Það er nánast aldrei búin að vera alveg heil skólavika vegna þess að Argentínumenn eru duglegir að finna til þó nokkra frídaga. Á mánudaginn var ekki skóli vegna þess að það þurfti að þrífa skólann eftir kosningarnar sem voru á sunnudaginn:
Kosningar í Argentínu
Þær eru nokkuð frábrugðnar kosningum á Íslandi. Í fyrsta lagi voru þær á sunnudegi. Mamma mín vinnur í skólanum fyrir yngri krakkana og hann var notaður til þess að fólk gæti komið og kosið. Þannig að mamma þurfti að vakna klukkan hálf sex til þess að fara að opna skólann. Ég held að ég hafi aldrei hitt jafn duglega konu og Argentínsku móður mína. Hún er alltaf að vinna, og þess vegna alltaf dauðþreytt. Fjölskyldan mín hérna er svo allt öðruvísi en á Íslandi og ég tel mig heppna vegna þess að það er mjög þroskandi að kynnast öðruvísi fjölskyldugerðum. En aftur að kosningunum. Á laugardagskvöldið mátti fólk ekki hittast vegna þess að það gat planað eitthvað samsæri. Það voru þess vegna löggur út um allt. Sá þau samt ekki framfylgja þessu mikið vegna þess að við hengum nokkrir krakkar á torginu og löggan sá okkur alveg og gerði ekki neitt. Svo á sunnudeginum var allt fólkið út á götunum til þess að heyra hver var að vinna. Öðruvísi en á Íslandi þar sem allir eru bara heima hjá sér að bíða eftir þessu í sjónvarpinu. Svo var loksins komið á hreint hver vann og það var sko fagnað og öskrað. Frétti svo að maðurinn sem vann hafi verið barinn. Frekar slæmt...
Enn að öðrum málum...þar sem ég er nú engin áhugamaður um pólitík haha
Ég sit hérna heima...veik í annað skipti síðan ég kom hingað :( Þótt það sé gott veður hérna þá er ég alveg þvílíkt kvefuð.
Ég finn alveg hvað rússibaninn minn er á niðurleið....en ég vona að hann fari að stefna í uppleið aftur. Ástæðan fyrir niðurleiðinn er soldið út af þvi að mér leiðist. En þar sem ég hef ákveðið að fara að æfa sund og byrja i einhverskonar skólahljómsveit þá ætti það að fara að lagast. :D
Til að standa við að þetta verði lítið krúttlegt blogg ætla ég að fara að segja þetta gott :)
Vonandi er einhver að lesa bloggið mitt...finnst alltaf gaman að fá kommet ;)
Kossar og knús til Íslands
-Hrefna Björk
P.s. Væri alveg til í að gera persónulegri blogg en þar sem fólk hérna notar mikið google translate þá verður þetta að duga :)
Hendi inn nokkrum myndum:
Á sólríkum vordegi á torginu. Hérna í Argentínu skiptir aldur ENGU máli og strákurinn sem er að sína puttan er 21 ára (hengur eigilega alltaf með okkur) haha
Hef ekki séð mikið af hestum eins og ég bjóst við að sjá en þó nokkra...þessi var t.d. að chilla í götunni minni um daginn
Á sunnudaginn kom norsk stelpa sem er skiptinemi með öðrum samtökum en AFS í heimsókn...fékk að heyra þó nokkuð mikla norsku og skyldi alveg fullt....miklu auðveldara að skilja norsku en dönsku!
Sæta litla frænka mín hérna....algjör orkubolti og mesta krútt í heimi
Fólk að bíða eftir niðurstöðum kosninganna
Sæti litli flækingshundurinn sem er alltaf á torginnu....svo sárt að sjá að hundarnir hérna sofi úti og sérstaklega vegna þess að það er svo kalt hérna á nóttinni. Svo borða þeir ruslið og fólkinu hérna finnst ekkert sjálfsagðara :(
Biðst afsökunnar á öllum innsláttarvillunum í hinu blogginu....vona að þær séu færri i þessu! :)
Gaman að fylgjast með þér hinum megin á hnettinum. Gott hjá þér að drífa þig í hljómsveitina, um að gera að hafa nóg fyrir stafni. Þú ert ekki að missa af neinu hér, það er grenjandi rigning og rok. Bestu kveðjur frá mér og frænda :)
ReplyDelete