Sunday, January 8

Annað blogg ársins

Jæja núna kemur annað blogg :)


Það er eitthvað búið að gerast síðan síðast...


Útilega
Á fimmtudaginn fór ég í útilegu með fimm vinkonum mínum. Við tjölduðum í garðinum hjá ömmu einnar og amman er algjör dúlla. Við komum okkur fyrir í tjaldinu, borðuðum og spiluðum "Uno". Svo ákváðum við að horfa á mynd, hryllingsmynd, inn í tjaldinu. Myndin var vel byrjuð og í miðju bregðuatriði slökknuðu öll ljós, þá er ég að meina að allur bærinn varð svartur. Og það sem verra var að það datt líka út allt símasambandi. Ég hef aldrei verið svona hrædd. Biðum í örvæntingu okkar í svona tíu mínútur eftir að ljósin komu á aftur. En þegar á heildina var litið var þetta bara mjög skemmtilegt. 


Borðuðum pizzu og samlokur

Eftir að það slökknuðu öll ljós haha

Uno!




Las Grutas
Já mikið rétt, ég fór aftur á ströndina. Á föstudagskvöldið fórum við að heimsækja frænku okkar og okkur var óvænt boðið á ströndina. Við lögðum að stað klukkan fimm á laugardagsmorguninn, sjö í fimm manna bíl, og vorum mætt á ströndina um klukkna níu. Það leit allt út fyrir að veðrið yrði ekki sem best en það rættist svo úr því, ég er allavegana eins og tíomatur í framan. Við dingluðum okkur þarna þangað til að klukkan varð sex og þá snerum við aftur til Cervatnes. Svo er ég að fara aftur á ströndina 18.-22. janúar.


Sváfum ekki neitt þannig að við vorum með smá svefngals!

Marcelo er algjörlega með 'etta. Bleikt!

Hann elskar þennan bol

Frekar leiðinlegt veður

Amma mín sem er alveg ótrúlega lík ömmu Ellu!

Indíánar að spila ótrúlega fallega tónlist

Við fjölskyldna :)

Það var alveg nóg af fólki



Skiptinemahittingur
Núna er komið að því að fjórir skiptinemar eru að fara að snúa heim til sín. Tvær stelpur frá Þýskalandi og Austurríki/Ítalíu sem eru búnar að vera hérna í fimm mánuði og tvær stelpur frá Taílandi og Ástralíu sem eru búnar að vera hérna í heilt ár. Svo koma held ég þrír nýjir skiptinemar í febrúar. Það var alveg rosalega skrýtið að heyra þau tala um að það að þau væru að fara heim að hitta fjölskylduna sína. Smá öfund, en ég væri samt ekki til í að vera í þeirra sporum, er alls ekki tilbúin að fara heim. 


Já ég er brunnin í framan

Kris, ég og Lilja hjá eplinu fræga

Lilja (frá Noregi en býr í öðru fylki, var að heimsækja Kris), Friederike (þýskaland), Ég, Far (Taílandi), Hannah (Ástralíu) og Kristine (Noregur)


Í Argentínu...
...eða öllu frekar í litla bænum mínum segja allir "hola" sama hvort þú þekkir manneskjuna eða ekki
...hefur kötturin sjö líf en ekki níu
...eru moskítóflugurnar að éta mig
...eru mjólkurvörur vondar
...er borðaður kvöldmatur klukkan 21-23

Lag vikunnar: Lo mejor de mi vida eres tu (það besta við líf mitt ert þú). Þetta lag er sungið af Ricky Martin sem er frá Spáni. 


Þangað til næst
-Hrefna Björk



9 comments:

  1. Gaman að lesa bloggið þitt og æðislegar myndir!
    Ég hlakka til að sjá þig í júlí :)

    Hafðu það gott :*

    ReplyDelete
  2. furðulgur tími fyrir kvöldmat!!
    Skemmtilegt blog og ég hugsa að ég væri dáin núna ef ég hefði lent í þessari uppákomu í tjaldinu! haha

    kveðja
    Ella

    ReplyDelete
  3. Alltaf gaman að lesa bloggið þitt :)
    Knús Kristín stórasystir

    ReplyDelete
  4. Muy Lindo tu Blog Hermana.!!! Me Gusta muchisimo que e sientas a gusto aca en Argentina..!! :D te deseo lo mejor siempre..!!! solo quedan meses.!! y el tiempo pasa muy rapido para mi y creo que para vos tambien.! :/ pero bueno.. Si Dios quiere voy a ir a Islandia..! :D y estoy muy feliz por eso..! Sabes que te quiero Mucho Mucho..! Espero Leer Tu Proximo Blog...! :D hasta pronto..! ;D

    ReplyDelete
  5. Takk æðislega fyrir afmæliskveðjuna:D
    Hlökkum til að sja þig í júlí,
    Hafði það gott út:D
    Kveðja Finnur og fjölskylda:D

    ReplyDelete
  6. Frábært að lesa bloggið mín yndislega.
    Ertu ekki að meina að "amman" sé lík ömmu Ellu í sér, ekki í útliti :-)
    Hlakka mikið til að sjá þig í júlí
    Knús og Kossar
    MAMMA

    ReplyDelete
  7. flott lag , sumarlag :-)
    ég elska þig

    ReplyDelete
  8. er forvitin ad vita hvert fórstu á strondina? ótrúlega sorglegt ad skiptinemarnir séu sumir hverjir ad fara, alveg 6 hédan frá mendoza :(
    skemmtilegt blogg en er ekki sammála med mjólkurvorurnar, ég fýla mjólkina betur hérna en á íslandi :s :s
    kv natalia

    ReplyDelete
  9. Heyrðu ströndin heitir "Las Grutas" og er hérna í mínu héraði Río Negro. Er svo að fara aftur í dag! :) En þessar mjólkurvörur hérna eru hræðilegar.

    ReplyDelete