Monday, April 30

Caviahue

Hvert ertu að fara? hmmm...ég veit ekki alveg hvað það heitir það er svo erfitt að bera það fram. Um seinustu helgi fór ég aftur í ferðalag með fjölskyldunni. Þetta ferðalag var meira svona slökun og til þess að halda upp á afmæli host pabba míns.


Við lögðum að stað um fimm leytið á föstudeginum og við tók sex tíma keyrsla. Þegar við komum við Caviahue logguðum við okkur inn á hótelið og fórum svo að borða. Átti gott spjall við host pabba minn um Ísland en hann hafði einmitt heyrt um Geysir. Hann hélt reyndar að Geysir væri nafnið yfir alla hverina en ég náði að leiðrétta þann misskilning. 


Við sváfum út á laugardeginum en skelltum okkur síðan til Capahue. Það er mjög sérstakur staður, meðal annars vegna þess að þar býr engin á veturna vegna þess að bærinn fer undir snjó. Þetta er mjög lítill bær og þann 1. maí ár hvert flytur fólkið. Bærinn státar af hverum sem hægt er að baða sig í en þar sem það var allt fullt af snjó böðuðum við okkur ekki í þetta skiptið. Við senrum svo heim á hótelið og borðuðum empanadas og spiluðum. Áttum mjög góða stund þar saman fjölskyldan. Borðuðm kvöldmat og ég smakkaði besta ís sem ég hef smakkað hérna í Argentínu. 


Á sunnudeginum sváfum við aftur út og skelltum okkur í gönguferð. Fórum að skoða fimm fossa hvorki meira né minna. Þetta var allt rosalega fallegt og minnti á Ísland nema það voru rosalega skrýtin grenitré. Eftir gönguferðina og meira empanadaát héldum við heim á leið eftir góða hvíld.


Myndir segja meira en þúsund orð:


Argentínskur snjór

Heitur hver í Capuahue

Við systkinin

Fallega fjölskyldan mín

Ég hjá einum af sex fossunum sem við fórum að skoða

Ég við hliðina á vatninu í Caviahue

Að spila!

Ég með Lucasi og Lauty

Pabbinn tók þessa mynd og svo datt hann aftur fyrir sig

Hjá súra fossinum

Ótrúlega fallegt umhverfi

:)

Ég og host mamma mín

Haha the Beatles

Ég með empanadas

Ég með Lucasi og Lauty

:D

Lag vikunnar:



Hasta que salga el sol - Los turros. Sem á íslensku myndi vera "þangað til að sólin rís". Þetta er ekta Cumbia.

Þangað til næst
-Hrefna Björk





5 comments:

  1. Vá gaman að fara í svona morg ferðalög.
    Knús á þig sæta systir :)
    Kristín

    ReplyDelete
  2. það er aldeils! Vá hvað það er merkilegt að sjá snjó, heita hvera og íslandheit í Argentínu. Það halda allir líka að geysir sé samheiti yfir hvera með heitu vatni hér. Ég hef ekkert leiðrétt það. Tja, það vita líka engir hvað geysir er, hvort sem það er Geysir eða geysir.:x
    Æðilegt hjá þér vinkona.
    -rósa

    ReplyDelete
  3. Elsku Hrefna Björk mín
    rosalega hefur verið gaman í þessu ferðalagi, skrýtið að sjá þessi hús öll sem eru eins og yfirgefin, það er komin skýring á því núna að fólkið var ekki komið í þau
    :-) Nú fer aldeilis að styttast í heimkomu, ég hlakka mikið til að sjá þig en mundu að njóta lífsins, því þessi tími kemur ekki aftur...Elska þig
    knús og kossar
    þín MAMMA

    ReplyDelete
  4. Flottar myndir!
    Þetta hefur greinilega verið æðisleg ferð :)
    Ég hlakka til að sjá þig eftir rúma tvo mánuði
    Hafðu það sem allra best sæta mín
    Knús :*
    - Bryndís

    ReplyDelete
  5. Takk mín kæra fyrir flottar myndir og frásögn. Heppin að "eiga" svona góða fjölskyldu i Argentínu.
    Knús og kossar til þín
    Hrefna

    ReplyDelete