Við lögðum að stað um fimm leytið á föstudeginum og við tók sex tíma keyrsla. Þegar við komum við Caviahue logguðum við okkur inn á hótelið og fórum svo að borða. Átti gott spjall við host pabba minn um Ísland en hann hafði einmitt heyrt um Geysir. Hann hélt reyndar að Geysir væri nafnið yfir alla hverina en ég náði að leiðrétta þann misskilning.
Við sváfum út á laugardeginum en skelltum okkur síðan til Capahue. Það er mjög sérstakur staður, meðal annars vegna þess að þar býr engin á veturna vegna þess að bærinn fer undir snjó. Þetta er mjög lítill bær og þann 1. maí ár hvert flytur fólkið. Bærinn státar af hverum sem hægt er að baða sig í en þar sem það var allt fullt af snjó böðuðum við okkur ekki í þetta skiptið. Við senrum svo heim á hótelið og borðuðum empanadas og spiluðum. Áttum mjög góða stund þar saman fjölskyldan. Borðuðm kvöldmat og ég smakkaði besta ís sem ég hef smakkað hérna í Argentínu.
Á sunnudeginum sváfum við aftur út og skelltum okkur í gönguferð. Fórum að skoða fimm fossa hvorki meira né minna. Þetta var allt rosalega fallegt og minnti á Ísland nema það voru rosalega skrýtin grenitré. Eftir gönguferðina og meira empanadaát héldum við heim á leið eftir góða hvíld.
Myndir segja meira en þúsund orð:
Argentínskur snjór
Heitur hver í Capuahue
Við systkinin
Fallega fjölskyldan mín
Ég hjá einum af sex fossunum sem við fórum að skoða
Ég við hliðina á vatninu í Caviahue
Að spila!
Ég með Lucasi og Lauty
Pabbinn tók þessa mynd og svo datt hann aftur fyrir sig
Hjá súra fossinum
Ótrúlega fallegt umhverfi
:)
Ég og host mamma mín
Haha the Beatles
Ég með empanadas
Ég með Lucasi og Lauty
:D
Lag vikunnar:
Hasta que salga el sol - Los turros. Sem á íslensku myndi vera "þangað til að sólin rís". Þetta er ekta Cumbia.
Þangað til næst
-Hrefna Björk
Vá gaman að fara í svona morg ferðalög.
ReplyDeleteKnús á þig sæta systir :)
Kristín
það er aldeils! Vá hvað það er merkilegt að sjá snjó, heita hvera og íslandheit í Argentínu. Það halda allir líka að geysir sé samheiti yfir hvera með heitu vatni hér. Ég hef ekkert leiðrétt það. Tja, það vita líka engir hvað geysir er, hvort sem það er Geysir eða geysir.:x
ReplyDeleteÆðilegt hjá þér vinkona.
-rósa
Elsku Hrefna Björk mín
ReplyDeleterosalega hefur verið gaman í þessu ferðalagi, skrýtið að sjá þessi hús öll sem eru eins og yfirgefin, það er komin skýring á því núna að fólkið var ekki komið í þau
:-) Nú fer aldeilis að styttast í heimkomu, ég hlakka mikið til að sjá þig en mundu að njóta lífsins, því þessi tími kemur ekki aftur...Elska þig
knús og kossar
þín MAMMA
Flottar myndir!
ReplyDeleteÞetta hefur greinilega verið æðisleg ferð :)
Ég hlakka til að sjá þig eftir rúma tvo mánuði
Hafðu það sem allra best sæta mín
Knús :*
- Bryndís
Takk mín kæra fyrir flottar myndir og frásögn. Heppin að "eiga" svona góða fjölskyldu i Argentínu.
ReplyDeleteKnús og kossar til þín
Hrefna