Þar sem ég bý, er ekkert af þessu! Haha það er svo kalt úti núna að ég get varla farið út, sakna úlpunar minnar! Það versta er að þegar ég fer í skólan fer ég í örþunnum sokkbuxum! Það er svo kalt að labba heim.
Jæja, ákvað nú ekki að skrifa blogg til að lýsa veðrinu, mig langaði til að segja ykkur frá bestu 10 dögum lífs míns! Það var þegar ég fór í AFS ferðalag til Buenos Aires og las cataratas del Iguazú.
Lagt var að stað um kvöldið 18. júlí þegar við skiptinemarnir frá Neuquén, Roca og Río Gallegos tókum rútuna til Buenos Aires. Lentum í Bs.As um tíuleytið daginn eftir og hittum flest alla hina skiptinemana.
Buenos Aires
Ég er ástfangin! Mér langar að fara að búa þarna, allavegana tíambundið, í framtíðinni. Þetta er fyrsta stórborgin sem ég fer til og hún er svo falleg. Fórum í city tour og sáum alla túristastaðina. Tók alveg helling af myndum. Sáum meðal annars:
La casa rosada (þar vinnu forsetinn)
El camenito (þar fæddist tangóinn, lítil gata full af marglituðum húsum)
Fótboltavöll Boca, sem er eitt af stórliðum Argentínu
La plaza del mayo (frægasta torg í Buenos Aires)
Eitt kvöldið þóttist ég vera norsk og fór að halda upp á þjóhátíðardag Norðmanna, enda eru tvær bestu vinkonur mínar frá Noregi. Þetta var mjög gaman og gaman að sjá sendiráð Noregs, sá ekki það íslenska.
Skiptinemarnir frá Roca
Blóm sem lokast á kvöldin og opnast á morgnanna, er reyndar bilað núna
La plaza de Mayo
La casa rosada
Fótboltavöllur Boca
El caminito
Það voru tekin nokkur tangó spor
Norðmenna kunna að láta kökur líta út fyrir að vera góðar haha
Las Cataratas del Iguazú
Það var 25 klst ferðalag frá Buenos Aires til Puerto Iguazú. Á leiðinni stoppuðum við til þess að sjá "Las Ruinas de San Ignacio" og "Las minas de Wanda." Það fyrr nefnda eru rústir kaþólsks þorps í Missiones. Það hefur meðal annars verið gerð kvikmynd sem gerist á þessum stað, the mission. Las minas de Wanda er mjög fallegur staður. Þar er alveg hellingur af steinum og skemmtileg saga á bak hvernig þeir fundust. Það var prinsessa frá Póllandi sem bjó á þessum stað. Hún var að þrífa úti við og skar sig á enhverju. Hafði hún þá fundið fyrsta steininn. Hún lét yfirvöld vita enda er það skylda og þau komust að því að jörðin var full af gimsteinum.
don't cry for me argentina
Ég og Sigri hressar
Fórum í fuglagarð
Þetta er eitt af táknum Iguazú
Mættar hressar á hótelið
Dúlla
:)
Sýna smá íslendinginn í sér
Eitt af sjö undrum veraldrar
Nick og Zac góðir vinir okkar
Við komumst loksins á leiðarenda á hótelið Marco Polo. Ótrúlega flott hótel. Fórum að skoða miðbæinn, rosalega fallegt allt saman. Er alveg ástfangin af norður Argentínu vegna þess að þarna fann í Argentínuna sem ég hafði hugsað mér. Við fórum í ýmiskonar ferðir á meðan við dvöldum í Puerto Iguazú. Fórum til Brasilíu á danssýningu með dönsum frá allri Suður-Ameríku. Fórum að skoða eitt af sjö undrum veraldrar, bæði Argentínu megin og Brasilíu megin. Fórum á bát undir part af fossunum. Fórum líka í ferð sem heitir Iguazú forrest. Þar sigum við niður 18 metra háan vegg, löbbuðum um regnskógana og svifum um skógana í svona rólu sem þú heldur þér á höndunum.
Þegar við vorum búin að vera nokkra daga í Iguazú snerum við aftur til Buenos Aires.
Þar gafst okkur tækifæri til þess að skoða meira. Fórum á franska torgið og þar varð breyting á lífi mínum. Lét gamlan mann lesa fyrir mig úr tarrot spilum og ég er búin að gera miklar breytingar á lífinu síðan. Og ég er alveg rosalega hamingjusöm.
Í feðrinni eignaðist ég alveg rosalega góða vini, og gaman að segja frá því að þeir eru allir að fara að kíkja í heimsókn um helgina. Og sumar koma langa veglengd! Ég er alveg rosalega spennt! :)
Las Cataratas del Iguazú
Það sem er að frétta af listanum mínum :)
Mi nombre es Stilton, Geronimo Stilto (104 bls)
6. Senda e-mail á tvo kennara á Íslandi
-fékk beiðni um það áður en ég fór út
8. Taka myndir á leiðinni heim úr skólanum
-það er alveg rosalega fallegt þar sem ég labba alltaf :)
9. Læra argentínska þjóðsönginn
-held að það sé ekkert erfitt en ég þarf að gefa mér tíma í það
-mér hefur alltaf langað í hana
11. Negla niður nöfnin á allavegana 20 danslögum á spænsku
-til að ég geti dansað á Íslandi
13. Elda íslenskan rétt og eftirrétt
-Kynna fyrir þeim íslenska matarmenningu
14. Láta gera á mig kjól
-það er mjög ódýrt hérna
15. Fara á skemmtistað í öðrum bæ
-búin að missa 5 kíló
17. Finna 10 hluti sem ég elska við Argentínu og taka myndir af því
19. Læra að gera dulce de leche
-það er víst mjög flókið, en þess virði!
20. Læra að gera a.m.k. þrjá argentínska rétti (búin að læra a.m.k tvo)
21. Læra a.m.k. þrjá argentínska eftirrétti (búin að læra a.m.k. einn)
22. Kaupa gjafir handa fjölskyldunni minni á Íslandi
-þau þurfa að eiga einhverja minningargripi líka!
23. Spila á tónleikum
-Spilum 20. júní þegar það er dagur fánans
24. Taka mynd af mér með kennara í skólanum
-Ég er orðin ágætis vinkona einnar stelpu bekknum sem heitir Giuli
26. Skrifa 10 blogg í viðbót (þetta er 7. bloggið)
Það eru fleiri myndir á Facebook :)
Kem heim eftir rétt rúman mánuð, hlakka til að sjá ykkur.
Kommentið ef þið viljið!
-Hrefna Björk
gaman að lesa! hlakka til að sjá þig eftir rúman mánuð! :):D
ReplyDeleteknús
Ella
Verður gaman að sjá þig eftir mánuð elskan ;)
ReplyDeleteKnús og kossar Kristín
elsku Hrefna Björk mín
ReplyDeleteþað gengur vel á listann þinn, veit að þú nærð þessu öllu.
gaman að lesa bloggið og sjá skemmtilegar myndir.
hversu góðir vinir eru þessir herramenn :-) ?
Hlakka mikið til að sjá þig eftir 1 mánuð.
með malt og appelsín :-)
Knús og kossar
þín MAMMA