Monday, May 14

Listinn minn

Fyrir um það bil tveimur mánuðum ákvað ég að búa til lista yfir hluti sem mér langar að gera áður en skiptinemaárið mitt er á enda. Þá mest til að njóta tímans sem ég á eftir sem best. Lesendur góðir, ég hef ákveðið að deila listanum með ykkur og í komandi bloggum mun ég segja ykkur frá þeim hlutum sem ég hef náð að uppfylla. 


1. Klára að lesa "To kill a mockingbird"

-þarf að lesa hana á næsta skólaári í MR. 



2. Læra að "cura" maté
-það er þegar það er set "yerba" í maté til þess að hægt sé að drekka maté úr því. Svolítið erfitt að útskýra. Það er samt nauðsyn fyrir flest maté.




3. Taka myndir af mér í skólabúningum
-skýrir sig sjálft










4. Labba um Roca og taka myndir
-Roca heitir bærinn minn í Argentínu




5.Lesa bók á spænsku
Mi nombre es Stilton, Geronimo Stilto (104 bls)


6. Senda e-mail á tvo kennara á Íslandi
-fékk beiðni um það áður en ég fór út


7.Kaupa mér argentínska fánan


8. Taka myndir á leiðinni heim úr skólanum
-það er alveg rosalega fallegt þar sem ég labba alltaf :)


9. Læra argentínska þjóðsönginn
-held að það sé ekkert erfitt en ég þarf að gefa mér tíma í það


10. Kaupa landliðstreyju Argentínu
-mér hefur alltaf langað í hana


11. Negla niður nöfnin á allavegana 20 danslögum á spænsku
-til að ég geti dansað á Íslandi


12.Bryja að æfa salsa og tango
-Enda er það mjög suður-amerískt


13. Elda íslenskan rétt og eftirrétt
-Kynna fyrir þeim íslenska matarmenningu


14. Láta gera á mig kjól
-það er mjög ódýrt hérna


15. Fara á skemmtistað í Neuquén
-Það er stærsti bærinn hérna nálægt mér


16.Missa tvö kíló


17. Finna 10 hluti sem ég elska við Argentínu og taka myndir af því


18. Fara á nýjan skemmtistað í Roca
-ekki gaman að fara alltaf á sama staðinn


19. Læra að gera dulce de leche
-það er víst mjög flókið, en þess virði!


20. Læra að gera a.m.k. þrjá argentínska rétti (búin að læra a.m.k. einn)


21. Læra a.m.k. þrjá argentínska eftirrétti (búin að læra a.m.k. einn)


22. Kaupa gjafir handa fjölskyldunni minni á Íslandi
-þau þurfa að eiga einhverja minningargripi líka!


23. Spila á tónleikum
-vonandi að hljómsveitin spili!


24. Taka mynd af mér með kennara í skólanum


25. Eignast a.m.k. eina góða ARGENTÍNSKA vinkonu í Roca


26. Skrifa 10 blogg í viðbót (þetta er 6. bloggið)


Þannig að staðan 14. maí er sú að ég er búin að uppfylla 7/26


Vil óska henni ömmu minni innilega til hamingju með afmælið! :)


Lag vikunnar:


Þjóðsöngur Argentínu!

Þangað til næst
-Hrefna Björk 



2 comments:

  1. óvá!! Glæsilega gert. Rosalega eru þetta flottir hlutir sem þú smelltir niður þarna.
    Ég skrifaði lista líka. Og skrifaði hluti sem ég þarf að taka með mér heim sem fást ekki á íslandi. Svo gagnlegir svona listar, MR-legt (góð hugmynd að lesa "to kill a mockingbird", datt það ekki í hug en þú svo sniðug alltaf og skipulögð)
    -Rósa xoxo

    ReplyDelete
  2. Bara orðin dugleg að blogga :)

    Knús Kristín

    ReplyDelete