Monday, July 9

Elsku Argentína

Það er svo mikið búið að gerast að ég nenni varla að skrifa um það. 


Það er búið að vera kveðjupartý hjá AFS þar sem var bæði hlegið og grátið og svo í dag gerði ég kveðjukökuboð heima hjá mér. Ég og mamma bjuggum til kökur, ég meðal annars skúffuköku. Svo komu allir bestu vinir mínir og við borðuðum og hlógum!


Núna er rúm vika þangað til að ég kem heim og ég veit ekki hvernig mér á að líða. Þetta er svo óraunverulegt!!!


Það verður gott að koma heim en á sama tíma verður það alveg ótrúlega erfitt. 


Á sunnudaginn átti ég alveg æðislegan dag, fórum smá fyrir utan bæinn, borðuðum asado með fullt af fólki og svo var bara slakað á. Veðrið minnti svolítið á íslenskt vor. Svo eftir það kom Elínborg að heimsækja mig og við fórum í bíó og byrjuðum að horfa á Mýrina, sem hún btw gleymdi hérna hjá mér haha


Þetta er búið að vera besta ár sem ég hef lifað! Það er ólýsanlegt!




1. Klára að lesa "To kill a mockingbird"

-þarf að lesa hana á næsta skólaári í MR. 





2. Læra að "cura" maté
-það er þegar það er set "yerba" í maté til þess að hægt sé að drekka maté úr því. Svolítið erfitt að útskýra. Það er samt nauðsyn fyrir flest maté.





3. Taka myndir af mér í skólabúningum





4. Labba um Roca og taka myndir
-Roca heitir bærinn minn í Argentínu








5.Lesa bók á spænsku





6. Senda e-mail á tvo kennara á Íslandi
-fékk beiðni um það áður en ég fór út



Anton Bjarnason
Ástríður Ebba, dönskukennari

Sigríður Ragnarsdóttir
Sigríður Ragnars, spænskukennari

7.Kaupa mér argentínska fánan





8. Taka myndir á leiðinni heim úr skólanum
-það er alveg rosalega fallegt þar sem ég labba alltaf :)




















Gatan mín


























9. Kaupa landliðstreyju Argentínu
-mér hefur alltaf langað í hana




10. Negla niður nöfnin á allavegana 10 danslögum sem við dönsum við hérna
-til að ég geti dansað á Íslandi



1.Llora me llama - Joao Bosco e Vinícius 
2.Bailan Rochas Y Chetas - Nene malo
3.Envidia-Culisueltas
4.Tirate un paso-Los Wachituros 
5.La despedida - Daddy Yankee
6. La Señal-Daddy Yankee
7.Lovumba - Daddy Yankee
8.Hoy volvi a verte - E lre tuto
9.Danza Kuduro - Don Omar
10. Loca - Shakira

11.Bryja að æfa salsa og tango
-Enda er það mjög suður-amerískt

























Ég að dansa tango með kennaranum mínum

13. Elda íslenskan rétt 
-Kynna fyrir þeim íslenska matarmenningu. Bjó til íslenskt lasagnea ogsvo bjó ég til skúffuköku. Fann ekki myndina af því fyrr nefnda.







































14. Fara á skemmtistað í öðrum bæ

-Fór þegar ég fór á ströndina, nennti ekki að finna mynd


15.Missa tvö kíló
-búin að missa 5 kíló



16. Finna 10 hluti sem ég elska við Argentínu
-Það er svo margt sem ég elska!

17. Fara á nýjan skemmtistað í Roca
-ekki gaman að fara alltaf á sama staðinn

Aquelarre-nótt nornanna

18. Læra að gera dulce de leche
-það er víst mjög flókið, en þess virði!



















19. Læra að gera a.m.k. þrjá argentínska rétti 































Ñoquis























Milanesa
































Pastel de papas


20. Læra a.m.k. þrjá argentínska eftirrétti



























Pastafrola














Chocotorta (lík þesssari, fann ekki myndina sem ég tók)




















Amma mín að búa til "tortas fritas"

21. Spila á tónleikum
-Spilum 20. júní þegar það er dagur fánans
















Það kom alveg helling af fólki, fann ekki mynd af mér með hljómsveitinni, á hana til einhverstaðar

22. Taka mynd af mér með kennara í skólanum
















Leikfimiskennarinn minn í gamla skólanum mínum var með okkur á djamminu einu sinni

26. Eignast a.m.k. eina góða ARGENTÍNSKA vinkonu
-Ég á þrjár góða argentínska vinkonur, Sheylam, Belen og Sol. Fann ekki mynd af mér með Belen, enda er ég búin að taka svo margar myndir. Julian er svo góður vinur minn :) Giuli er ágætis vinkona, hún var með mér í skóla hérna í Roca.

















Ég og Giuli

















Ég og Sheyla















Ég og Julian (bróðir hennar Sigri og kærastinn hennar Kris) 













Ég og Sol

26. Skrifa 10 blogg í viðbót (þetta er 9.bloggið)

Krakkar, það eru myndir inn á facebook

Sjáumst eftir einhverja 10 daga 

Þangað til næsta bloggs

-Hrefna Björk


5 comments:

  1. Greinilega verið mjög gaman hjá þér úti. Hlakka til að sjá þig aftur :D

    kv. Indriði ;)

    ReplyDelete
  2. Elsku Hrefna Björk mín
    1 blogg eftir og þá er listinn tæmdur...
    Ég skil alveg hvernig þér líður núna , hlakka til að koma heim og kvíður því að kveðja góða vini og fólk sem þér þykir mikið vænt um .....
    MUNA bara eftir því að vera í tölvusambandi við fólkið þegar heim er komið :-)
    HLAKKA SVOOOOOOOO MIKIÐ TIL AÐ KNÚSA ÞIG EFTIR 9 DAGA.
    NJÓTTU LÍFSINS OG NOTAÐU TÍMANN VEL SEM EFTIR ER Í ARGENTÍNU.
    ÞAKKARKVEÐJUR TIL FJÖLSKYLDU ÞINNAR, ÞAU ERU BÚIN AÐ STANDA VEL MEÐ ÞÉR ..... SEGÐU "PABBA" ÞÍNUM AÐ HÉR SÉU LÍKA FJÖLL TIL AÐ KLÍFA :-)OG TAKA FJÖLSKYLDUNA MEÐ TIL íSLANDS....
    KOSSAR OG KNÚS
    ÞÍN MAMMA

    ReplyDelete
  3. Hæ elsku Hrefna
    Ég get ekki beðið eftir að sjá þig!
    Ótrúlegt að þetta heila ár sé liðið

    Hafðu það alveg æðislega gott þessa fáu daga sem eftir eru og njóttu lífsins <3

    Sjáumst á fimmtudaginn :)
    Knús
    Bryndís

    ReplyDelete
  4. VÁ, þetta hefur greinilega verið æðislegt ár hjá þér! Góða ferð heim, hlakka til að hitta þig :)

    ReplyDelete
  5. Loksins að koma að þessu að þú komir heim :) Hlakka til að sækja þig út á flugvöll :)

    Knús Kristín

    ReplyDelete