara, alveg 6 hédan frá mendoza :(
ReplyDeleteskemmtilegt blogg en er ekki sammála med mjólkurvorurnar, ég fýla mjólkina betur hérna en á íslandi :s :s
kv natalia
Heyrðu ströndin heitir "Las Grutas" og er hérna í mínu héraði Río Negro. Er svo að fara aftur í dag! :) En þessar mjólkurvörur hérna eru hræðilegar.
ReplyDelete