Thursday, June 28

Stutt eftir :/

Til þess að ég nái seinasta atriðinu á listanum mínum þarf ég að eins að bæta við bloggum!


Núna eru akkurat þrjár vikur þangað til að ég verð lent á Íslandi. Það verður frábært að sjá fjölskylduna mína og vinina, en það verður alveg rosalega erfitt að kveðja allt lífið mitt hérna í Argentínu. Hér á ég líf sem ég er mjög stolt af, á fullt af vinum, yndislega fjölskyldu og ég er nokkuð ánægð með þá persónu sem ég er núna. Það er sagt að það erfiðasta við að vera skiptinemi er að koma aftur heim, og ég verð að segja að ég er sammála því. Ég er alveg að njóta í botn núna, geri eitthvað skemmtilegt alla daga! 


En það sem er að frétta af mér:


Día de la bandera
Þar náði ég að stroka út eitt atriði af listanum mínum, að spila á tónleikum. Þetta var alveg ágætt. Spiluðum eitt lag og þurfti svo að bíða heillengi efitr að fá að klára prógrammið. Mér leið alveg eins og ég væri í mínu heimalandi (día de la bandera=dagur fánans). Spiluðum þjóðsöng Argentínu sem ég á btw eftir að læra að syngja, og argentínsku foreldranir mínir grétu báðir haha. Það var laveg stútfullt íþróttahúsið þar sem við spiluðum nokkur þúsund manns!






Ég er alveg rosalega hamingjusöm með fjölskylduna mína núna. Mér þykur svo vænt um þau. Mamma mín hérna er orðin ein af mínum bestu vinkonum og hún er alltaf að hjálpa mér, og þá allra mest með að uppfylla listan minn! 


Argentínski pabbinn minn er núna í Bólivíu að klifra upp stórt fjall. Hann fór fyrir viku síðan og kemur svo aftur heim á mánudaginn. 


Það er mikið framundan hjá mér og það verður gaman að takast á við það allt. 






1. Klára að lesa "To kill a mockingbird"

-þarf að lesa hana á næsta skólaári í MR. 



2. Læra að "cura" maté
-það er þegar það er set "yerba" í maté til þess að hægt sé að drekka maté úr því. Svolítið erfitt að útskýra. Það er samt nauðsyn fyrir flest maté.




3. Taka myndir af mér í skólabúningum
-skýrir sig sjálft




4. Labba um Roca og taka myndir
-Roca heitir bærinn minn í Argentínu














5.Lesa bók á spænsku

Mi nombre es Stilton, Geronimo Stilto (104 bls)


6. Senda e-mail á tvo kennara á Íslandi
-fékk beiðni um það áður en ég fór út



7.Kaupa mér argentínska fánan





8. Taka myndir á leiðinni heim úr skólanum
-það er alveg rosalega fallegt þar sem ég labba alltaf :)



9. Læra argentínska þjóðsönginn
-held að það sé ekkert erfitt en ég þarf að gefa mér tíma í það


10. Kaupa landliðstreyju Argentínu
-mér hefur alltaf langað í hana






11. Negla niður nöfnin á allavegana 20 danslögum á spænsku
-til að ég geti dansað á Íslandi



12.Bryja að æfa salsa og tango
-Enda er það mjög suður-amerískt


13. Elda íslenskan rétt og eftirrétt
-Kynna fyrir þeim íslenska matarmenningu

16. Fara á skemmtistað í öðrum bæ


17.Missa tvö kíló

-búin að missa 5 kíló


18. Finna 10 hluti sem ég elska við Argentínu og taka myndir af því



19. Fara á nýjan skemmtistað í Roca
-ekki gaman að fara alltaf á sama staðinn






20. Læra að gera dulce de leche
-það er víst mjög flókið, en þess virði!



21. Læra að gera a.m.k. þrjá argentínska rétti (búin að læra a.m.k tvo)


22. Læra a.m.k. þrjá argentínska eftirrétti (búin að læra a.m.k. einn)


23. Kaupa gjafir handa fjölskyldunni minni á Íslandi
-þau þurfa að eiga einhverja minningargripi líka!





24. Spila á tónleikum
-Spilum 20. júní þegar það er dagur fánans



25. Taka mynd af mér með kennara í skólanum


26. Eignast a.m.k. eina góða ARGENTÍNSKA vinkonu í Roca

-Ég er orðin ágætis vinkona einnar stelpu bekknum sem heitir Giuli. Svo á ég líka aðra góða vinkonu hérna sem heitir Yamila!


27. Skrifa 10 blogg í viðbót (þetta er 8. bloggið)




Í dag er pabbi minn 50 ára! Til hamingju með afmælið elsku pabbi minn!!! 


Bjó til smá myndband handa honum og þið getið séð það á facebook vegna þess að ég get ekki sett það hérna inn.


Lög vikunnar verða tvö að þessu sinni :)


Nene malo eða vondur strákur, mjög vinsælt lag til að dansa við




Chica diferente eða öðruvísi stelpa er eitt af uppáhaldslögunum mínum :)


Jæja ég skrifa fljótt aftur!


Sjáumst eftir þrjár vikur :)


-Hrefna Björk


1 comment:

  1. Er orðin doldið mikið spennt að fá þig heim sæta :)

    Knús Kristín

    ReplyDelete